fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu sem verður að mörgu leyti að teljast mjög áhugaverð. Og svo var það þarna undir lokin að leggja þetta bara allt af, þennan strúktúr sem við erum með. Ég tek ekki undir að um drasl sé að ræða, það sem við erum að ræða hér, og ég tek heldur ekki undir það að það eigi að setja þetta skjal í pappírstætara. Við höfum setið lengi saman í hv. fjárlaganefnd og ég held að við séum báðir sammála um að aginn í ríkisfjármálum hefur vaxið mjög eftir að lög um opinber fjármál voru samþykkt í þinginu í desember 2015 og tekin upp 2017. Það væri þá kannski bara næst að spyrja gervigreindina að því hvort það sé ekki rétt. Það ber öllum saman um að svo sé. Þannig að ég ætla kannski að spyrja hv. þingmann að því hvort svo sé. Svo er það kannski umræðan sem við föllum svolítið í, þegar við höfum verið að ræða fjármálaáætlun í gegnum tíðina, að það er farið í einstaka málaflokka, það er farið í það sem við erum að ræða að hausti í fjárlögum fyrir næstkomandi ár. Það hefur svolítið verið viðkvæðið hér. Enn um sinn ætla ég að velja mannlegu greindina þegar við erum að eiga við þessi mál, ekki láta gervigreindina taka yfir þessa umræðu. Það er mín mannlega greind og skynjun á þessu að agi og skilvirkni fjárlaganna hafi verið bætt verulega með hverju ári, raunverulega. Maður hefur séð þetta þróast mikið frá 2017, í vinnu, allt í kringum fjármálaáætlun.