154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:41]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég ætla að fá að ítreka það sem ég sagði í fyrra andsvari, þakkir mínar til nefndarinnar eftir veturinn. Það var að mörgu leyti mjög ánægjulegt starf þó að fólk hafi vissulega tekist á en oftast á bara mjög uppbyggilegan hátt. Mig langar að fara yfir helstu atriði úr nefndaráliti mínu sem tekur á fjármálaáætlun fyrir næstu árin. Lykilatriðin sem ég ætla að ná að fara yfir hér í dag snúa í rauninni að stóru myndinni frekar en stökum málaflokkum. Ég vil segja aftur það sem ég nefndi áður, að mér þykir miður að við séum að ræða þetta klukkan fjögur á föstudegi á næstsíðasta degi þingloka. Án þess að gera lítið úr anda hv. þingmanna þá held ég að það hafi aðeins dregið úr honum og þetta er bara mál sem er búið að leggja rosalega mikla vinnu í, bæði af hálfu meiri hluta og minni hluta, og verðskuldar mikla umræðu en svona hefur þetta nú farið. Ég legg áherslu á að aftast í nefndarálitinu eru athugasemdir við stök málefnasvið.

Við erum að fara hér yfir fjármálaáætlun sem er lögð fram af uppstokkaðri ríkisstjórn þar sem núna er í forystu formaður Sjálfstæðisflokksins. Ég verð að segja alveg eins og er að eftir yfirferð okkar í nefndinni á áætluninni þá situr eftir sú tilfinning að það leiði enginn landið í raun. Fyrrverandi forsætisráðherra talaði gjarnan um sjálfa sig sem verkstjóra í teymi þar sem einstaklingar tóku ákvörðun hver í sínu horni og að verk hennar væri fyrst og fremst að samhæfa ákvarðanir ráðherra. Í stað þess að vinna eftir einhvers konar heildstæðri áætlun fyrir land og þjóð þá hefur öll þessi orka, eins og okkur hefur birst á undanförnum dögum og vikum, svo innilega farið í að púsla saman stökum ákvörðunum sem kannski styrkja hvern flokk og hvern ráðherra en gerir það líka að verkum að það er svolítið erfitt að fá heildarmynd og vilja til að bera ábyrgð á heildarmyndinni. Að mínu mati er þetta ástæðan fyrir því að við erum núna með ójafnvægi í íslensku samfélagi. Skútan er án skipstjóra.

Besta dæmið um þetta eru aðgerðir ríkisins í kjarasamningum á almennum markaði. Ég vil taka það fram að Samfylkingin hefur barist fyrir því að leitað verði annarra leiða en að ráðast í miklar launahækkanir til að bæta kjör launþega. Pólitík jafnaðarflokka gengur út á það að beita tilfærslukerfunum og jafna aðgengi að velferðarkerfinu og uppbyggingu félagslegs húsnæðis til að draga úr þrýstingi á vinnumarkaði. Ég hef fjallað ítarlega um þetta í fyrri álitum, m.a. í nefndaráliti um frumvarp til fjárlaga fyrir yfirstandandi ár. Ástæðan fyrir því að það er mikilvægt að halda þessu til haga og skilja hvers vegna þetta er gert er að þegar laun hækka þá hækka þau óháð aðstæðum fólks, fólks innan sama launaflokks í sömu vinnu. Aðstæður hinna verst settu eiga það því til að knýja fram ýtrustu kröfurnar. Þarna getur ríkið og hið opinbera dregið verulega úr þörf á launahækkunum af því að kjarabætur úr tilfærslukerfunum taka mið af aðstæðum fólks. Slíkar bætur leka ekki um kerfið enda eru þær mjög persónubundnar, ólíkt prósentuhækkunum sem eiga það til að smitast upp allan launastigann. Þessi skilningur er lykilatriði ef það er vilji hér meðal ráðamanna til að líta til Norðurlandanna sem fyrirmyndar á sviði vinnumarkaðar og efnahagslegs stöðugleika, þó að ég ætli ekki að gera lítið úr því að vissulega eru áskoranir þar eins og annars staðar í heiminum.

Forseti. Hið ótrúlega átti sér stað í byrjun þessa árs, nokkrum vikum eftir að fjárlög fyrir árið höfðu verið samþykkt af ríkisstjórnarmeirihlutanum, að útgjaldahliðin tók gjörsamlega stakkaskiptum. Ríkisstjórnin blés til blaðamannafundar þar sem lofað var 80 milljarða útgjöldum á næstu árum til að liðka fyrir kjarasamningum til fjögurra ára. Þetta eru útgjöld sem fólu m.a. í sér greiðslu vaxtabótaauka og hækkun húsnæðisbóta. Þessi sömu stjórnvöld höfðu nokkrum vikum áður tekið þá ákvörðun í fjárlögum fyrir árið 2024 að henda 5.000 manns út úr sama vaxtabótakerfi og lækka greiðslur til vaxtabóta í heild úr 2,8 milljörðum kr. í 2,1 milljarð kr. og spara þannig ríkinu 700 milljónir sem var tekið fram sem aðhald fyrir árið. Þessi sama ríkisstjórn felldi breytingartillögur okkar í Samfylkingunni um að falla frá þessari ákvörðun og fjármagna þá breytingu með sanngjarnri skattheimtu til að vinna gegn þenslu. Svipaða sögu var síðan að segja um tillögur um að hækka húsnæðisbætur, sem við lögðum fram en voru þá felldar. Þessi ríkisstjórn sneri sér við nokkrum vikum seinna og mætti með vaxtabótaauka upp á 6 milljarða kr. í kerfi sem samkvæmt þeirri áætlun sem hér er fjallað um á að fella niður eftir næsta ár til að skapa svigrúm fyrir fjármögnun þessara sömu kjarasamningsaðgerða. Með öðrum orðum er ríkisstjórnin núna að færa 6 milljarða fram í tímann til að greiða út vaxtabætur á síðustu metrum stjórnarsamstarfsins og fjármagnar aðgerðina með því að fjarlægja svipaða upphæð úr sama kerfi á næsta kjörtímabili. Það er ákvörðun sem þau munu ekki bera ábyrgð á. Svipaða sögu má segja um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hækka húsnæðisbætur um 2,5 milljarða árlega í tengslum við kjarasamninga stuttu eftir að meiri hlutinn á þinginu felldi tillögur okkar í Samfylkingunni um að viðhalda verðgildi húsnæðisbóta. Þessi hækkun húsnæðisbóta var að sjálfsögðu án fjármögnunar.

Forseti. Kjarasamningsaðgerðirnar bera með sér óskipulag og ábyrgðarleysi og þær móta að verulegu leyti þá fjármálaáætlun sem hér er til umfjöllunar. Það virðist enginn vilja bera ábyrgð á umræddum aðgerðum. Forsætisráðherrann sem fór fyrir ákvörðuninni er farinn frá, varla er minnst á aðgerðirnar í umfjöllun meiri hluta fjárlaganefndar, atvinnurekendur hafa skilað umsögn og segjast ósáttir við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að auka útgjöld með slíkum aðgerðum, Alþýðusamband Íslands gagnrýnir í umsögn sinni að engin tekjuöflun hafi komið til móts við útgjaldaaukninguna og Bandalag háskólamanna gagnrýnir að velferðarumbætur séu orðnar hluti af kjarasamningsgerð, enda ættu umbætur á velferðarkerfinu að birtast í stefnu stjórnvalda, í fjárlögum, í fjármálaáætlun, með góðum fyrirvara. Hver stýrir skútunni, forseti? Hún er á reki og hætta er á að núna þegar kosningar nálgast verði enn þá verri ákvarðanir teknar.

Forseti. Ég hef áhyggjur af því að með útspili í tengslum við kjarasamninga hafi ríkisstjórnin skaðað verulega trúverðugleika velferðarstjórnmála. Lykilatriði við framkvæmd velferðaraðgerða í formi viðbóta við barnabætur og húsnæðisbætur og almenns húsnæðisstuðnings er að aðgerðirnar séu fjármagnaðar og hluti af langtímaáætlun, annars valda þær verðbólgu. Það er hætta á að trúverðugleiki slíkrar velferðarpólitíkur laskist ef vanfjármögnun kjaraaðgerða veldur áframhaldandi verðþrýstingi. Þá mæta þau sem trúa ekki á samtryggingu og benda á að aðkoma ríkisins sé alltaf til þess fallin að auka ójafnvægi í hagkerfinu.

Í raun má segja, forseti, að með aðgerðum sínum hafi ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur grafið undan velferðarpólitík í landinu með grundvallarmálamiðlunum. Í fyrsta lagi voru kjarasamningsaðgerðirnar ekki ráðgerðar. Þær voru ekki hluti af stjórnarsáttmálanum heldur í anda viðbragðsstjórnmála sem einkenndu ríkisstjórnina, óháð þeim ráðherrauppstokkunum sem síðar tóku við. Í öðru lagi fylgir óskipulagi og ábyrgðarleysi vangeta til að sækja fjármögnun fyrir stórar velferðaraðgerðir. Það má auðvitað leyfa sér að vona, forseti, að enn einn búhnykkurinn í formi viðbótargjaldeyrisinnflæðis bjargi málum og mái þessi mistök út til skamms tíma, og vafalaust gerir ríkisstjórnin það, en það eru án efa líka einhverjir þarna innan borðs sem hefðu ekkert á móti því að geta lýst því yfir að pólitík í anda jafnaðarmanna gangi ekki upp og fagna ábyrgðarleysinu. Eitt er þó víst, að ítrekað ábyrgðarleysi hefur ýtt undir vantraust á kerfunum okkar sem er það alvarlegasta við stjórnarform undanfarinna sjö ára þó að það glitti blessunarlega í nýtt stjórnarfar og svo gæti farið að þjóðin veldi nýtt upphaf áður en langt um líður.

Ég vil fara aðeins, forseti, frekar yfir aðdraganda þessara aðgerða eins og þær snerta yfirstandandi ár vegna þess að staðreyndin er sú að fjármálaáætlun næstu ára verður fyrir áhrifum af stöðu ríkissjóðs á þessu ári. Við skulum aðeins rifja hér upp að í haust voru kynntar til sögunnar á blaðamannafundi aðhaldsaðgerðir á verðbólgutímum sem námu 17 milljörðum kr. fyrir árið 2024. Ef við teljum frá aðhald á launalið hjá ríkinu þá námu aðhaldsaðgerðir til að hægja á útgjaldavexti 12 milljörðum kr. Nokkrum vikum eftir þetta, nokkrum vikum eftir samþykkt fjárlaga, voru kynntar aðgerðir vegna kjarasamninga sem kosta ríkissjóð 13 milljarða kr. á þessu ári. Aðgerðirnar vinna þannig að fullu á móti öllu því aðhaldi sem samþykkt var af stjórnarmeirihlutanum fyrir jól. Þess utan er ljóst að umræddar aðgerðir fengu enga þinglega umræðu enda hvergi að finna í fjárlögum ársins og enginn vilji til að ræða möguleika á slíku hér fyrir jól. Það er mjög mikilvægt, eins og ég sagði, að varpa ljósi á fjármögnun kjarasamningsaðgerðanna af því að staðan í lok þessa árs, 2024, lekur yfir á stöðu ríkissjóðs á tíma áætlunarinnar. En það sem skiptir meira máli er að vinnulagið varpar ljósi á þá óreiðu sem ríkir við stjórn ríkisfjármála.

Í fjáraukalögum vegna kjarasamninga kemur fram að heildartekjur ársins 2024 séu nú áætlaðar 11 milljörðum hærri en gert var ráð fyrir við samþykkt fjárlaga. Hvers vegna? Annars vegar er það vegna endurmats á afskriftum skattkrafna í samræmi við breytta aðferðafræði fjársýslu og hins vegar vegna hærri arðgreiðslna frá Landsvirkjun. Á mannamáli, forseti, þýðir þetta að ákveðið var að fjármagna kjarasamningsaðgerðir á þessu ári með því að knýja fram hærri arðgreiðslur frá Landsvirkjun sem nema 10 milljörðum kr. Fyrri tillögum stjórnar Landsvirkjunar um arðgreiðslur var breytt úr 20 í 30 milljarða kr. þegar nýr fjármálaráðherra Framsóknarflokksins tók við. Þá felur endurmatið á afskriftum skattkrafna ekki í sér raunverulegt aðhald því að aðeins er um reiknaða stærð í bókhaldi að ræða líkt og fjármálaráð bendir á.

Tvennt birtist okkur hér, forseti. Í fyrsta lagi er enginn vilji, og það væri bara best að viðurkenna það, til að grípa til langtímafjármögnunar á langvarandi aukningu rekstrarkostnaðar. Í öðru lagi ríkir stefnuleysi þegar kemur að auðlindum þjóðarinnar. Fjárhagsstaða Landsvirkjunar er auðvitað mjög góð og fyrirtækið ræður mjög vel við þessar aukaarðgreiðslur en sama ríkisstjórn og klípur nú 10 milljarða kr. eftir hentisemi úr félaginu lagði fyrir nokkrum vikum hér inni fram þingmál um að stofna þjóðarsjóð fyrir arðgreiðslur úr Landsvirkjun sem átti að nýta fyrir áföll en ekki til að greiða fyrir rekstrarkostnað. Nýr hæstv. fjármálaráðherra hefur þrætt fyrir að umrædd viðbótararðgreiðsla hafi áhrif aðhaldsstig og haldið því fram að greiðslan auki jafnvel aðhaldsstig því að nú séu nýttir 10 milljarðar kr. sem annars hefðu farið í önnur útgjöld. Þessi skýring stenst enga skoðun. Annaðhvort ætlaði Landsvirkjun að nýta umrædda 10 milljarða kr. í fjárfestingu í mikilvægum innviðum eða láta fjármagnið sitja áfram í bókum félagsins. Það voru ekki 10 milljarðar á leið út í árshátíð Landsvirkjunar. Ef um fyrra atriðið er að ræða, að þetta hafi átt að fara í fjárfestingu, þá horfum við upp á enn eitt tilvikið þar sem ríkisstjórnin gengur á fjárfestingargetu hins opinbera, og þar með nauðsynlega innviðauppbyggingu, til að fjármagna viðbótarrekstrarkostnað. Og ef um seinna atriðið er að ræða, og umræddir 10 milljarðar kr. hefðu annars setið óhreyfðir hjá Landsvirkjun og þar með óvirkir í hagkerfinu, er ríkisstjórnin í reynd að auka peninga í umferð til að fjármagna kjarasamninga. Það er peningaprentun og það er verðbólguvaldandi, forseti.

Ákvörðunartaka í tengslum við aðkomu ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og fjármögnun þeirra stenst einfaldlega enga skoðun. Þetta er ekki einfaldlega mín skoðun. Fjármálaráð, sem veitir óháða umsögn um fjármálaáætlun hins opinbera út frá pólitískum áherslum ríkisstjórnarinnar hverju sinni, bendir í viðauka, sem fáir lásu, við umsögn sína um fjármálaáætlun á, með leyfi forseta:

„… að ólíkt eldsumbrotunum er aðkoma ríkissjóðs að kjarasamningum með auknum fjárútlátum ekki ófyrirséð eða óvænt útgjöld.“ — Því telur fjármálaráð að umræddar ákvarðanir fyrir yfirstandandi ár um aukin útgjöld innan fjárlagaárs 2024 rúmist, með leyfi forseta: „… hvorki innan ákvæða um ráðstöfun varasjóðs né fjáraukalaga.“

Með öðrum orðum virðist fjármálaráðherra telja að ríkisstjórnin fari með þessu gegn lögum um opinber fjármál enda stóð aldrei til að eyða 13 milljörðum í kjarasamningsaðgerðir á þessu ári. Það var aldrei nein áætlun til staðar um að fjármagna 80 milljarða pakka ríkisstjórnarinnar, eins og sést í fjáraukalögum, eins og sést í þessari fjármálaáætlun, og fyrir það líður almenningur í landinu á tímum verðbólgu og hárra vaxta.

Förum nú aðeins yfir hvað er tínt til til að reyna að láta virðast eins og myndin gangi upp, því að þetta ábyrgðarleysi heldur því miður áfram á tímabili fjármálaáætlunar, það er ekki bara fundið til á þessu ári með aukaarðgreiðslum úr Landsvirkjun. Við í hv. fjárlaganefnd fengum þetta einfaldlega staðfest með sundurliðun á helstu útgjaldalækkunum eftir málefnasviðum sem við kölluðum eftir, sem eiga að búa til svigrúm, eins og fjármálaráðuneytið orðaði það, fyrir kjarasamninga. Það er hægt að sjá þessa töflu í nefndarálitinu mínu. Það er ekki um neina sérstaka tekjuöflun að ræða eða einhverja kerfislæga uppstokkun á útgjaldahlið sem væri til að standa undir þessum loforðum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og núna ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar. Stærsta einstaka breytingin til að skapa svigrúm vegna kjarasamninga er frestun á útgjöldum vegna breytinga á örorkubótakerfi. Mér er sama hversu oft fólk ætlar að reyna að koma sér undan því að kalla þetta fjármögnunaraðgerð, fjármálaráðuneytið kallar þetta sjálft fjármögnunaraðgerð. Ef þetta er það ekki þá er þetta ekki fjármagnað.

Meðalgreiðsla sem þar er frestað er viðbótarhækkun upp á 4.000 kr. á mánuði fyrir þann hóp sem hlaut fyrsta örorkumat við 18 ára aldur og býr einn. Þetta er algeng staða meðal fólks með þroskahömlun og skylda fötlun. Á þetta bentu Landssamtökin Þroskahjálp á eftirminnilegum fundi nefndarinnar. Sagt er að það þurfi tíma til að innleiða þær kerfisbreytingar hjá Tryggingastofnun ríkisins sem eru í örorkufrumvarpinu og á að fresta gildistöku á en þessar breytingar snerta t.d. með mjög takmörkuðum hætti þennan hóp sem er að bíða eftir 4.000 kr. hækkun á mánuði. Þessi frestun skapar aftur á móti nauðsynlegt svigrúm í bókum ríkisstjórnarinnar fyrir kjarasamninga samkvæmt skilgreiningu ráðuneytisins.

Önnur stór breyta — forseti, ég er ekki að reyna að stilla þessu svona upp, ég vitna bara í glæru frá fjármálaráðuneytinu — þegar kemur að því að skapa svigrúm fyrir kjarasamningspakka sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur lagði fram og ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók við eru forsendur um hærri tekjur eldra fólks sem auka skerðingar og draga þar með úr kostnaði ríkissjóðs í almannatryggingakerfinu. Ríkisstjórnin ætlar jafnframt að bæta eftirlit með endurgreiðslum vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar, sem er gott og blessað, það á að skila rúmlega 2 milljörðum í sparnað á ári á hverju tímabili áætlunarinnar. Á sama tíma á samt að auka fjárveitingu vegna endurgreiðslnanna. Hugmyndin er þá að eitthvað af því nýtist síðar eða það verði kroppað til baka með eftirliti. En þetta er óvíst, þetta veit enginn vegna þess að nefndinni bárust ekki svör um það í raun hvaðan þessi sparnaðartala kemur, hvernig ríkisstjórnin hyggst stunda slíkt eftirlit, og fagráðherrann hafði ekki hugmynd um hvernig ætti að gera þetta.

Á fjárfestingarhlið í aðhaldi má finna frestun á fjárheimildum til nýs Landspítala, fjárheimildir sem hefðu líklega ekki ratað út á umræddu tímabili. Við vitum þetta öll. Það hefur gengið illa að áætla þessar fjárheimildir og oft verða þær eftir í lok árs. Þess vegna má alveg velta því fyrir sér hvert raunverulegt aðhald er af slíkri frestun. Er eitthvert fjárhagslegt aðhald af einhverju sem hefði annars aldrei farið í umferð og þá ekki valdið neinni verðbólgu? Til viðbótar má nefna frestun á byggingu húss viðbragðsaðila mitt í almannavarnaástandi. Í þessu samhengi má nefna að samkvæmt fjármála- og efnahagsráðuneytinu er fjármálaáætlun stillt þannig upp að miðað sé við 2% af vergri landsframleiðslu í fjárfestingum ríkissjóðs að meðaltali á tímabilinu þó að það sé vitað að langtímameðaltal fjárfestingar er 2,2% og jafnframt að mjög lág fjárfesting síðasta áratugar kallar, ef eitthvað er, á enn þá hærri viðmið til að vinna upp innviðaskuldirnar.

Forseti. Stóri ramminn í þessari fjármálaáætlun fær einfaldlega falleinkunn, bæði út frá pólitík jafnaðarmanna en líka út frá þeirri pólitík sem á víst að vera stunduð samkvæmt ríkisstjórninni hér, vegna þess að fjármálaráð, sem metur pólitík ríkisstjórnarinnar og hversu vel gengur að koma henni í framkvæmd, veitir þessu líka hálfpartinn falleinkunn. Við vitum að svona áætlun lýsir stjórnmálunum sem munu blasa við. Það er algengt að tala um fjárlög sem bestu leið til að útskýra fyrir fólki hver stefna flokks raunverulega er, ólíkt því að samþykkja hér til að mynda alls konar mál, eins og fyrr í dag, sem hafa enga fjármögnun. Ríkisstjórnin hefur hins vegar, þrátt fyrir þá stefnufestu sem á að fylgja fjármálaáætlun, oft breytt um stefnu undanfarin ár og horfið frá fjármálaáætlunarstefnunni. Það er alltaf að koma ný og ný fjármálaáætlun sem breytist verulega.

Jafnaðarflokkar á Norðurlöndum hafa það hins vegar á stefnuskrá sinni í ríkisstjórn að vinna á markvissan hátt að ákveðnum velferðarumbótum og þá fjármögnuðum til langs tíma. Síðasta fjármálaáætlun ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur innihélt hins vegar engin af þeim úrræðum sem voru kynnt í aðdraganda kjarasamninga. Barnabætur, húsnæðisbætur, vaxtabætur, niðurgreiðsla skólamáltíða; ekkert af þessu er að finna í stjórnarsáttmála, eins og ég hef áður nefnt, og engar tillögur voru beinlínis ræddar hér í þingsal áður en þær voru tilkynntar almenningi sem afgreiddar. Þá byggist stór hluti afkomubata á tímabili fjármálaáætlunar á óútfærðum afkomubætandi ráðstöfunum fyrir árin 2025–2027. Það þýðir í rauninni að ríkisstjórnin segir: Við ætlum að finna út úr þessu.

Fjármálaráð bendir á að það sé einfaldlega ekki trúverðugt að hafa 27 milljarða kr. árlegt aðhald óútfært en það aðhald bætist líka við almenna hagræðingarkröfu gagnvart stofnunum sem er heldur ekki búið að útfæra. Fjármálaráð nefnir að þær aðgerðir, með leyfi forseta:

„… sem ætlað er að draga úr útgjaldavexti og auka tekjur hrökkva skammt til að mæta þeim auknu útgjöldum sem eru boðaðar.“

Fyrst og fremst er verið að leggja áherslu á þessa breyttu aðferðafræði við afskriftir skattkrafna sem er bara einhver bókhaldsleg brella og bætir þannig afkomu. Í umsögn ráðsins segir, með leyfi forseta:

„Þannig er það þessi breytta aðferðafræði, frekar en forgangsröðun útgjalda, sem leiðir til þess að tölusett afkomuviðmið laga um opinber fjármál eru uppfyllt. Þar að auki eru framlög í varasjóði dregin talsvert saman frá gildandi fjármálaáætlun.“

Forseti. Fjármálaráð gagnrýnir jafnframt að eignasala leiki stórt hlutverk í að tryggja viðunandi skuldaþróun og skapa fjárhagslegt rými fyrir fjárfestingaráform stjórnvalda á tímabilinu. Um 25 milljarðar úr þeirri eignasölu eru óútfærðir. Það veit enginn hvað stendur til að selja en á þetta er treyst verulega. Sala á eftirstandandi hlut ríkisins á Íslandsbanka á að skila heilum 100 milljörðum þrátt fyrir að ljóst sé að núverandi ríkisstjórn nýtur í raun lítils trausts til að klára þetta söluferli og rannsókn á útboðinu standi enn þá yfir hjá Fjármálaeftirlitinu.

Forseti. Af lestri álits fjármálaráðs má ætla að stóra myndin standi einfaldlega ekki undir sér hjá ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Afkoman er byggð á bókhaldsbrellum að hluta. Fjármálaráð segir þetta, svo að ég vitni aftur í það, með leyfi forseta:

„Svo virðist sem brugðist sé við aukinni skuldastöðu […] með sölu eigna, en það eru einskiptisaðgerðir sem taka ekki á undirliggjandi rekstri. […] Stöðvun ófjármagnaðra útgjalda og/eða aukin tekjuöflun eru forsenda þess að markmið um stöðugleika og sjálfbærni, þ.m.t. lækkun verðbólgu og vaxta, gangi eftir.“

Í raun hefði ef til vill ekki þurft að rita 21 blaðsíðna nefndarálit heldur einfaldlega vitna í þessa málsgrein fjármálaráðs, óháðs aðila sem á að meta hvort pólitík flokkanna gangi eftir fyrir þá sjálfa.

Mig langar hér í lokin að fara yfir tekju- og gjaldastöðu ríkissjóðs almennt, sem er mikið áhugamál hjá mér og er oft lítill áhugi í þessum sal að ræða vegna þess að fólk vill fyrst og fremst, sérstaklega ákveðnir flokkar, bara tala um það sem það langar að gera og er með óskhyggju um. Það kemur sér hjá því að svara fyrir að það þurfi að taka erfiðar ákvarðanir til að framkvæma stóra hluti. En ég hef ítrekað vakið athygli á veikingu á tekjugrunni ríkissjóðs á undanförnum áratug, sérstaklega á tímabili ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur eftir að hún tók við árið 2017, og það má sjá þessar umfjallanir í mörgum nefndarálitum sem ég hef ritað. Í stuttu máli má nefna, bara svo að það liggi fyrir, að sögulegt meðaltal tekna ríkissjóðs fyrir tímabilið 1998–2021 er 30,5% af landsframleiðslu. Það er sögulega meðaltalið. Samkvæmt þeirri fjármálaáætlun sem hér er til umfjöllunar verða tekjur ríkissjóðs lægri en sögulegt meðaltal allt tímabilið 2025. Þetta er þrátt fyrir að hlutfall eldra fólks af mannfjölda hafi aukist umtalsvert frá 1998, samfélagsgerðin hafi breyst og aðrar samfélagslegar kröfur og viðmið hafi fylgt í kjölfarið. Við gerum meiri kröfur til almannaþjónustu en við gerðum fyrir 25 árum. Því ætti einmitt að vera uppi krafa um tekjuöflun til að mæta útgjaldaþróun frekar en krafa um tekjuskerðingu.

Eftir tekjulækkunarhrinu á árunum 2013–2016 bætti ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur í og fjarlægði rúmlega 40 milljarða kr. úr tekjugrunni ríkissjóðs á ársgrundvelli með skatta- og gjaldalækkunum sem voru ófjármagnaðar. Ég vek athygli forseta á því að rekstrarreikningur Landspítalans er í kringum 90 milljarðar kr. Þannig hefur um helmingur af rekstri ríkissjóðs nú verið fjarlægður með þessum aðgerðum. Fjármálaráð hefur áður fjallað um þessar breytingar, ekki aðeins ég, heldur fjármálaráð, til að mynda í umsögn sinni um árið 2025. Við höfum líka fengið upplýsingar frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem metur að tekjulækkun fyrir síðustu ár nemi um 100 milljörðum kr. á ársgrundvelli. Hér erum við komin út í hreina pólitík. Það eru vissulega sumir sem gleðjast yfir þessu en eru svo á móti hissa að fólk sé ósátt við stöðu almannavarna í landinu eða heilbrigðisþjónustu eða hvað svo sem það er. Það er vegna þess að tekin hefur verið markviss pólitísk ákvörðun um að gera þetta líka.

Forseti. Það má líka finna ítarlega umfjöllun um þróun útgjaldahliðar ríkissjóðs síðustu ár í nefndaráliti mínu um fjárlögin fyrir yfirstandandi ár. Það er líka mikilvægt að horfa á útgjöldin. Það má nefna í samhengi þessarar áætlunar sem við erum hér að tala um, ekki bara tekjuhliðina, að útgjöld ríkissjóðs liggja nú rétt undir meðaltali undanfarinna ára sem hlutfall af landsframleiðslu og fara lækkandi á tímabili fjármálaáætlunar. Þetta er staðan.

Þá hefur orðið grundvallarbreyting, sem við forðumst að ræða hér í íslensku samfélagi, í tíð ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar þar sem fólksfjölgun hefur verið söguleg. Það er fjölgun upp á 20% frá árinu 2017 og það stefnir í eitt mesta fólksfjölgunartímabil sögunnar ef litið er til mannfjöldaspár til ársloka 2025. Bandalag háskólamanna bendir á það í umsögn sinni að samanburður á útgjaldastigi Íslands og annarra norrænna ríkja geti verið villandi enda allt aðrar aðstæður uppi á Íslandi á síðustu árum. Fólksfjölgunin á Íslandi var 8% á tímabilinu 2019–2023 samanborið við 1–3% annars staðar á Norðurlöndum. Það skýrir að einhverju leyti af hverju útgjaldastig hefur t.d. haldist hærra hjá íslenska ríkinu eftir heimsfaraldur en í nágrannaríkjunum. Við heyrum svipaða sögu í öllum umsögnunum frá þeim stóru aðilum sem stunda þessa almannaþjónustu; heilbrigðisstofnunum og Landspítalanum þar sem farið er yfir áhrif þessarar fólksfjölgunar á álag á spítalann. Svo bætist í ofanálag við fjölgun ferðamanna undanfarinn áratug. Þessi fólksfjölgun er afleiðing atvinnustefnunnar, eða skorts á henni öllu heldur, sem ríkisstjórnin hefur rekið. Hagvöxtur hér hefur verið drifinn áfram af vinnuaflsfrekum atvinnugreinum og það hefur reynt á innviði landsins.

Í því samhengi vil ég vekja athygli á því að við í Samfylkingunni gáfum út áherslur okkar í atvinnu- og samgöngumálum fyrr á árinu undir yfirskriftinni Krafa um árangur. Þar bentum við m.a. á að munurinn á hagvexti og hagvexti á mann hér á landi væri einmitt langtum meiri en ef við lítum til meðaltals Norðurlanda og Evrópulanda. Þessi munur, að horfa ekki bara á hagvöxtinn heldur hagvöxtinn á hverja persónu sem hér býr, er það sem kalla má innviðaálagið. Þetta er ástæðan fyrir því að fólk sér ekki veisluna sem felst í 20% hagvexti. Það eru svo margir sem deila veislunni með því. Svipað stef, nákvæmlega svipað stef, má einmitt merkja í umsögn BHM þar sem lagt er mat á útgjaldaþróun ríkis og sveitarfélaga síðustu ár miðað við þessa áætlun en þar er tekið mið af mannfjölda. Þar kemur fram að frumgjöld á hvern íbúa verði svipuð að umfangi árið 2024 og þau voru árið 2011. Það er þess vegna vandséð — og það eru fleiri umsagnaraðilar sem taka undir þetta — hvernig á að draga úr útgjaldafrekri almannaþjónustu ef það á að keyra hagvöxt áfram með aukinni fólksfjölgun. En það er auðvitað alveg ljóst líka að þessi stefna stjórnvalda hefur stuðlað að ofhitnun á húsnæðismarkaði. Framboð heldur ekki í við eftirspurn og núna bætist þar við erfið staða vegna náttúruhamfara á Reykjanesskaga.

Forseti. Ég ætla í seinni ræðu minni hér á eftir að fara aðeins yfir þá þætti sem við myndum vilja sjá með öðrum hætti og leggjum til. Þó að það séu ekki breytingartillögur við þessa fjármálaáætlun þá höfum við í Samfylkingunni verið með útspil og erum tilbúin að sýna á spilin, tilbúin að ræða um erfið mál, vera með trúverðugleika, því að það er auðvelt að treysta bara á óskhyggjuna, svara ekki spurningum og segjast ætla að gera hlutina bara einhvern veginn.