fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni orðin. Þau voru hins vegar á engan hátt svör við spurningum mínum, annars vegar um álit fjármálaráðs um þessar aðgerðir, sem þau töluðu um sem ótrúverðugar, og hins vegar um skilyrði laga varðandi fjármögnun kjarasamninga. Hvorugri spurningunni var svarað.
Hér hefur aðeins verið rætt um útgjöld til heilbrigðismála og þetta er auðvitað viðvarandi stef fyrir fjárlaganefndinni. Ég ætla samt að ítreka að þótt ég sé að tala um heilbrigðismálin þá óska ég eftir svörum við spurningunum tveimur. Mér hefur fundist vanta dálítið upp á það í hinni pólitísku umræðu að eitt eru hærri útgjöld og hitt er spurningin: Er þjónustustigið hærra? Hvað fáum við fyrir peningana? Hvað er að gerast með peningana? Og hvað við erum að litlu leyti að byggja ákvarðanir okkar um útgjöld á gögnum því að veruleiki fólks í landinu er auðvitað sá sem hann er: Biðlistar eftir þjónustu heimilislæknis, biðlistar barna eftir greiningum, biðlistar aldraðra eftir hjúkrunarrými o.s.frv. Þar held ég að við þurfum að fara að ræða það á mun hreinskiptnari hátt en við höfum verið að gera hver áhrif mjög, mjög, mjög mikillar fólksfjölgunar á Íslandi eru varðandi það að auðvitað hækka útgjöldin.