listamannalaun.
Forseti. Öll hljótum við að vilja búa í samfélagi þar sem listir og menning fá að blómstra. Okkur greinir auðvitað á um aðferðir og tímasetningar aðgerðanna, en ljósið sem ég sá í frumvarpi þessu var að raunverulega eigi að styrkja og styðja við unga og upprennandi listamenn. Vegna þeirra breytinga sem meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til, þó svo að það eigi að fella brott tillögu um sjóð ungra listamanna, þá muni koma til raunaukningar til þeirra vegna þeirrar reglu og tilmæla að hér eftir skuli stjórn sem fer með úthlutun miða við að nýliðun verði um 10% í sjóðum í stað þeirra 5% sem áður var. Það er skýrt og algerlega ljóst að hér erum við að leggja áherslu á að styðja við ungt listafólk og það er vel.