fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Forseti. Í staðinn fyrir að endurtaka bara það sem ég var að gagnrýna þá væri ágætt að svara spurningunni. Ég er að segja að bygging nýja Landspítalans feli í rauninni lækkun á framlögum vegna tækja, viðhalds, reksturs o.s.frv. Það er það sem ég er að spyrja um. Það væri ágætt að svara því, vinsamlegast.
Hitt sem mig langar til að spyrja um er að við síðustu fjárlög, og í rauninni þarsíðustu fjárlög, þá kom meiri hluti fjárlaganefndar með ýmsar tillögur til aukinna fjárheimilda vegna ýmiss konar verkefna hér og þar um landið, ýmist vegna þess að ekki hefði verið tekið tillit til þeirra hjá ráðuneytunum, að þau hefðu fallið niður og þess háttar. Þess vegna langar mig til að spyrja: Er gert ráð fyrir þessum fjárveitingum í fjárlagarömmum fyrir þessa fjármálaáætlun eða eigum við að búast við breytingartillögum í 2. umræðu fjárlaga fyrir næsta ár?