154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

hafnalög.

830. mál
[13:25]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Með þessu frumvarpi er hugmyndin að komast til botns í því hvernig eigi að tryggja sveitarfélögum eðlilegar tekjur til að standa undir þeirri stórauknu hafnaþjónustu sem þau eru farin að veita fyrirtækjum í sjókvíaeldi víða um land. Þetta er ekkert smámál. Fyrirtækin virðast leita allra leiða til að lágmarka sinn kostnað með því að draga sveitarfélög jafnvel fyrir Hæstarétt svo þau geti fengið að keyra gjaldtökuna niður úr öllu. Þetta er hins vegar ekki leyst í frumvarpinu eða í tillögum meiri hlutans. Því er bara velt yfir á hafnirnar sjálfar að komast að því í einhverjum samningaviðræðum við þessi stórfyrirtæki hvert gjaldið á að vera. Við í minni hlutanum leggjum til að þingið setji ramma utan um þetta gjald til að standa með sveitarfélögunum í þessum samningaviðræðum. Alveg eins og var gert með aflagjaldið þá verði bara miðað við hlutfall af aflaverðmæti þannig að við bjóðum ekki upp á það að sjókvíafyrirtækin hlaupi á milli sveitarfélaga, láti þau undirbjóða hvert annað og reyna að svína út þjónustu á kostnað almennings í þessum byggðum. Þetta er einföld breyting sem sveitarfélögin kalla eftir, rammi svo þau standi ekki ein á berangri heldur hafi ríkið á bak við sig. (ÞSÆ: Heyr, heyr.)