fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Varðandi spurninguna um tekjuaukningu ríkissjóðs eða skattahækkanir þá hefur það verið mín sýn að ég hef meiri tilfinningu fyrir því og meiri trú á því að við eigum að fara þá leið sem við erum að reyna að gera hér, þ.e. að stækka kökuna og fá þannig inn auknar tekjur til ríkissjóðs frekar en að fara í skattlagningu. Það er sú leið sem við erum að reyna að fara í þessari fjármálaáætlun og ég hef trú á því að það muni ganga eftir. Miðað við íslenskt hagkerfi og þær sviðsmyndir sem við höfum uppi þá hef ég trú á því að við munum komast í gegnum þetta á þann hátt.