154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:36]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Kristrún Frostadóttir) (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Ég held að við getum öll tekið undir það að þetta eru stór og mikilvæg verkefni. En þegar verið er að samþykkja hér stór verkefni, og þegar þverpólitísk sátt er um það, þá er líka vilji til þess að þau verði að veruleika. Og þau verða ekki almennilega að veruleika nema þau séu fjármögnuð, nema sú leið sé farin að auka enn frekar á halla ríkissjóðs í umhverfi hárra vaxta og hárrar verðbólgu. Mig langar því að varpa þessari spurningu til hv. þingmanns: Hvað er hægt að taka til bragðs þegar staðan er sú að hér er verið að leggja fram ófjármagnað verkefni? Er vilji meðal Framsóknarmanna í þessari ríkisstjórn til að leggja til tekjuaukningu? Eða sér hann svið þar sem hægt er að skera hressilega niður til að fjármagna þessa þætti? Hvað þykir hv. þingmanni um tillögur Samfylkingarinnar, til að mynda um að sækja meira í auðlindagjöld, loka skattglufum og bara almennt um það sjónarmið að undir mörgum kringumstæðum, sérstaklega í velferðarríki, þá geti það borgað sig að fara ekki í lækkun skatta og grafa undan almannaöryggi heldur tryggja góða þjónustu?