fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Forseti. Já, þetta er rosalega áhugavert svar sem kemur þarna frá gervigreindinni af því að þetta bergmálar í raun gagnrýnendur Pírata og er einmitt svona klassísk gagnrýni á staðfestu, velferðarmálin o.s.frv. Allir sem þekkja okkur ættu að átta sig á því að þetta eru einmitt þau mál sem við leggjum helst áherslu á og erum einna staðföstust í. Það er þá eðlilegt að gagnrýnin reyni að ráðast á okkur þar til þess að grafa undan því sem við reynum að koma á framfæri og það er spes að upplifa einhvern veginn þannig samantekt á gagnrýninni. Mér finnst það mjög upplýsandi því að ég held að af breytingartillögunum að dæma t.d. þá ætti það að vera vel sýnilegt að við erum einmitt að leggja áherslu á velferðarmálin. Þar af leiðandi er tiltölulega augljóst að samantektin á gagnrýninni er einfaldlega röng, ef við skoðum það bara faktískt, út frá því sem stendur nákvæmlega hérna.
Hvað draslið mitt varðar, eða það sem ég kalla drasl, þá talar hv. þingmaður um að vera sammála mér um aðferðafræði þó að hann sé ekki endilega sammála mér í pólitík. En það er eiginlega ástæðan fyrir því að ég segi að þetta sé drasl og ég hef sagt það undanfarin sjö ár að fjármálaáætlunin sé drasl af því að það er ekki verið að fylgja aðferðafræðinni sem lagt er upp með í lögum um opinber fjármál. Það er ekki kostnaðar- og ábatagreining í fjármálaáætluninni. Samkvæmt lögum á hún að vera þar. Það er ekki valkostagreining. Samkvæmt lögum á hún að vera þar. Og þegar það vantar eitthvað sem er augljóslega skilyrði samkvæmt lögum þá finnst mér mjög augljóst að tala um viðkomandi afurð sem drasl.