154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:44]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ef ég skildi hv. þingmann rétt þá snerist spurningin um það hvort fjárlaganefnd myndi gera breytingar við 2. umræðu fjárlaga til að bæta inn í verkefni sem ekki eru til staðar í áætluninni. (Gripið fram í: Nei, nei, sem var bætt við síðast.) Nú er það náttúrlega þannig, hv. þingmaður, að ég get ekki staðið hér og svarað fyrir það hvaða verkefni verða inni eða úti í áætlun sem við höfum ekki séð enn þá og ekki hefur verið birt. Fjárlaganefnd hefur í gegnum tíðina komið að því að bæta inn í verkefni sem nefndin hefur talið að væri þörf á og myndi styrkja annars vegar þá þau svæði þar sem verkefnin eru á og eins atvinnulífið á þeim svæðum og menningarstarf og ýmislegt. Því hvort það verði í fjárlögum 2025 get ég bara ekki svarað hér.