fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Forseti. Það er alveg rétt. Svo ég fari aðeins aftur í fyrra andsvar, um að nota gervigreindina, þá horfði hv. þingmaður einmitt aðeins yfir öxlina á mér og við vorum að skoða útgjöld Landspítalans í gegnum síðuna Opnir reikningar ríkisins. Þar kom fram að ræsting var fimmti stærsti kostnaðarliðurinn í hverjum mánuði, alla vega þeim mánuðum sem við skoðuðum og við náðum þessu mjög auðveldlega út með gervigreindinni og röðuðum upp í mjög auðskiljanlega töflu. Þarna eru hins vegar ekki innri reikningar spítalans. Mér finnst mjög áhugavert að svona ytri reikningar spítalans við birgja og svoleiðis séu aðgengilegir en við í fjárlaganefnd getum ekki skoðað innri reikninga og fengið þar greiningar á því hvernig staðan er í raun og veru og þróunin á henni. Ég held að þetta sé eitthvað sem við ættum að beita okkur aðeins fyrir og gætum kannski notað gervigreindina til að hjálpa okkur að súmmera upp á einhvern hátt. Varðandi þá aðferðafræði að hafa autt blað þá er það hluti af tillögu minni um að leggja niður fjármálaráðuneytið og í raun bara fjárlaganefnd líka. Ábyrgð hvers ráðherra fyrir sig á sínum málaflokki, þeim lögum sem eru undir í hverju ráðuneyti, þurfa að fylgja fjárheimildir. Og ef ráðherra á að bera ábyrgð á t.d. lögum um almannatryggingar og þess háttar, af hverju ber sami ráðherra ekki ábyrgð á fjárheimildum fyrir þeim lögum? Af hverju er það einhver annar ráðherra sem getur sagt: Nei, fyrirgefðu, þú færð 300 milljónum minna til að reka fangelsiskerfið af því að mér finnst það og þó að þú berir ábyrgð á rekstri fangelsiskerfisins þá ætla ég ekki að láta þig fá pening til að reka það. Það er ástæðan. Það kannski endar á því að það kemur eitthvert nýtt og öðruvísi fjármálaráðuneyti í staðinn. (Forseti hringir.) En ég held við þurfum að byrja á því með auðu blaði.