154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

listamannalaun.

937. mál
[13:20]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við erum hér að greiða atkvæði um eflingu listamannalauna og það er vel. Ég vil þó benda á það sem kom fram fyrir nefndinni og er fjallað um í okkar nefndaráliti, áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar, að verið er að fjölga sjóðum og þar með talið sjóðum fyrir eldri listamenn. Það er gott, en mér finnst mikilvægt að árétta að því sé ekki ruglað saman við heiðurslaun listamanna. Það er á allt öðrum grunni og við þurfum að efla báða flokka. En hér er gott mál á ferðinni, mikilvægt mál fyrir listamenn þessa lands sem skila inn í þjóðarbúið ótrúlegum verðmætum á ári hverju og því fagna ég þessari afgreiðslu hér.