fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Forseti. Byrjum aðeins á heilbrigðiskerfinu en hv. formaður fjárlaganefndar talar um hversu mikil aukning hefur verið í fjárheimildum til heilbrigðiskerfisins. Stór hluti af þeirri summu er náttúrlega uppbygging á nýjum Landspítala sem alla jafna á að dreifast yfir árin en hrúgast dálítið mikið á undanfarin ár og næstu ár og er kannski óeðlilegt að telja í aukningarhlutann sem slíkan því að við þurfum að sinna fjárfestingarverkefnum jafnt og þétt. Af og til þegar kemur svona fjárfestingarþörf, eins og með nýjum Landspítala, er það í raun eitthvað sem við ættum að vera búin að safna eða dreifa á komandi ár í kjölfarið og jafna í raun út fjárfestingarhlutfallið sem slíkt. Það kemur einmitt fram í umsögn Landspítalans að fjárfestingar án nýja Landspítalans hafa lækkað í tíð þessarar ríkisstjórnar og í raun vegna tækja líka og ýmissa annarra verkefna upp á um 3 milljarða, eða rúma 2,5 milljarða sem framlög til rekstrartækja, viðhalds og þess háttar eru búin að rýrast, sem nýjar framkvæmdir við nýjan Landspítala brúa dálítið og fela í raun inni í tölunum. Ég velti fyrir mér hvernig meiri hlutinn getur á heiðarlegan hátt komið og sagt að þetta sé aukning þegar tölurnar frá Landspítalanum, sem þau sýna okkur, segja aðra sögu, nema hv. þingmaður, formaður fjárlaganefndar, haldi einhverju öðru fram um tölur þeirra sem væri þá áhugavert að heyra.