154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:32]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Kristrún Frostadóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. formanni fjárlaganefndar fyrir ræðuna og framsöguna og þakka jafnframt fyrir gott samstarf í vetur. Ég hefði viljað að við hefðum komist fyrr að með umræðu um þetta mikilvæga mál vegna þess að við erum kannski svolítið á hundavaði hérna. Það breytir ekki því að það eru ýmis atriði sem við getum tekið til umræðu núna. Og mig langaði kannski að leggja áherslu á fjölda þeirra atriða sem Framsóknarflokkurinn hefur lagt áherslu á en fá ekki framgang í þessari fjármálaáætlun, og að miklu leyti til er það vegna fjármögnunar. Sum af þessum atriðum eru skrifuð inn í fjármálaáætlun en því fylgir ekki fjármagn. Mig langar að nefna listamannalaun sem við vorum að samþykkja sem virðast koma á kostnað sviðslistasjóðs. Ferðamannastefnan er ófjármögnuð. Samgönguáætlun féll í vor vegna fjármögnunarvanda. Þjóðaróperan datt út vegna þess að listamannalaunin komu út en samt eru þau í raun ekki fjármögnuð nema á kostnað annarra sviðslista sem hafa líklega ekki fengið það samtal og munu fá það samtal í haust. Síðan sjáum við í heilbrigðisráðuneyti Framsóknarmanna að það er stórkostlegur skortur á tækjakaupum hjá Landspítalanum.

Nú bætist við tillaga hér í lokin frá meiri hlutanum um að afnema aðhaldskröfu lögreglu og Landhelgisgæslunnar, sem er hið besta mál, og mikilvægt mál, en sú tillaga kemur líka inn án fjármögnunar. Eftir allt þetta er það svo að halli er á ríkissjóði þrátt fyrir að fjármögnunin sé ekki til staðar fyrir þessum þáttum níu ár í röð.

Mig langaði að spyrja hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson hvað honum finnst um stöðu þessara verkefna og hvort honum þyki ábyrgt að leggja fram mál í þinginu sem eru að fást samþykkt núna án þess að fjármögnun sé fyrir þeim.