fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Það er mantran, það þarf líka að gagnrýna hana. Maður þarf að spyrja sig: Á hún við? Er hún til staðar? Við erum ríkt land, það efast enginn um það og vegna þess er staðan almennt séð góð. En það sem ég var að tala um í ræðunni minni, í framsögunni hér áðan, er að við þurfum að horfa á hvernig horfurnar eru að þróast á jaðrinum. Eins og ég segi, við þurfum ekkert að hafa áhyggjur af fólki í meðaltekjum hérna, það er ekki vandinn. Vandinn liggur annars staðar og á mörgum stöðum þar sem við sjáum ekki, og Seðlabankinn sér ekki, í þróun á yfirdrætti og þess háttar. Og það eru varúðarraddir að berast frá mörgum stöðum sem enginn virðist vera að hlusta á, ekki í þeim skilningi að verið sé að sýna fram á það með gögnum hvort þetta séu réttar ábendingar eða ekki, og af því ber að hafa áhyggjur.
Ég dró fram erindi umsagnaraðila í gegnum gervigreind til að bæta ekki mínu gildismati á umsagnir þeirra. Það er þess vegna sem ég spurði gervigreindina um erindi umsagnaraðila. Ég er hlutdrægur gagnvart stjórnvöldum, ég er í gagnrýnishlutverki. Stjórnvöld eru hlutdræg gagnvart sjálfum sér. Umsagnaraðilar eru einnig hlutdrægir gagnvart eigin hagsmunum. En það hjálpar ekki ef ég les umsagnir fjármálaráðs eða annarra umsagnaraðila út frá mínu sjónarhorni. Þá get ég bætt hlutdrægni minni við ályktanir og niðurstöður umsagnaraðila en ég slepp við það með því að spyrja gervigreindina um það hvað umsagnaraðilar eru að segja. Það er mikilvægt að hafa þessa nákvæmni í huga þegar kemur að því af hverju ég nota gervigreindina til að greina umsagnirnar.