154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:34]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil bara þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa fyrirspurn. Það er að sjálfsögðu alltaf þannig, þegar við sem erum í stjórnmálum erum með verkefni sem við viljum að komist í gegn á okkar vakt, helst sem fyrst, að í einhverjum tilfellum þurfum við að vera þolinmóð og bíða og ekki komast allir hlutir inn í einu. Það þýðir ekki þar með að við eigum að gefast upp á þeim.

Hv. þingmaður nefnir heilbrigðismálin. Það er nú þannig að það er enginn málaflokkur sem hefur vaxið eins að raunvirði á síðustu árum og heilbrigðismálin. Þetta eru tugir milljarða. Ég er ekki með töluna í kollinum, þessu er aðeins farið að slá saman hjá mér, ég biðst velvirðingar á því. Það er nú ekkert langt síðan ég var með þessa tölu á hreinu en ég man hana ekki, en það eru töluvert margir milljarðar sem búið er að bæta þarna inn að raunvirði. Að sjálfsögðu erum við að bregðast við þeirri stöðu sem þar er uppi. Er hægt að gera betur? Já, að sjálfsögðu er hægt að gera betur. Heilbrigðiskerfið er einn af þessum þáttum í okkar samfélagi sem við getum endalaust bætt. Við getum endalaust gert betur og við þurfum að halda vöku okkar vel í þeim verkefnum.

Varðandi þau verkefni sem hv. þingmaður talar hér um, listamannalaunin, þjóðaróperu, ferðamálastefnu — við skulum ekki gleyma því að þetta eru stór og mikilvæg verkefni. Samgönguáætlun, ég er sammála hv. þingmanni í því, ég held að það verði stórt verkefni fyrir okkur að klára hana í haust. En þetta er fjármálaáætlun. Við förum í fjárlögin í haust.