154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:47]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirspurnina. Varðandi mjúku lendinguna sem okkur er tíðrætt um þá er það að sjálfsögðu þannig að þau fjárlög sem við höfum verið að leggja hér fram, bæði fyrir árið 2023 og sérstaklega fyrir árið 2024, miða náttúrlega að því að ná hér niður verðbólgu og vaxtastigi í landinu, að ná að kæla hér hagkerfið með þeim hætti að draga úr eftirspurn og þar af leiðandi draga úr verðbólgu og verðbólguvæntingum. Þetta hefur tekist að ákveðnu marki. Við sjáum bæði í umsögn fjármálaráðs og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að þau taka undir það með okkur að þetta hafi nú tekist að ákveðnu marki. Eins og ég svaraði hv. þm. Kristrúnu Frostadóttir hér áðan þá hef ég trú á því að okkur geti tekist þetta ætlunarverk okkar með þessum hætti, að ná þessu. Hins vegar er það alveg ljóst að verðbólgan hefur verið þrálátari en við reiknuðum með. Hún hefur verið erfiðari. Ég hef nú samt trú á því að þessi mjúka lending muni nást, kannski aðeins seinna en við ætluðum en ég held að við séum með þessari fjármálaáætlun á réttri leið og við höfum markað mjög ákveðna stefnu í þá átt sem er mjög mikilvægt upp á allar væntingar.