154. löggjafarþing — 129. fundur, 21. júní 2024.
listamannalaun.
937. mál
Virðulegi forseti. Hér erum við að styrkja stöðu listamanna. Það er vissulega rétt að við þurftum að færa fjármuni með tilfærslu á milli sjóða til að tryggja fjármögnun 2027 og 2028. Næsta ár er hins vegar fjármagnað. Við erum að bæta í fjármuni til að styrkja stöðu listamanna. Þetta er jákvætt mál. Framsókn styður þetta mál og það er allt við það sem mun styrkja stöðu listamanna til framtíðar. Ég fagna því.