fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Forseti. Ég ætla að byrja á því að fara aðeins yfir breytingartillögurnar sem ég er með en þær eru í nokkrum liðum. Gert er ráð fyrir því að tekjuskattur einstaklinga og staðgreiðsla lækki um 3,3 milljarða árlega, að fjármagnstekjuskattur hækki um 15 milljarða árlega og að kolefnisgjald hækki um 8 milljarða árlega. Þarna er um að ræða breytingar á persónuafslætti og fjármagnstekjuskatti sem rennur þá til sveitarfélaga. Það er í rauninni tekjuskattsþrepið sem slíkt á fjármagnstekjuskatti sem vantar upp á milli millitekjuskattsþrepsins og hátekjuskattsþrepsins. Eiginlega allir sem eru með fjármagnstekjur eru í hæsta skattþrepinu en þeir greiða samkvæmt lægra skattþrepi heldur en allir aðrir bara af því að þeir geta flokkað tekjur sínar sem fjármagnstekjur en ekki bara venjulegar launatekjur. Gert er ráð fyrir því að í staðinn fyrir að það renni beint í ríkissjóð þá fái sveitarfélögin sitt útsvar þarna á móti. Þannig að þetta jafnast út. Þarna eru sveitarfélög að fá útsvar af fjármagnstekjum sem slíkum, nokkurn veginn, við getum orðað það þannig. Kolefnisgjaldið er svo skiljanlegt miðað við að þau sem menga eiga að borga.
Síðan er verið að tala um almanna- og réttaröryggi. Þar eru þó nokkrar breytingar til lækkunar í heild sinni. Það er aðallega vegna þess að verið er að fella niður sóknargjöld og framlög til þjóðkirkjunnar. Þjóðkirkjan og önnur lífsskoðunarfélög geta einfaldlega bara rukkað sín eigin sóknargjöld. Þetta á ekki að vera neitt flókið.
Á móti er hins vegar gerð tillaga um að auka framlög til héraðssaksóknara til að efla embættið og tryggja málsmeðferðarhraða. Einn milljarður fer aukalega í árlegt framlag til lögregluembættanna til að fjölga ársverkum í almennri löggæslu og rannsóknarvinnu og svo alls 24 milljarðar á tímabilinu til byggingar samhæfingarmiðstöðvar viðbragðsaðila. Það kom upp mygla í núverandi húsnæði og þess vegna er einfaldlega ekki hægt að fresta þessari uppbyggingu. Þrátt fyrir aukningu til lögreglunnar og samhæfingarmiðstöðvarinnar þá er um að ræða 0,5 milljarða í lækkun til málefnasviðsins, mest á fyrsta árinu, um 4 milljarða. Það er af því að minni fjárhæð fer í uppbyggingu samhæfingarmiðstöðvarinnar á næsta ári heldur en á árunum þar á eftir.
Síðan er það uppbygging hjóla- og göngustíga um allt land. Það er 1 milljarður til þess að flýta framkvæmdum við hjóla- og göngustíga vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, 1 milljarður í sömu verkefni í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og svo 1 milljarður aukalega í sama verkefni annars staðar á landinu.
Hér er gert ráð fyrir því að hækkun framlaga til loftslagssjóðs sé um 800 milljónir, að gjaldið sem er tekið fari bara beint í loftslagssjóð. En svo er verið að leggja hann af þannig að það fer víst í Loftslags- og orkusjóð þegar allt kemur til alls, ef það mál er samþykkt.
Síðan er kannski áhugavert, og ég fer betur yfir það í nefndarálitinu sem slíku, hvernig útgjöldin skiptast í sjúkrahúsþjónustu. Þar er skipting vegna framlags til viðhalds og nýframkvæmda, vegna tækjakaupa, stafvæðingar, kennslu og þjónustutengdrar fjármögnunar og svo almenn aukning til heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa. Einnig er lagt til að á næsta ári verði 9 milljarðar veittir til þess að breytingin á almannatryggingalögunum gildi frá áramótum eins og var búið að lofa. Ég vil einfaldlega halda því til haga. Að lokum er svo hækkun framlaga til eflingar fræðslu vegna hinseginleika.
Við skulum eiga hér notalega 25 mínútna samverustund þar sem ég renni aðeins yfir skoðanir mínar á þessari blessuðu fjármálaáætlun. Ég legg þetta einfaldlega svona upp: Þessi fjármálaáætlun er drasl. Hendið henni í tætarann og byrjið upp á nýtt. Þetta er ekkert mikið flóknara en það. En við skulum eyða 25 mínútum í að útskýra aðeins af hverju. Það skiptir alveg máli að útskýra af hverju. (Gripið fram í: Er það?)
Það má svo sem alveg hrósa ríkisstjórninni fyrir ágætisgreiningu á stöðu efnahagsmála í fjármálaáætlun en greiningin er pínulítið rósrauð eins og gengur og gerist. Ríkisstjórnin og stjórnsýslan hæla sjálfum sér og sjálfshólið er dálítið eðlilegt. En á sama tíma og heimsfaraldur geisaði, náttúruhamfarir hafa orðið, húsnæðisvandinn er þarna enn þá, álag í heilbrigðis- og menntakerfi, skortur á hjúkrunarheimilum, ófullnægjandi þjónusta í betrunarmálum, úreld stjórnarskrá, fólk í fátækt sem er enn að bíða eftir réttlæti o.s.frv., þá er rósrauða myndin sem lagt er upp með pínulítið skrýtin. Það vantar pínulítið upp á viðurkenningu á stöðunni hjá fólki sem er ekki bara meðaltal. Við þurfum stundum að horfa á jaðrana sem slíka og spyrja okkur hvort þeir séu að stækka eða minnka. Við þurfum almennt séð ekki að hafa áhyggjur af fólki sem er einhvers staðar í kringum meðaltalið. Það er ekkert sérstaklega verkefni okkar þegar allt kemur til alls, nema náttúrlega ef jaðarinn er orðinn það stór að hann nær yfir á fólk sem er með meðaltekjur. Þá þurfum við kannski að fara að horfa allillilega í kjöltu okkar og velta fyrir okkur hvað við erum að gera hérna. Það er svo sem alveg hægt að segja að allt sé æðislegt hérna á Íslandi að meðaltali. Það er jú rosalega mikill jöfnuður á Íslandi miðað við önnur lönd. En vandamálin eru samt enn til staðar. Það hjálpar engum að segja bara: Sjáið þið ekki veisluna? Við höfum nú upplifað slæma notkun á þeim frasa.
Ríkisstjórnin er nefnilega hlutdræg og hælir sjálfri sér heilan helling. Ég er í minni hluta, í stjórnarandstöðu, og kannski er eðlilegt að ég sé gagnrýnni heldur en gengur og gerist. Þess vegna ákvað ég að spyrja hlutlausan aðila, svona óbeint alla vega. Umsagnaraðilar eru vissulega hagsmunaaðilar líka og ég sem gagnrýnandi á ríkisstjórnina gæti tvímælalaust lagt aukamerkingu í umsagnir þeirra og gætt þær aukakryddi eða eitthvað svoleiðis en það sem ég gerði hins vegar var að taka öll erindi umsagnaraðila og skella þeim bara í eitt stykki gervigreind. Ég spurði gervigreindina: Hverjar eru ábendingar umsagnaraðila og hver er gagnrýni umsagnaraðila? Hún skiptist að vissu leyti nokkuð jafnt á milli húsnæðismála, samgöngumála, umhverfismála, nýsköpunarmála, löggæslumála, orkumála, menntamála, heilbrigðismála og svo almennt um fjármál og skattamál. Ég spurði í gervigreindina: Í hvaða málaflokkum er helst verið að gera athugasemdir? Og þetta voru málaflokkarnir sem voru gagnrýndir. Þá spurði ég gervigreindina nánar: Hver er helsta gagnrýnin í hverjum málaflokki fyrir sig o.s.frv.? Og hérna tekur gervigreindin það einfaldlega saman. Ég legg alla vega ekki aukamerkingu í erindi umsagnaraðila.
Það er alveg merkilegt hversu sammála umsagnaraðilar eru og við eigum að hlusta á það, sama hvaða skoðanir þeir hafa og hversu rétt eða rangt þeir hafa fyrir sér. Það eru atriði hjá umsagnaraðilum sem eru ekki hárnákvæm, gott og blessað, en þetta er samt ákveðin tilfinning sem við þurfum að hlusta á og svara en ekki bara svara til baka: „Heyrðu, meðaltalið er æðislegt. Það er rosalegur hagvöxtur og okkur líður æðislega,“ og sleppa t.d. stýrivöxtunum. Þegar maður talar um efnahagsmál við ríkisstjórnina er rosalega algengt að það flakki dálítið mikið hvaða eiginleikar hagkerfisins eru notaðir til að segja hversu æðisleg staðan er. Eitt árið er það hagvöxturinn og annað árið hversu lágir vextirnir eru, þriðja árið er það samanburðurinn við Norðurlöndin og alls konar svoleiðis. En einhvern veginn er það alltaf heildarmyndin sem skiptir máli.
Þegar maður ber saman stöðuna á Norðurlöndunum í töflu nefndarálits meiri hluta, þar sem við erum með 19% hagvöxt og 9,25% stýrivexti og blöndu af einhverjum mörgum prósentum, þá spyr maður sig: Í hvaða landi myndi ég vilja búa ef markmiðið mitt væri t.d. stöðugleiki? Ekki á Íslandi. Þar erum við að hoppa fram og til baka, upp og niður, hægri og vinstri og ég veit ekki hvað og hvað. Það er erfitt að búa í svoleiðis landi. Ég myndi miklu frekar vilja búa þar sem stöðugleikinn væri í alvöru til staðar þó að það þýddi ekki 19% hagvöxt á nokkrum árum. Hagkerfið sem slíkt er dýnamískt. Aukinn hagvöxtur þýðir vissulega aukin gæði til skiptanna en á móti kemur líka ákveðin verðbólga og aukinn kostnaður og þess háttar og það er hætt við að þegar þessum auknu gæðum er skipt sé þeim ekki skipt jafnt. Verðbólga er skipting á gæðum. Stýrivextir eru skipting á gæðum. Verðbólga skiptir gæðunum þannig að hún tekur ráðstöfunarfé frá heimilum og færir til þeirra sem eru að selja. Þegar allt kemur til alls taka stýrivextir fé frá lántakendum og færa í hendur þeirra sem veita lánið eða eyða því út úr kerfinu. Það er mismunandi hvernig þetta er gert en það gerist yfirleitt ekki.
Þegar allt kemur til alls þá voru ýmsir aðrir aðilar í þessari blessuðu samantekt frá gervigreindargreiningunni en sameiginlegt áhyggjuefni umsagnaraðila var að það vantar auknar fjárveitingar til húsnæðismála, samgöngumála, menntamála og heilbrigðismála til að mæta vaxandi þörfum samfélagsins. Það þarf samkeppnishæft skattkerfi og það er mikilvægt að leggja áherslu á að einfalda og lækka skatta til að auka hvata til nýsköpunar og fjárfestinga sem stuðla að hagvexti. Svo er það bætt aðgengi og stuðningur fyrir viðkvæma hópa. Þar leggja umsagnaraðilar áherslu á að tryggja aðgengi að grunnþjónustu fyrir viðkvæma hópa, þar á meðal fatlað fólk, öryrkja og tekjulægri hópa, og svo sjálfbærni og umhverfisvernd. Mikil áhersla er lögð á fjárfestingar í sjálfbærum og umhverfisvænum lausnum, sérstaklega í orkumálum og samgöngum. Þessar ábendingar sýna að þörf er á markvissum aðgerðum til að tryggja jafnvægi í fjármálum ríkisins og bæta lífsgæði íbúa landsins.
Ég get alveg tekið undir þessa greiningu gervigreindarinnar á umsögnum og erindum umsagnaraðila. Flókna atriðið er náttúrlega alltaf hvernig eigi síðan að fara að því, hvernig eigi að útfæra samkeppnishæft skattkerfi og þess háttar, það er alltaf áhugavert. Svo kom líka smá greining á áliti fjármálaráðs.
Að lokum skelli ég mér aðeins í fjármálaáætlunina á mannamáli. Til að fara aðeins yfir hana aftur þá var tvennt sem kom sérstaklega fram í yfirferð nefndarinnar og umsögnum. Eins og áður sagði þá er þessi áætlun drasl og á bara að fara beint í tætarann en þarna voru tvær umsagnir sem voru sérstaklega áhugaverðar, annars vegar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og hins vegar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Það var merkileg glæra í kynningu til okkar og svo kom ný og uppfærð glærukynning þar sem búið var að kippa einni glæru út. Þar talar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið um risastór og þjóðhagslega mikilvæg verkefni sem kalla á rúma 25 milljarða í aukna fjárþörf árin 2025–2029. Ég er með þetta í breytingartillögunum hjá mér. Þarna er talað um 8,5 milljarða vegna náttúruvár, 14 milljarða til loftslagsmála, næstum því milljarð í orkuskipti, 1,8 milljarða í minjavernd og vernd menningararfs og 7,5 milljarða í fráveitumál. Talað er um að það vanti 35 milljarða en það eru útvegaðir 4,5 milljarðar og alla vega endar það í þessum 25 milljörðum. Þið reiknið það út eins og þið viljið.
Í háskólamálunum var samanburður á því hversu mikið tekjur af háskólanema þurfa að hækka til að verða sambærilegar við samanburðarlönd miðað við árið 2019. Það þurfti 19,2% hækkun á Íslandi til að ná samanburðarlöndunum, meðaltali Norðurlandanna. — Það á að vera í breytingartillögunum hjá mér, ég held að það hafi örugglega náðst inn, jú, háskólastigið er hérna. — Þetta eru samtals um 13 milljarðar þegar allt kemur til alls. Þetta er í rauninni til að sýna samanburðinn. Það er verið að bera saman hagvöxtinn og segja að við séum miklu betri hagvöxt og þess háttar heldur en Norðurlöndin á sama tíma og það vantar 13 milljarða í háskólamálin til þess að við séum samanburðarhæf við Norðurlöndin. Við getum ekki haldið í þau rök að okkur gangi svo miklu betur en Norðurlöndunum með tilliti til hagvaxtar og á sama tíma sleppt þeim þá í menntamálunum þar sem okkur gengur miklu verr. Ef okkur er að ganga svona mikið betur efnahagslega heldur en Norðurlöndunum hvers vegna erum við þá að standa okkur svona miklu verr í menntamálunum? Það er rosalega einföld spurning þegar allt kemur til alls. Jú, það eru einhverjir milljarðar þarna sem eru stórir með tilliti til grunnskólastigsins en það er náttúrlega hjá sveitarfélögunum og við eigum í smá vandræðum með stærðarhagkvæmni og þess háttar sem útskýrir að mestu leyti hversu mikið dýrara grunnskólakerfið er hér miðað við í öðrum Norðurlöndum, hvernig efnahagsstigið er hvað það varðar, laun og þess háttar. Háskólar eru því það sem ég ber saman hérna og það sem ráðherra ber saman.
Að lokum var það greining Landspítalans sem segir mjög skýrt, með leyfi forseta:
„Miðað við mannfjöldaþróun er ljóst að eftirspurn eftir þjónustu spítalans muni aukast um 2,2% til 2,3% árlega á komandi árum og því metur spítalinn raunvöxt í þjónustuþörf á næstu árum, fimm árum um 12%. Því þarf fjárveiting til spítalans að hækka sem nemur raunvexti til að mæta fyrirsjáanlegri þjónustuþörf.
Landspítali hefur síðustu ár skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu en vert er að hafa í huga að ákveðnum lykilþáttum starfseminnar hefur ekki verið sinnt sem skyldi.“
Lykilþáttum hefur ekki verið sinnt sem skyldi. Það að við sleppum því að sinna lykilþáttum eins og við myndum vilja færir okkur í jákvæðan rekstur spítalans. Merkilegt, er það ekki? Í umsögninni er gerð greining á þróun fjárheimilda og kostnaðar vegna húsnæðis, tækjakaupa, stafvæðingar, kennslu og þjónustu. Þetta er DRG-greiningin og samkvæmt þeirri greiningu vantar 326 milljónir í viðhald eða nýjar framkvæmdir vegna húsnæðis, þ.e. utan nýja Landspítalans; 838 milljónir vegna tækjakaupa og fyrirséð er að það þurfi að kaupa tæki aukalega vegna nýja Landspítalans fyrir 16 milljarða. Ekki var farið í nánari greiningu á því hvort það væri inni í fjármálaáætluninni eða ekki og það er því ekki hluti af breytingartillögunum hjá mér. Einnig vantar rúmlega 500–600 milljónir árlega vegna stafvæðingar, um 300 milljónir vegna kennslu og 700 milljónir vegna þjónustutengdrar fjármögnunar, þ.e. DRG-kerfisins. Að lágmarki er um að ræða nálægt 3 milljörðum sem vantar upp á samkvæmt greiningum Landspítalans.
Þau rök koma alltaf fram að allir vilji bara meiri og meiri pening. Hv. formaður fjárlaganefndar sagði hérna áðan: Við getum alltaf notað meiri pening. En þá er eiginlega verið að gera ráð fyrir því að allir þeir forstöðumenn og forstjórar stofnana sem koma og leggja fram rekstraráætlanir sínar og svoleiðis séu bara einfaldlega að ljúga um áætlanir sínar, að þeir séu að biðja um meira heldur en lögum samkvæmt er nóg til að sinna verkefnum stofnunarinnar, lögbundnum verkefnum hennar. Þetta eru venjulega forstjórar og forstöðumenn sem voru skipaðir af stjórnvöldum sem svo trúa þeim ekki. Merkilegt, er það ekki? Auðvitað á að greina rökstuðning fyrir öllum fjárbeiðnum mjög ítarlega til að styðja hvers vegna er beðið um þá upphæð sem er lögð til. Það þarf jú að forgangsraða verkefnum og yfirleitt er ekki hægt að standa undir metnaðarfyllstu áætlunum. Þess vegna þarf svo sem ekki að skoða þær fjárheimildabeiðnir sem eru lagðar beint fyrir framan okkur heldur þarf oft að skoða heildarsamhengið. Þegar beðið er um aukafjárheimild upp á 3 milljarða á ári ofan á 100 milljarða rekstur, sem dæmi, þá getur vel verið að það sé svigrúm upp á 3 milljarða innan þeirra 100 milljarða sem þegar er heimild fyrir.
Þar er komið að hinni röksemdafærslunni eða bullinu sem heyrist oft í fjárlaganefnd; sparnaði með hagræðingu. Það er algengt að það eigi að galdra fram einhverja peninga með því að hagræða í rekstri. Á þeim undanförnu árum sem ég hef verið í fjárlaganefnd veit ég ekki hversu oft ég er búinn að heyra að þessi töfraformúla eigi bara að redda öllu. En afraksturinn af öllum þessum metnaðarfullu áformum um hagræðingu virðist hvergi vera til staðar þrátt fyrir sameiningar og endurskipulagningu og ég veit ekki hvað og hvað. Með öðrum orðum þá breytist magnið af grautnum í pottinum í rauninni ekki neitt þegar verið er að hræra í honum. Það skiptir engu máli. Þú hrærir í grautnum og já, einhver grjón færast til en magnið er áfram það sama.
Ég efast hins vegar ekki um að hægt sé að sinna lögbundnum verkefnum á skilvirkari hátt miðað við ýmislegt sem hefur komið fram en merkilegt nokk er oft ekki brugðist við þegar verið er að benda á alls konar rugl sem virðist vera í gangi. Þá er einhvern veginn enginn dreginn til ábyrgðar. Mjög merkilegt. Við þurfum alltaf að hugsa um hvort tveggja, eða byrja alla vega á því að hugsa: Er ég að sinna lögbundnum verkefnum? Og ég þarf að vera rosalega harður á því að rökstyðja hvernig grunnur lögbundinna verkefna er fjármagnaður og hvernig þjónustu vegna lögbundinna verkefna er sinnt. Það er kjarninn í því sem við erum að gera hérna. Við erum að samþykkja lög sem búa til réttindi og skyldur fyrir fólk og stofnanir og ríkið o.s.frv. Að framfylgja þeim réttindum og sinna þeirri þjónustu kostar pening og við þurfum að vera rosalega hörð á því að það sé útskýrt vel og vandlega af hverju kostnaðurinn er sá sem hann er. En þegar ég sendi fyrirspurnir til ráðuneytis eða stofnunar og spyr hvort hún geti sundurliðað fyrir mig lögbundnu verkefnin sem hún er með og sagt mér hvað hvert þeirra kostar, þá er svarið bara: Nei, ég veit það ekki. Ég fékk 2 milljarða á síðasta ári og ég bara notaði þá. Það er ekki boðlegt.
Ofan á þennan rekstur lögbundinna verkefna, sem er kjarni þess sem við gerum hérna, er síðan stefna stjórnvalda og hún er lykillinn að því sem verið er að leggja fram í fjármálaáætlun. Þar koma stjórnvöld segja: Óháð öllum þessum lögbundnu verkefnum sem við erum með þá höfum við áform um að gera eitthvað rosalega spennandi. Það getur verið að auka réttindi, sem mun þá kosta eitthvað meira. Það getur verið verkefni um stafvæðingu sem mun skapa svigrúm til að vinna þessi lögbundnu verkefni á skilvirkari hátt eða eitthvað þess háttar. Þessa stefnu stjórnvalda þarf að rökstyðja mjög vel með valkostagreiningu, ábatagreiningu, kostnaðargreiningu og forgangsröðun. Það þarf að sýna okkur svart á hvítu hvernig á að ná árangri. Hvaða árangri ætlum við t.d. að ná með fara í stafvæðingu hjá Landspítalanum? Hvað mun það kosta? Er hægt að gera það á annan hátt sem er ódýrari? Eða jafnvel dýrari en dýrari á betri hátt? Það gerist líka. Það er þá ákveðin fjárfesting til enn lengri tíma sem sparar kannski fram yfir gildistíma fjármálaáætlunar. Segjum að á næstu tíu árum muni dýrari framkvæmd leiða til betri ávöxtunar eða ábata en ódýrari leiðin muni leiða til minni ábata en hraðar. Við þurfum alltaf að vega og meta þetta og það er ekkert af því gert.
Það var eitt sem umsagnaraðilar sögðu sem ég fann að var eitthvað sem við þurfum svo nauðsynlega á að halda. Ég er búinn að hafa þá tilfinningu mjög lengi og það er kannski ástæðan fyrir því að Píratar eru yfirleitt á þingi. Það þarf einfaldlega bara að henda öllu í ruslið og byrja upp á nýtt. Það var bara tillagan. Hvað myndi gerast ef í staðinn fyrir að við værum alltaf að bæta hér og þar inn í fjárlögin eða fjármálaáætlunina sömu upphæð plús einhverja verðlagsþróun og eitthvað svoleiðis þá myndum við einfaldlega bara henda öllu í tætarann, vita ekki neitt um það hvernig reksturinn var síðast og byrja með fjármálaáætlun og fjárlög frá núlli. Þá þyrftu allar stofnanir og öll ráðuneyti að koma og útskýra fyrir okkur frá grunni af hverju þau þurfa hverja einustu krónu sem þau þurfa að nota. Ég held að það væri mjög heilbrigt. Þetta var athugasemd sem kom frá umsagnaraðilum og ég bara tek undir hana.
Það er ýmislegt sem þarf að gera upp á nýtt. Það er ömurlegt að þessi umræða komi núna, tveimur vikum eftir að fjárlaganefnd kláraði þetta mál úr nefnd, því að það er svo margt annað sem við þurfum í alvörunni að ræða. Við þurfum að ræða allar hinar mismunandi sviðsmyndir. Við þurfum að ræða uppskrift að betra samfélagi sem finnst m.a. í nýrri stjórnarskrá, sem finnst í velsældarhagkerfinu sem núverandi ríkisstjórn, eða fyrrverandi ríkisstjórn í rauninni, hefur að vissu leyti unnið að, það eru ýmsir mælikvarðar á vef Hagstofunnar um það, en það er ekki verið að nota neitt af því í fjármálaáætluninni, sem er alveg fáránlegt.
Svo er það samfélagssáttmálinn. Samfélagssáttmálinn er áhugaverður því að hann finnst t.d. í kjarasamningum. Þar er skipting gæða ákveðið lykilatriði og ríkið er hluti af þeim samfélagssáttmála með t.d. velferðarkerfunum. Ég var með fyrirspurn þar sem ég var að skoða barnabætur og þróun barnabóta á undanförnum árum. Ef við skoðum t.d. barnabætur árið 2018 þá var meðaltal á foreldra rétt rúmlega 600.000 kr., á núvirði 846.000 kr., fyrir börn yngri en sjö ára. Árið 2022 eru þetta tæplega 800.000 kr. á núvirði, þ.e. næstum því 50.000 kr. verðrýrnun bara miðað við verðlagsþróun, ekki miðað við launaþróun, þá væri þetta eitthvað fáránlegt. Það sem ríkisstjórnin hefur gert hvað varðar barnabætur er að upphæðir þeirra hafa rýrnað í verði. Þar með er ríkisstjórnin í rauninni að grafa undan samfélagssáttmálanum, sem sagt velferðarhlutanum í samfélagssáttmálanum sem oft er reynt að gera samning um í kjarasamningum. Og þegar ríkisstjórnin gerir það þá koma kröfur í kjarasamningum um aðkomu ríkisins til þess einmitt að uppfæra velferðarkerfið aftur, sem var áður hluti af kjarasamningum, hluti af kaupum og kjörum vinnandi fólks.
Það að ríkisstjórnin sé að hrósa sér fyrir aðkomu ríkisins að kjarasamningum er bara einfaldlega byggt á óheiðarlegum forsendum. Ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin þarf að koma að kjarasamningum er að hún hefur rýrt velferðarkerfin í virði. Hún hefur einfaldlega rýrt kjör fólks sem stólar á velferðarkerfið sér til aðstoðar með t.d. barnabótum. Og þegar slík launalækkun er í rauninni í gangi vegna ákvarðana ríkisstjórnarinnar þá er mjög eðlilegt að kjarasamningsaðilar komi og banki á hurðina og segi: Heyrðu, þið verðið að laga þetta. Þið þurfið að koma aðeins aftur og laga þetta og setja þetta aftur í fyrra horf. Þegar við hugsum aðeins um það hvernig ríkisstjórnin hrósar sér af aðkomu í kjarasamningnum þá skulum við einfaldlega hugsa um að það er henni sjálfri að kenna.