154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:27]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir að eiga orðastað við mig varðandi þessa þætti. Það sem ég átti kannski við er að það er ýmislegt sem ég og hv. þingmaður erum sammála um þegar kemur að aðferðafræði. Eitt af því sem við höfum rætt og ég hef bent á, m.a. í nefndinni, er hvernig sum sveitarfélög hafa nýtt sér það tækifæri að geta kannski farið aðeins dýpra í fjármál sveitarfélagsins yfir einhvern tíma. Sumir hafa nefnt þá aðferðafræði að byrja með autt blað. Ég sé enga sérstaka ástæðu fyrir því af hverju ríkisfjármálin geti ekki fallið undir slíka aðferðafræði. Þingmaðurinn nefnir auðvitað í sínu nefndaráliti gríðarlega viðamiklar hugmyndir um kerfisbreytingar, m.a. að það sé að hans mati kominn tími til þess að leggja fjármála- og efnahagsráðuneyti hreinlega niður. (BLG: Heyr, heyr.) Mér finnst það nú fulldrastískt. (Gripið fram í.) Ég ætla nú kannski ekki að fara að eiga orðastað við þingmanninn varðandi stjórnarskrána eða fleiri þætti sem hann nefnir en það er vissulega svolítið lýsandi fyrir Pírata að þeir eru róttækir hvað þetta varðar. Ég verð auðvitað að vera samkvæmur sjálfum mér þegar ég segi að sumt í þeim málflutningi get ég tekið undir þótt ég geti alls ekki tekið undir þessar tillögur. Ég held að það sé góðra gjalda vert að skoða útfærsluna á því að reyna að fara dýpra í málaflokkana. Við höfum verið að tala um það hér í þessari fjármálaáætlun og í meiri hlutanum að það sé mikilvægt að stækka kökuna, að það sé mikilvægt að við aukum fjölbreytni í atvinnulífi og reynum að fá meiri tekjur inn, að þetta byggi ekki allt á því að leggja aukna skattbyrði á fólk. En það eru líka tækifæri í því að nýta peningana betur. Er þingmaðurinn ekki sammála mér í því að þetta er eitt af því sem við getum skoðað sem verklag?