fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Eins og hv. þingmaður kemur inn á þá er mikilvægt að mannlega greindin ráði hér för. Mér fannst því svolítið kostulegt að mörgu leyti að fara að spyrja gervigreindina að því hvernig við stöndum að okkar fjármálaáætlun, hver er skorturinn og annað. Það er nákvæmlega þetta sem hv. þingmaður kom inn á, hún metur bara eitthvað sem er búið að setja inn á netið og tekur það saman, þannig að nákvæmlega það sama á við. Það sem ég er að tala um með aga og skilvirkni og slíkt — í þessari fjármálaáætlun hefur náðst árangur, sérstaklega eftir Covid, erfiða tíma, með frumjöfnuðinn og svo heildarjöfnuðinn. Það er ekkert víða í Evrópu sem þetta er að nást. Við stöndum tiltölulega vel. Það er í raun það sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og fjármálaráðherra komu inn á. Í stóru myndinni stendur þetta ágætlega hjá okkur. Auðvitað koma að þessir aðilar sem við erum að óska eftir að komi hingað með athugasemdir sínar og ábendingar, það er verið að tína til ábendingar og þannig bætum við okkur. En í stóru myndinni höfum við verið að bæta og styrkja, held ég, alla vinnu í kringum fjármálaáætlunina. Við hv. þingmaður höfum, í vinnu fjárlaganefndar í gegnum tíðina, verið sammála um ýmislegt þó að fólk haldi kannski annað, enda svona smánördar í hugsun, í tölfræðinni, en ég vil ekki gleyma hagfræðinni og öðru sem aðrir í okkar nefnd hafa kannski meira vit á, t.d. varðandi neyslu. Það eru áhugaverðar tölur sem eru að koma fram varðandi neyslu í maí, að innanlandsneysla milli ára hafi hækkað um 2% í maí en neysla erlendis um 12%. (Forseti hringir.) Þetta eru ótrúlega merkilegar tölur og sýna raunverulega hversu góð lífskjör eru í þessu landi. (Forseti hringir.) Og það á ekki að tala það niður. (Forseti hringir.) Við eigum að halda áfram að bæta verðmætasköpun, auka samkeppnishæfni og vinna áfram í þeim farvegi.
(Forseti (ÁsF): Forseti minnir þingmenn á ræðutímann.)