fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Ég skal reyna að svara þessum spurningum hér á þeirri 51 sekúndu sem ég á eftir. Aðhaldskrafan og aðhaldið sem er talað um í þessari fjármálaáætlun verður útfært í fjárlögunum eins og hefur verið gert. Við höfum útfært aðhaldið í fjárlögum hvers árs og ég á ekki von á öðru en að það verði eins núna, að við munum fara í það að útfæra nákvæmlega með hvaða hætti inn í hvaða málaflokka þetta aðhald kemur í fjárlögunum. Það er hins vegar alveg rétt og ég er algerlega sammála hv. þingmanni og það er komið mjög vel inn á í nefndaráliti meiri hlutans þetta með endurmat útgjalda, í hvað við erum að eyða fjármununum. Við tökum þann pól í hæðina að við erum alltaf að horfa á viðbæturnar en grunnfjárhæðirnar sem við erum að setja innan ramma eru ekki skoðaðar. Ég er alveg sammála hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að fjárlaganefnd setjist vel yfir það og skoði í hvað við erum að setja þessa peninga. Erum við að fá þá þjónustu út sem við viljum?