fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. formanni nefndarinnar fyrir framsögu sína. Ég tek undir með hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur, ég held að það hefði verið betri bragur á því að umræða um þetta mál, sem er nú í samhengi hlutanna stærsta mál þingvetrarins, hefði fengið þá virðingu að vera fyrr á dagskrá en reyndin er. Það er langt síðan við afgreiddum þetta mál úr nefnd og það er með algjörum ólíkindum að við séum fyrst hér núna degi fyrir ætluð þinglok að ræða það sem er þungamiðjan í öllu okkar starfi hér.
Mig langaði að spyrja hv. formann út í þessa nálgun hans varðandi hina svokölluðu mjúku lendingu sem við heyrum mikið um og kannski í því samhengi að spyrja hann út í þátt og hlutverk stjórnvalda í því að við náum mjúkri lendingu en ekki magalendingu. Svo það sé ekki afgreitt sem eitthvert raus stjórnarandstöðunnar eingöngu þá vil ég vísa í orð fjármálaráðs, óháðra sérfræðinga sem hafa farið í það að rýna þessa áætlun og tvo punkta þar sérstaklega; þátt stjórnvalda um að ná niður verðbólgu og aðhald sem þátt í því, að það sé ótrúverðugt að setja fram tölur en svo 27 milljarða í aðhald en segja ekkert um það, sýna á engan hátt á spilin um það hvernig á að gera það, útfæra það með öðrum orðum ekki. Og svo hinn þátturinn, sem eru þá orð fjármálaráðs sem ég skil sem svo og ég held að við skiljum þau öll sem svo að meiri hluti fjárlaganefndar sé utan við færi laganna þegar kjarasamningar eru útfærðir með þeim hætti sem þeir eru. Hvert er hlutverk stjórnvalda til að tryggja hina mjúku lendingu? Lítur meiri hlutinn svo á að hann sé utan við íslensk lög um fjármögnun kjarasamninganna?