fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Ég ætla hér að fara yfir nefndarálit um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029 frá meiri hluta fjárlaganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið á fjölmörgum fundum frá því að því var vísað til nefndarinnar 22. apríl sl. Tillagan byggist á 5. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Þar kemur fram að ráðherra skuli, á hverju ári, leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hið skemmsta. Stefnumörkunin sem felst í áætluninni skal byggjast á grunngildum fjármálastefnu.
Alls bárust 33 umsagnir og komu fulltrúar 20 umsagnaraðila fyrir nefndina til að gera betri grein fyrir sínum umsögnum.
Áætlunin byggist á fjármálastefnu sem samþykkt var á Alþingi í lok febrúar árið 2022. Meginmarkmið hennar er að stuðla að stöðugleika í hagkerfinu og tryggja sjálfbærni opinberra fjármála.
Efnahagsforsendur fjármálaáætlunar byggjast á þjóðhagsspá frá Hagstofu Íslands sem er birt samhliða þingsályktun um fjármálaáætlun. Í þjóðhagsspánni kemur fram að hægst hefur á efnahagsumsvifum eftir uppsveiflu eftir kórónuveirufaraldurinn. Áætlað er að á árunum 2021–2023 sé uppsafnaður hagvöxtur tæplega 20%.
Á síðasta ári er áætlað að hagvöxtur hafi verið 4,1% en á þessu ári er reiknað með 1,5% hagvexti. Samhliða minni efnahagsumsvifum hefur verðbólga lækkað þó að verðlagsbreytingar á ársgrundvelli séu enn nokkuð háar. Seðlabanki Íslands hefur haldið meginvöxtum í 9,25% um nokkurt skeið, eða frá ágúst 2023. Slík peningastefna með háum vöxtum dregur úr einkaneyslu og fjárfestingum sem á að skila sér í lægri verðbólgu.
Þá hefur almennt verið að hægjast töluvert á í hagkerfinu en áætlað er að á fyrsta ársfjórðungi í ár hafi samdráttur verið um 4% í landsframleiðslu miðað við sama tímabil í fyrra. Samdrátturinn nú á fyrsta ársfjórðungi er sá mesti síðan árið 2010 ef frá er talið kórónuveirutímabilið. Til samanburðar var samdráttur á fyrsta ársfjórðungi 2010 6,7% og ársverðbólga stóð í 8,5% í mars, sem sagt meiri verðbólga og samdráttur en nú er. Þá voru meginvextir eilítið lægri en nú eða 8,13%.
Mikilvægt er að tryggja mjúka lendingu í hagkerfinu með því að ná niður verðbólgu og byggja á viðnámsþrótti í efnahagslífinu og styðja við langtímahagvöxt. Vil ég í því samhengi benda á mynd 2 í nefndarálitinu sem sýnir þróun meginvaxta og verðbólgu frá árinu 2017. Á þeirri mynd kemur fram að fyrir kórónuveirufaraldurinn var hagkerfið í nokkuð góðu jafnvægi og verðbólga nálægt verðbólgumarkmiðinu um 2,5%. Vextir voru svo lækkaðir til að örva hagkerfið í faraldrinum en í kjölfarið fór verðbólga að hækka. Ýmsar ástæður eru fyrir verðhækkunum á þessu tímabili en til að mynda varð um skeið mikil verðbólga erlendis sem hækkaði verð á innfluttum vörum og aðföngum innan lands. Einnig var mikil spenna í hagkerfinu og á vinnumarkaði samhliða miklum verðhækkunum á fasteignamarkaði. Áætlað er að ársverðbólga hafi náð hámarki í fyrra og að jafnaði verið þá 8,7%, sem er mesta hækkun vísitölunnar frá árinu 2009. Helsta orsök verðbólgu í fyrra var hækkun á húsnæðismarkaði og þjónustu.
Áætlað er að verðbólgan lækki næstu ár. Verðbólga í viðskiptalöndum hefur lækkað og dregið hefur úr umsvifum í hagkerfinu. Hagstofa Íslands spáir því að verðbólgan í ár verði að meðaltali um 5,2% en að meðaltali spá greiningaraðilar að verðbólgan verði um 5,6%.
Samkvæmt spám mun verðbólgan halda áfram að lækka á næsta ári og verða á bilinu 3–4%. Í langtímaáætlun Hagstofu Íslands er gert ráð fyrir að verðbólgan verði nálægt viðmiðum Seðlabankans árið 2026. Í nýrri spá Seðlabanka Íslands er einnig reiknað með að verðbólgan verði við verðbólguviðmið árið 2026.
Til að hagvaxtarhorfur til meðallangs tíma verði áfram hagstæðar er mikilvægt að auka nýsköpun í hagkerfinu til að stuðla að aukinni framleiðni. Vænta má að innflutningur vinnuafls haldi áfram að styðja við vöxt í hagkerfinu, sem hefur einnig í för með sér ýmiss konar áskoranir varðandi verðlag, húsnæði og aukna eftirspurn.
Sem fyrr er talsverð óvissa í langtímaspá sem fjármálaáætlun byggist á. Mögulega gæti dregið hraðar úr hagvexti og verðbólgu ef samdráttur eftirspurnar verður meiri en gert er ráð fyrir í forsendum þar sem aðhaldsstig peningastefnunnar er verulegt. Einnig gæti aukin eldvirkni á Reykjanesi valdið enn frekari efnahagslegum skaða með áherslu á enn frekari stuðning frá hinu opinbera. Þá liggur fyrir talsverð óvissa erlendis þar sem spenna ríkir í alþjóðasamskiptum og stríðsrekstur er viðvarandi. Alþjóðleg niðursveifla gæti til að mynda dregið úr útflutningseftirspurn og lækkað verð á útfluttri hrávöru.
Þá skal hafa í huga að óvissan getur legið í báðar áttir, þ.e. að hagvöxtur gæti orðið meiri en gert er ráð fyrir í forsendum fjármálaáætlunar. Stefna um að auka fjölbreytni í efnahagslífinu á Íslandi er farin að skila árangri á ýmsum sviðum svo sem í líftækni, fiskeldi, skapandi greinum og margvíslegri nýsköpunarstarfsemi. Ýmis tækifæri eru fyrir hendi til að efla efnahagslífið enn frekar með arðsömum fjárfestingum, bættri menntun, rannsóknum og verðmætasköpun í hátæknigreinum og á öðrum sviðum.
Á síðastliðnum árum hefur hagvöxtur hér á landi verið mun meiri en á hinum Norðurlöndunum. Árið 2021 var verulegur hagvöxtur á öllum Norðurlöndum en fór svo að hægjast á í hagkerfum Norðurlandanna árið 2022 nema á Íslandi þar sem hagvöxtur var mjög hár. Á síðasta ári var hagvöxtur á hinum Norðurlöndunum hógvær og samdráttur í Finnlandi og Svíþjóð. Hins vegar er áætlað að hér hafi verið verulegur hagvöxtur og það skal svo tekið fram að árið 2020 var meiri samdráttur hér á landi en á hinum Norðurlöndunum.
Samtals er hagvöxturinn á þessu tímabili 19%, eins og áður kom fram, og er miklu meiri á Íslandi en í nágrannalöndunum. Næst á eftir kemur Danmörk með 12% og Finnland er með 3%, sem er reyndar svipað og í mörgum Evrópulöndum.
Verðbólga var orðin allveruleg á öllum Norðurlöndunum árið 2022 þar sem Ísland skar sig ekki úr. Hins vegar hefur verðbólgan hér á landi verið seigari og hélt áfram að hækka í byrjun árs 2023 en á sama tíma var verðbólgan farin að lækka á hinum Norðurlöndunum. Seigari verðbólga ásamt miklum krafti og hagvexti í íslensku efnahagslífi hefur leitt til þess að hér á landi er mun fastara taumhald í peningastefnu eins og kemur fram í dálkinum með meginvöxtum í töflunni í nefndaráliti.
Frumjöfnuður hins opinbera á Íslandi var á góðu róli miðað við Evrópuríkin fyrir Covid-19 faraldurinn. Á árunum 2020 og 2021 var hallinn hins vegar mjög mikill. Hins vegar minnkaði hallinn mjög mikið árið 2022 og áætlað er að frumjöfnuður árið 2023 hafi verið jákvæður um 90 milljarða kr.
Stjórnarflokkarnir hafa verið saman í ríkisstjórn síðan árið 2017 og á þeim tíma hafa orðið miklar breytingar á samsetningu og þróun ríkisútgjalda. Útgjöld til helstu málaflokka velferðarmála, svo sem heilbrigðismála og fjölskyldumála, hafa verið stóraukin á tímabilinu. Á sama tíma hefur verið mikill stuðningur við nýsköpun og rannsóknir sem hefur skilað miklu til að tryggja hagvöxt og auka samkeppnishæfni atvinnulífsins.
Stefnumörkun að baki áætlunarinnar kemur skýrt fram þegar fjárlög ársins eru borin saman við árið 2029 sem er síðasta ár áætlunarinnar. Þá er mesta hækkunin í milljörðum talið hjá sjúkrahúsþjónustu, eða 23,5 milljarðar kr., bæði vegna raunhækkunar og aukinna framlaga til byggingar nýs Landspítala. Næstmesta hækkunin, eða 17,2 milljarðar kr., er hjá málefnum öryrkja sem skýrist af áætlaðri heildarendurskoðun kerfisins sem leiðir bæði til einföldunar og til verulegrar hækkunar framlaga til örorkulífeyrisþega. Í þriðja lagi hækka framlög til málefna aldraðra um 15,7 milljarða kr. í samræmi við áætlaða fjölgun aldraðra á næstu árum. Þessi hækkun væri um 5 milljörðum kr. hærri ef ekki kæmi á móti að ellilífeyrisþegar nú eru með mun hærri tekjur frá lífeyrissjóðum heldur en þeir sem fóru á lífeyri fyrir nokkrum árum.
Framlög til hjúkrunarheimila hækka um 11,9 milljarða kr. og er það í samræmi við stefnumörkun um uppbyggingu hjúkrunarheimila á næstu árum.
Eins og kom fram í inngangskaflanum bárust 33 umsagnir og nefndin vill þakka öllum þeim aðilum kærlega fyrir. Umsagnir eru lykilþáttur í því verkefni nefndarinnar að rýna áætlunina til fulls. Í áliti þessu er sérstaklega fjallað um umsögn fjármálaráðs en aðrar umsagnir eru einnig mikilvægar og sér þess m.a. stað í breytingartillögum meiri hlutans.
Meðal þess sem fjölmargir umsagnaraðilar nefndu voru áskoranir í ríkisfjármálum sem tengdust sjálfbærni í ljósi þess að þjóðin eldist og nauðsynlegt að sjálfbærni til lengri tíma sé til staðar. Einnig viðruðu umsagnaraðilar áhyggjur af óútfærðu aðhaldi og fyrirhugaðri aðhaldskröfu á komandi árum, t.d. varðandi löggæslu.
Aðeins um umsögn fjármálaráðs, sem var stofnað með lögum nr. 123/2015. Vakin er sérstaklega athygli á umsögn ráðsins í nefndarálitum um fjármálaáætlanir. Hlutverk fjármálaráðs er að leggja mat á hvort fjármálastefna og fjármálaáætlun fylgi þeim grunngildum sem fram koma í 6. og 7. gr. laga um opinber fjármál. Ráðið er sjálfstætt í störfum sínum og setur sér sjálft starfsreglur.
Í samantekt ráðsins er m.a. bent á eftirfarandi atriði:
Staða opinberra fjármála og efnahagslífs á Íslandi er góð í samanburði við flest önnur lönd í Evrópu. Fjölbreytni atvinnulífs hefur aukist, kaupmáttur vaxið og atvinnuleysi er lágt, jöfnuður er mikill og lífskjör almennt með því besta sem þekkist meðal nágrannaþjóða okkar. Þá eru skuldir hins opinbera ekki mjög háar í alþjóðlegum samanburði en vaxtakostnaður er þó hár.
Ráðið telur mikið hafa áunnist varðandi gerð og framsetningu áætlana um opinber fjármál. Sömuleiðis telur ráðið að skoða ætti gaumgæfilega kosti og galla þess að taka upp útgjaldareglu, sem ég mun fjalla betur um á eftir í nefndarálitinu, til að auka festu í opinberum fjármálum.
Helsta gagnrýni beinist að því að útgjaldastig ríkisfjármála sé hátt. Þrátt fyrir að Covid-19 sé lokið sjást þess tæpast merki að útgjöld í heild sinni hafi lækkað í samræmi við brottfall tímabundinna aðgerða vegna viðbragða við áhrifum heimsfaraldursins. Samanburður við Norðurlöndin sýnir að öll ríkin gáfu vel í útgjöldin árið 2020 til að bregðast við faraldrinum en hérlendis hefur sú útgjaldaaukning ekki gengið til baka í sama mæli og í öðrum ríkjum Norðurlandanna.
Eins og í fyrri umsögnum hefur ráðið áhyggjur af sjálfbærni opinberra fjármála til lengri tíma litið. Það telur jákvætt að stjórnvöld ætli að bregðast við með því að leggja áherslu á atvinnugreinar með hærri framleiðni. Einnig er talið draga úr gagnsæi að nokkur verkefni ríkissjóðs fara um sjóðstreymi í formi eiginfjárframlaga og sjást því ekki á gjaldahlið fjárlaga.
Önnur umsögn sem mér finnst vert að ræða hér er álit Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem birti álit sitt 22. maí sl. Það helsta sem meiri hlutinn vill vekja athygli á er að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, AGS, telur að með aðhaldssamri stjórn efnahagsmála hafi tekist að ná að draga úr innlendu og erlendu ójafnvægi í þjóðarbúinu sem skapaðist í kjölfar heimsfaraldursins. Það staðfestir í raun það sem við höfum haldið fram undanfarin ár með aðhaldssömum fjárlögum.
Markmið stjórnvalda í opinberum fjármálum eru viðeigandi en líklega er frekari aðgerða þörf til að ná fram því aðhaldi sem fyrirhugað er á tímabili áætlunarinnar.
Endurupptaka fjármálareglna árið 2026 gefur tækifæri til að endurskoða hönnun þeirra svo að tryggja megi að fjármálastefna sé bæði sjálfbær og stuðli að stöðugleika. AGS mælir með því að skipta núverandi afkomureglu um heildarjöfnuð út fyrir reglu sem setur opinberum útgjöldum takmörk.
Virðulegur forseti. Nú langar mig að víkja máli mínu að helstu áherslumálum meiri hluta fjárlaganefndar sem koma fram í nefndaráliti meiri hlutans. Meiri hlutinn vill sérstaklega árétta það meginmarkmið áætlunarinnar að með vexti hagkerfisins verða ríkisfjármálin sjálfbær og heildarjöfnuður A1-hluta ríkissjóðs verður jákvæður árið 2029 án þess að grípa þurfi til sérstakra aðgerða umfram eðlilegt aðhald og hemja með því útgjaldavöxt frekar en að grípa til skattlagningar.
Meiri hlutinn tekur undir margt af því sem kemur fram í áliti fjármálaráðs, sem ég var að fara yfir áðan, um góða stöðu opinberra fjármála hérlendis í samanburði við önnur lönd Evrópu. Telur meiri hlutinn líka að ábendingar ráðsins varðandi útgjaldaþróun kalli á að fjármála- og efnahagsráðuneytið skoði gaumgæfilega hvort ekki sé full ástæða til að taka upp útgjaldareglu til viðbótar við núverandi fjármálareglur. Slíka reglu þarf ekki að lögbinda til að byrja með, heldur er eðlilegt að fá reynslu af því að stýra rammasettum útgjöldum betur áður en lögum um opinber fjármál er breytt. Meiri hlutinn hefur áður bent á kosti útgjaldareglu. Eftir sem áður er nauðsynlegt að taka einnig undir hluta af gagnrýni ráðsins, ekki hvað síst er varðar þróun útgjalda á næstu árum.
Til að vega á móti undirliggjandi útgjaldaþróun telur meiri hlutinn mikilvægt að ýtt verði undir aukna verðmætasköpun atvinnulífsins og að meiri framleiðnivöxtur náist. Stjórnvöld hafa ákveðið að koma á fót sérstöku framleiðniráði sem verði til ráðgjafar um hvernig stuðla megi að aukinni framleiðni sem er undirstaða kaupmáttar og bættra lífskjara.
Í framhaldi af því sem nefnt hefur verið um útgjaldaþróun undanfarinna ára og nauðsyn á útgjaldareglu leggur meiri hlutinn samhliða áherslu á verkefnið um endurmat útgjalda.
Á undanförnum árum hefur verið vaxandi áhersla á að ná fram skilvirkni og auka framleiðni innan ríkiskerfisins. Einn veikleiki rammafjárlagagerðarinnar er sú mikla áhersla sem er á þær fjárhæðir sem eru breytingar milli ára án þess að grunnfjárveitingar, þær sem þegar eru innan ramma, séu endurskoðaðar.
Verkefninu um endurmat útgjalda er ætlað að vega á móti þessum veikleika þar sem tilgangurinn er að greina kerfisbundið útgjöld til tiltekinna verkefna eða málaflokka. Reynsla annarra ríkja er góð og ef vel tekst til skilar endurmatið hagræðingu, bættri forgangsröðun í samræmi við pólitískar áherslur og gleggri yfirsýn yfir verkefni hins opinbera.
Meiri hlutinn hvetur aftur, líkt og í nefndaráliti sínu með fjárlögum 2024, eindregið til þess að áfram verði haldið á þessari braut og þetta starf eflt á öllum sviðum til að ná fram framangreindum markmiðum.
Þessu tengt mun fjárlaganefnd fylgja eftir eftirlitshlutverki sínu með skipulegum hætti og kalla eftir árangursmati einstakra verkefna ríkisins í heild sinni. Komið er inn á eftirlitshlutverkið í nokkrum af eftirfarandi þáttum sem tengjast ýmsum málefnasviðum.
Meiri hlutinn leggur líka áherslu á að í tengslum við verkefnið um að auka framleiðni hérlendis og endurmat útgjalda, eins og kom fram, muni fjárlaganefnd kalla eftir gögnum og greiningum í tengslum við mat á árangri og auknu gegnsæi á endurgreiðslum til fyrirtækja vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar.
Meiri hlutinn mun fylgja því eftir að samfara þessum hækkunum verði unnið að bættri framkvæmd og endurskoðun regluverks. Jafnframt mun nefndin kalla eftir árangursmati aðgerða og óska eftir því að þar komi fram tengsl við aukna framleiðni.
Meiri hlutinn tekur undir það sem fram kemur í 8. rammagrein í greinargerðinni um áherslu á að selja eignir og nota andvirðið til niðurgreiðslu skulda. Þar kemur fram að ríkið er eigandi að 47 félögum, 900 fasteignum og ríflega 400 jörðum. Lögð er áhersla á að þessum áformum verði hraðað og að ráðuneyti leggi áætlanir og tímaramma fyrir fjárlaganefnd.
Ríkissjóður á enn 42,5% hlut í Íslandsbanka og í forsendum fjárlaga 2024 var gert ráð fyrir að selja helming þess hlutar. Meiri hlutinn fagnar því að í fjármálaáætlun 2025–2029 sé gert ráð fyrir sölu á eftirstandandi hlut ríkisins og leggur áherslu á að verkefnið klárist. Það er þó mikilvægt að vel sé staðið að sölunni á næsta ári til þess að auka sjóðstreymi til ríkisins og minnka lánsfjárþörf meðan vaxtastig er hátt. Þá er áhættan við rekstur fjármálastofnana mikil og er nýlegt álit EFTA-dómstólsins um skilmála Íslandsbanka og Landsbankans gott dæmi um það.
Annað atriði sem meiri hlutinn leggur áherslu á er að skoða verkefnið um betri vinnutíma en í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar með fjárlögum 2024 beindi meiri hlutinn því til ríkisstjórnar að koma af stað markvissum mælingum á skilvirkni innan sinna ráðuneyta og undirstofnana í því verkefni, sem ég held að sé mjög mikilvægt að við förum í til þess að reyna að fá betri sýn á það hverju þetta verkefni hefur í raun og veru skilað og hver kostnaðurinn af því hefur verið. Það er betur farið yfir það í nefndarálitinu og ég ætla svo sem ekki að lesa það allt upp hér.
Nefndin hefur rætt við umsagnaraðila um vaxtagjöld ríkissjóðs. Margir benda á að vaxtagjöld ríkissjóðs séu svo há að það hamli möguleika ríkissjóðs til þess að ráðast í nauðsynlegar fjárfestingar. Þá vil ég benda á að á bls. 54 í áætluninni er tafla sem sýnir áætlaða afkomu ríkissjóðs á tímabilinu. Í töflunni má lesa að vaxtagjöld eru áætluð á bilinu 105–123 milljarðar kr. á tímabilinu. Umræddar tölur eru vissulega háar en mikilvægt er að horfa á vaxtajöfnuð í umræðunni um vaxtagjöld og að ekki er um að ræða nettóútgreiðslur á árinu.
Vaxtagjöld samkvæmt áætlun árið 2024 eru 114,2 milljarðar kr. Þar af eru verðbætur sem leggjast við höfuðstól lána 36,5 milljarðar kr. og reiknaðir vextir á lífeyrisskuldbindingar framtíðarinnar eru 18,4 milljarðar kr. Þessar tvær stærðir, tæplega 55 milljarðar kr., eru gjaldfærðar sem vaxtagjöld en koma ekki til greiðslu á þessu ári. Eftir standa greidd vaxtagjöld ársins, 59,3 milljarðar kr., en á móti koma rúmlega 43 milljarðar kr. í vaxtatekjur.
Leggur meiri hlutinn til að í fjármálaáætlun 2026–2030 og síðari fjármálaáætlunum verði að auki birt ný tafla sem sýnir vaxtajöfnuð í nýju ljósi og áætlaðar arðgreiðslur til ríkissjóðs fyrir lesendur til að glöggva sig á.
Mig langar hér að tala um löggæslu og Landhelgisgæsluna. Meiri hlutinn hefur mótað þá stefnu að löggæslan skuli verða undanþegin almennri aðhaldskröfu á tímabili áætlunarinnar. Sérstaða löggæslunnar er með þeim hætti að aðhaldskrafan kallar strax á fækkun starfsfólks meðan aðrar ríkisstofnanir búa við meiri sveigjanleika að einhverju marki. Breytingartillaga um þetta kemur fram í sérkafla.
Veruleg tímabundin fjárveiting, eða 1,5 milljarðar kr., kom fram í fjárlögum 2023 samhliða áætlun um bætta nýtingu fjármagns. Fjárlaganefnd mun óska eftir upplýsingum um skiptingu og nýtingu á árangri af þeirri fjárveitingu til lögreglunnar og sama á við um Landhelgisgæsluna sem einnig fékk verulega einskiptishækkun árið 2024.
Sömuleiðis er gerð breytingartillaga um að aðhaldskrafa á málaflokk Landhelgisgæslunnar falli niður. Báðar tillögurnar eiga við málefnasvið 09 Almanna- og réttaröryggi.
Frá árinu 2017 til 2023 hafa útgjöld til málaflokka er snerta málefni útlendinga ríflega þrefaldast að raunvirði. Á undanförnum árum hefur Ísland fengið hlutfallslega flestar umsóknir um alþjóðlega vernd ef bornar eru saman tölur við hin Norðurlöndin.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að ná tökum á útgjöldum til þessara málaflokka með ýmsum aðgerðum, sem nú þegar eru farnar að hafa áhrif og lækka kostnað hins opinbera verulega. Einnig lagði meiri hlutinn til breytingu á fjárlagafrumvarpi yfirstandandi árs til að bæta skilvirkni og hraða málsmeðferð í útlendingamálum. Vísbendingar eru um að það hafi gengið eftir.
Ferðaþjónustan hefur á undanförnum áratug þróast úr því að vera sumarstarfsemi í heilsársstarfsemi og er ein stærsta útflutningsgrein landsins ásamt því að vera mikilvæg atvinnugrein fyrir gjaldeyrisforða þjóðarbúsins. Hún verður áfram stór þáttur í íslensku atvinnu- og efnahagslífi og er mikilvægt að hún fái tækifæri til uppbyggingar eftir áföll heimsfaraldursins. Lögð hefur verið fram metnaðarfull tillaga um þingsályktun um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030. Bendir meiri hlutinn á að verði þingsályktunartillagan samþykkt sé mikilvægt að verkefnin verði kostnaðarmetin og ávinningur þeirra mældur sé þess kostur.
Meiri hlutinn er með klásúlu er varðar Ríkisútvarpið þar sem framlög til Ríkisútvarpsins hækka samkvæmt sérlögum, með allt öðrum hætti en framlög hefðbundinna A1-hluta ríkisstofnana. Meiri hlutinn telur skynsamlegt að skoðað verði hverjir séu kostir og gallar þess að RÚV verði hefðbundin A1-ríkisstofnun og að framlög til stofnunarinnar verði ákveðin í fjárlögum hvers árs. Það eru bæði kostir og gallar fyrir Ríkisútvarpið að vera ekki óháð sveiflum heldur vera á fjárlögum eins og aðrar stofnanir, þannig að ég held að það sé áhugavert að sjá hvað kemur út úr þeirri skoðun þegar farið verður í hana.
Framlög til háskóla aukast á tímabili áætlunarinnar, með það að markmiði að auka gæði og samkeppnishæfni háskólastarfs. Nefndin hefur áður bent á mikilvægi þess að ráðist sé í gagngera breytingu á fjármögnun háskólanna með breytingu á reiknilíkani, sem er síðan 1999, og fjármögnunin árangurstengd. Þannig er betur tryggt að samkeppnishæfni háskóla og rannsóknarstarfs sé aukin hvað varðar gæði kennslu, rannsóknarvirkni og samfélagslega þátttöku. Leggur meiri hlutinn því áfram áherslu á að áformin gangi eftir.
Meiri hlutinn tekur undir áherslur ráðherra um frekari sameiningu og samstarf á milli háskóla og fagnar nýlegum áföngum í þeim efnum, t.d. milli Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum, og styður að framlög verði aukin til að bæta húsnæðisaðstöðu Hólaskóla, sem er mjög brýnt að geti orðið samhliða þessum samstarfssamningi. Gerð er tillaga um 350 millj. kr. framlag til háskólastigsins til að tryggja aðstöðu fyrir starfsemi námsbrauta í hestafræðum og eldis- og rannsóknaraðstöðu fyrir Hólaskóla.
Ég er að renna út á tíma, virðulegur forseti, þannig að ég ætla að fara aðeins yfir breytingartillögu meiri hlutans. Meiri hlutinn leggur til breytingartillögu af fjórum tilefnum. Í fyrsta lagi til að fylgja eftir stefnumörkun sinni frá því í fyrra um að vegna sérstöðu lögreglunnar og Landhelgisgæslunnar verði ekki reiknað aðhald á þann málaflokk í fjármálaáætlun. Yfirgnæfandi hluti útgjalda lögreglunnar fer í launagreiðslur og aðhald kallar á fækkun starfa í löggæslu sem er í andstöðu við stefnumörkun meiri hlutans.
Í öðru lagi er sambærileg tillaga sem nær til dómstólanna og er þá tekið tillit til athugasemda dómstólanna, sbr. einnig 21. gr. laga um opinber fjármál þar sem sérstaklega er fjallað um samráð við dómstólasýsluna við mótun tillagna um fjárheimildir til dómstólanna.
Í þriðja lagi er gerð tillaga um opnun sendiráðs á Spáni. Spánn hefur rekið sendiskrifstofu á Íslandi frá árinu 2019 en Ísland er eina ríkið innan NATO sem ekki hefur sendiráð í Madríd. Ísland hefur eingöngu verið með kjörræðismenn á Spáni, en sendiherra gagnvart ríkinu setið í París. Spánn er fjórða fjölmennasta ríki Evrópusambandsins og um 3.500 Íslendingar eiga fasta búsetu á Spáni, en að auki eru mörg þúsund Íslendingar sem dvelja þar tímabundið sem ferðamenn og dvalargestir árið um kring. Mikið álag er á kjörræðismönnum Íslands á Spáni vegna verkefna sem tengjast þessum hópi. Kostnaðaráætlun vegna opnunar sendiráðs nemur um 132 millj. kr. á ári, fyrir utan fyrsta árið þegar stofnkostnaður bætist við og miðað er við 177 millj. kr. gjöld árið 2025.
Í fjórða lagi er gerð tillaga um að leggja til fjármagn til að hefja uppbyggingu í Skagafirði í tengslum við Háskólann á Hólum sem verður hluti af háskólasamstæðu með Háskóla Íslands. Tillagan miðast við að fjármagna uppbyggingu húsnæðis fyrir eldis- og rannsóknaraðstöðu fyrir fiskeldis- og fiskalíffræðideild auk þess að tryggja betur aðstöðu námsbrautar í hestafræði.
Þessar tillögur eru reifaðar í nefndarálitinu.
Virðulegur forseti. Ég hef lokið að fara yfir, að vísu á hundavaði, nefndarálit meiri hlutans sem að þessu sinni var óvenjulangt. Ég vil í lokin þakka kollegum mínum og félögum í fjárlaganefnd fyrir veturinn, gott samstarf og góða nærveru á fundum. Þótt við séum ekki alltaf sammála um allt hefur vinnan í nefndinni gengið afskaplega vel og vil ég sérstaklega þakka fyrir það. Ég vil sömuleiðis þakka þeim fjölmörgu gestum sem hafa komið fyrir nefndina til að ræða fjármálaáætlun sem og öllum þeim sem sendu inn umsóknir varðandi fjármálaáætlun 2025–2029. Það skiptir miklu máli. En að öðru leyti þakka ég fyrir mig og segi máli mínu lokið um fjármálaáætlun 2025–2029.