154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:41]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa fyrirspurn. Það sem ég var að tala um hér áðan, og sneri að framlögum til heilbrigðismála, er einfaldlega sú staðreynd að frá 2017 til 2029, miðað við þá áætlun sem við erum að ræða, er hækkun til sjúkrahúsþjónustu 67,4 milljarðar, (Gripið fram í.) þ.e. framlög til heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa, heilsugæslu og sérfræðilækna, hækka um 31,8 milljarða, framlög til hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu hækka um 24,7 milljarða og vegna lyfjakostnaðar um 24,4 milljarða. Það eru þessar tölur, virðulegur forseti, sem ég er að benda á þegar ég er að segja að við höfum sett aukið fjármagn og aukinn fókus á heilbrigðismálin og aukna fjárveitingu þar inn.