fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Forseti. Við þurfum kannski að byrja á því að skilja aðeins hvað gervigreindin er. Hún er ekkert rosalega greind, hún tekur það sem hún lærir af og endurtekur það á vissan hátt. Það er því ekkert rosalega gagnlegt að spyrja gervigreindina hvort aukinn agi hafi orðið vegna laga um opinber fjármál af því að hún mun bara taka það sem hún hefur heyrt þannig séð og enduróma það að vissu leyti en á hlutlausan hátt. Og það er kannski munurinn, þ.e. á hlutlausan hátt með tilliti til þess að hún tekur þá hlutdrægni sem hún heyrir og endurómar hana bara en hún bætir ekki við aukagildismati. Það er kannski munurinn eins og sást hér á skoðun hennar á vanda Pírata, hún endurómaði aðallega gagnrýni Sjálfstæðisflokksins á Pírata. En það er mikilvægt að klára röksemdina sem ég er að færa fram, að þetta sé drasl og það eigi að henda þessu í tætarann. Síðasta setningin þar er: Að byrja upp á nýtt. Það er lykilatriði sem m.a. umsagnaraðilar töluðu um, að tilfinning þeirra væri einmitt sú að aginn væri orðinn minni, að það væri í raun farið frjálslegar með fjárheimildir en áður. Það væri minna gagnsæi í þeim fjárheimildum sem þingið væri að veita af því að þær gætu farið fram og til baka. Höfum við ekki upplifað það með samgönguáætlun núna? Við samþykktum samgönguáætlun hér á Alþingi upp á framkvæmdir hér og þar, þær enda í einhverju — það var verið að tala um 9 milljarða tilfærslu innan samgönguáætlunar á milli svæða. Það er verið að fara mjög frjálslega með þær fjárheimildir sem eru kannski innan málaflokka eða málefnasviða, haldast þar, (Forseti hringir.) en Alþingi hefur í raun enga stjórn á fjárheimildum innan málaflokka.