154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[17:12]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029. Samkvæmt lögum um opinber fjármál er fjármálaáætlun áætlun ríkisstjórnar sem skal lögð fyrir Alþingi og felur í sér þrennt: Greiningu á stöðu efnahagsmála, nánari sundurliðun á markmiðum fjármálastefnu og umfjöllun um hvernig markmiðum áætlunarinnar verði náð. Fjármálaáætlun byggist á fjórum þáttum; í fyrsta lagi umfjöllun um efnahagsþróun undanfarin þrjú ár og mat á efnahagshorfum næstu fimm ár, í öðru lagi markmið um afkomu og efnahag hins opinbera í heild til næstu fimm ára, í þriðja lagi afkomu og efnahag ríkissjóðs, sem nánar er fjallað um í a-, b- og c-lið varðandi þróun gjalda, þróun skatta og þróun efnahags, og í fjórða lagi markmið um fjárhag A-hluta sveitarfélaga og áætlun um þróun tekna og gjalda og tilfærslur á fjármunum.

Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að líftími þessarar ríkisstjórnar er í mesta lagi fram til haustsins 2025. Það eru einungis ein fjárlög sem þessi ríkisstjórn getur haft áhrif á í fjármálaáætlun 2025–2029. Það eru fjárlög næsta árs sem er þá mark á takandi varðandi þessa fjármálaáætlun. Vonandi tekur ný ríkisstjórn við í síðasta lagi haustið 2025 sem leggur þá nýja fjármálaáætlun fyrir, nýja fjármálastefnu og ný fjárlög fyrir komandi ár; 2026, 2027, 2028 og 2029.

Varðandi það sem hér hefur verið rætt þá má benda á að útgjöld ríkissjóðs árið 2020 voru 1.000 milljarðar kr. og núna í ár, með fjárauka vegna kjarasamninganna, fara útgjöld ríkissjóðs í yfir 1.500 milljarða kr. Gríðarleg fólksfjölgun hefur verið á Íslandi undanfarin ár og er sú fólksfjölgunin ein sú mesta sem hefur orðið í hinum vestræna heimi og þótt víðar væri leitað. Mikill hagvöxtur hefur vissulega verið en hann er tengdur hinni miklu fólksfjölgun en einnig því að við vorum að koma út úr heimsfaraldri Covid.

Í greinargerð með fjárauka síðasta árs, sem var lagður fram í desember síðastliðnum, kom fram að líklegt væri að framleiðni á mann myndi minnka, m.a. vegna fólksfjölgunar, og að það væri útlit fyrir að við værum að minnka framleiðni á mann vegna þess að við erum með atvinnugrein hér sem heitir ferðaþjónusta sem er mjög mannaflsfrek og með lágum tekjum og lítilli framleiðni. Framleiðni á mann til lengri tíma litið hefur allt að segja um það hversu efnað íslenskt samfélag er. Ég get tekið dæmi um mann sem var að slá með orfi og ljá í gamla daga. Núna er ekki slegið með orfi og ljá, núna er slegið með stórtækum vélum. Munurinn á framleiðni á mann hjá manni sem keyrir dráttarvél og þeim sem sló með orfi og ljá er gígantískur. Það hversu mikilvæg framleiðni er útskýrir velsæld okkar Íslendinga. Framleiðni á mann er algjör grundvöllur fyrir ríkidæmi og það er útlit fyrir það í ár, a.m.k. er gert ráð fyrir því í greinargerð með fjárauka fyrir síðasta ár, að framleiðni á mann í ár muni annaðhvort standa í stað eða minnka. Þannig er staðan. Þannig að við erum ekki að fara til hagsældar með þeirri stefnu sem hér hefur verið rekin undanfarin ár ef horft er til framleiðni.

Annað atriði sem er vert að horfa á er að við höfum undanfarna mánuði verið með þrjá fjárauka vegna Grindavíkur, jarðhræringanna á Reykjanesi. Það er fullur stuðningur á Alþingi við að styðja við bakið á Grindvíkingum í þeim náttúruhamförum sem þeir hafa þurft að fara í gegnum með því að yfirgefa bæinn sinn. Það sama á við um atvinnutæki og fleiri atriði sem lúta að húsnæðisstuðningi og launagreiðslum o.fl.

Varðandi kjarasamningana þá er ríkið að fara að setja 13 milljarða á ári næstu ár í kjarasamninga og það hefur komið fram í fjáraukafrumvarpinu að hér er um varanlega útgjaldaaukningu að ræða. En hvernig er þetta fjármagnað í ár? Jú, að stórum eða næstum öllum hluta er það með peningum frá Landsvirkjun, óhreyfðum peningum frá Landsvirkjun, 10 milljarðar settir út í hagkerfið. Á næsta ári á að fresta upptöku nýs örorkukerfis um átta mánuði og spara þar a.m.k. 10 milljarða. Þannig á að fjármagna þetta. Það er fjármögnunin sem er grundvallaratriði hér. Það virðist ekki vera horft til þess hjá ríkisstjórninni hvernig eigi að fjármagna hlutina heldur er treyst á guð og lukkuna, að það komi meiri peningur í ríkiskassann en ella hefði orðið, eins og við höfum upplifað síðastliðin eitt eða tvö ár má segja. Við höfum fengið meiri tekjur en gert hefur verið ráð fyrir í fjárlögum og það hefur verið búbót sem hefur komið ríkissjóði vel. En það er ekki víst að það verði núna í ár. Það má benda á að Hagstofa Íslands hefur mælt það þannig að það sé 4% samdráttur í landsframleiðslu á fyrstu mánuðum þessa árs.

Ríkisstjórnin hefur fallið á prófinu. Henni hefur mistekist að ná niður þrálátum fjárlagahalla og hún hefur ekki lagt sitt af mörkum í baráttunni við verðbólguna. Jafnvel hafa innviðir grotnað niður á hennar vakt og á það við um vegakerfið, menntakerfið, hjúkrunarheimilin í landinu, málefni öryrkja, sjúkraþjónustu og heilbrigðiskerfið í heild. Ríkisstjórnin telur samkvæmt þessari fjármálaáætlun óraunhæft að leiðrétta hallarekstur ríkissjóðs fyrr en árið 2029, eða í lok næsta kjörtímabils. Samkvæmt fyrri áætlunum var ætlunin að komast út úr hallarekstri árið 2026. Til að fegra fjárlög á yfirstandandi kjörtímabili hefur ríkisstjórnin gripið til einskiptisaðgerða á borð við sölu Íslandsbanka. Þar er verið að fórna framtíðarhagsmunum þjóðarinnar fyrir skammvinnan gróða.

Í ljósi þess áhugaleysis sem ríkisstjórnin sýnir baráttunni við verðbólguna treystir Seðlabankinn sér ekki til að hefja vaxtalækkunarferlið og verða því sífellt fleiri fjölskyldur fórnarlömb gríðarlega hárra vaxta. Stýrivextir eru í dag 9,25% og eru þeir hæstu í hinum vestræna heimi. Ég veit að þeir eru hærri í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi. Ég held að það sé ekkert annað ríki sem er með jafn háa stýrivexti og Ísland; 9,25%. Þetta bitnar á fjölskyldum í landinu sem eru með húsnæðislán og önnur lán sem eru verðtryggð, vaxtaberandi lán.

Ríkisstjórnin greip allt of seint til aðgerða til að bregðast við veldisvexti í fjölda umsókna um alþjóðlega vernd sem leiddi til aukins álags á innviði sem fyrir voru komnir að þolmörkum. Ríkisstjórnin gerði ekkert til að bregðast við mikilli samþjöppun í eignarhaldi íbúða þegar vextir voru lágir og gerir nú nánast ekkert til að bregðast við stóraukinni íbúðaþörf en fólksfjölgun hefur aldrei verið meiri en á þessu kjörtímabili. Við þetta bætist svo húsnæðisvandi Grindvíkinga. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar hefur leitt til fordæmalausra hækkana á íbúðaverði undanfarin ár sem hefur leitt til mikillar fjölgunar á leigumarkaði þar sem stór hluti leigjenda vill eignast eigið húsnæði en hefur ekki möguleika á því vegna þess hve íbúðaverð er hátt. Meira en 90% leigjenda húsnæðis í dag vilja eignast eigið húsnæði og það er með hreinum ólíkindum að flokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn sem einu sinni fyrir mörgum áratugum var með þá stefnu að allir skyldu eignast þak yfir höfuðið — hvar er sú stefna? Hvar er stefna Sjálfstæðisflokksins um það að allir geti eignast þak yfir höfuðið? Það hefur verið grunnstoð í íslensku samfélagi að allar fjölskyldur í landinu eigi sitt eigið þak yfir höfuðið og það hefur verið kennt við sjálfstæðisstefnuna. Hún er gjaldþrota hvað þetta varðar. Hún er ekki einu sinni til. Ofan á þetta bætast háir stýrivextir, þeir hæstu í hinum vestræna heimi eins og áður sagði.

Mig langar að fjalla um gagnrýni fjármálaráðs en það starfar skv. 13. gr. laga um opinber fjárlög. Ráðinu er ætlað að tryggja að fram fari hlutlægt mat á stefnumörkun í opinberum fjármálum. Hlutverk ráðsins er að leggja mat á hvort fimm ára fjármálastefna og fjármálaáætlun fylgi þeim grunngildum sem lög um opinber fjármál kveða á um að stefnumörkun í opinberum fjármálum skuli byggð á en þau eru sjálfbærni, varfærni, stöðugleiki, festa og gagnsæi. Vert er að staldra aðeins við í umfjöllun um fjármálaáætlun þessa og fara yfir ábendingar fjármálaráðs sem 3. minni hluti tekur undir. Fjármálaráð telur aðkomu hins opinbera veika, ekki síst vegna mikils útgjaldavaxtar undanfarin ár, líkt og ég kom að hér áðan, úr 1.000 milljörðum í 1.500 milljarða á fjórum árum. Meiri hagvöxtur og hærri tekjur hins opinbera en gert var ráð fyrir í fyrri áætlunum leiddu til aukinna útgjalda. Þessi aukning er ekki sjálfbær. Árið 2020 var 1.000 milljarða múrinn í ríkisútgjöldum rofinn og í ár fara þau yfir 1.500 milljarða eins og áður sagði.

Aðstæður í hagkerfinu kalla á aukið aðhald. Vaxta- og verðbólgustig bendir til þess að þensla sé enn til staðar í hagkerfinu. Fjármálaáætlun kynnir fjölda nýrra verkefna sem þarf að fjármagna. Á móti er gert ráð fyrir óútfærðum sparnaði og forsendur um kerfisbundinn vöxt útgjalda eru lækkaðar.

Aðgerðir, sem ætlað er að draga úr útgjaldavexti og auka tekjur, hrökkva skammt til að mæta þeim auknu útgjöldum sem boðuð eru. Þessi samdráttur í útgjaldavexti og auknar tekjur hrökkva skammt til að mæta þeim auknu útgjöldum sem boðuð eru. Þetta er grundvallaratriði fjármálamarkaða. Fjármálaráð bendir á að það sé breytt aðferðafræði við afskriftir skattkrafna, frekar en forgangsröðun útgjalda, sem leiðir til þess að reiknaðar tekjur ríkissjóðs aukast og tölusett afkomuviðmið laga um opinber fjármál eru uppfyllt. Auk þess hafa framlög úr varasjóði dregist töluvert saman frá gildandi fjármálaáætlun.

Fjármálaráð gagnrýnir forgangsröðun ákveðinna verkefna. Í fjármálaáætlun sé gert ráð fyrir byggingu þjóðarhallar og nýs fangelsis á sama tíma og fallið hafi verið frá fyrri áformum um fjármögnun nýs húss viðbragðsaðila og fjármögnun viðbyggingar við Stjórnarráðið. Fjármálaráð telur vafasamt að þessar mótvægisaðgerðir vegi verulega upp á móti fyrrnefndum boðuðum framkvæmdum. Við erum ekki að spara nóg til að fara í aðrar framkvæmdir.

Í fjármálaáætlun kemur fram að afkoma ríkissjóðs verði bætt um 9 milljarða kr. á fyrsta ári áætlunarinnar með óútfærðum sparnaðarráðstöfunum en uppsafnaðar óútfærðar aðgerðir verði 18 milljarðar króna árið 2027, á næsta kjörtímabili. Þá er gert ráð fyrir að uppsöfnuð tekjuaukning verði 9 milljarðar árið 2027. Afkomubati á tímabili framlagðrar fjármálaáætlunar byggist því að hluta á óútfærðum afkomubætandi ráðstöfunum árin 2025–2027, á næsta kjörtímabili. Fjármálaráð telur ekki trúverðugt að hafa 27 milljarða kr. árlegt aðhald óútfært, sem komi til viðbótar almennri hagræðingarkröfu á tilteknar stofnanir. Það er algerlega ótrúverðugt að setja 27 milljarða árlegt aðhald til viðbótar hinu almenna aðhaldi. Það gengur að sjálfsögðu ekki upp. Það þekkja allir sem hafa komið nálægt ríkisfjármálum, ég tala nú ekki um þá sem sitja í fjárlaganefnd, að það er skorið við nögl alls staðar þegar kemur að fjárúthlutun til stofnana. Hætt er við að það muni koma fram í frávikum frá fjárlögum, sérstaklega þegar litið er til þess að fjárlög síðustu ára hafa nær undantekningarlaust farið fram úr áætlunum hvað varðar útgjöld.

Í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að ótilgreind eignasala árið 2028 muni skila 25 milljörðum í ríkissjóð. Þessi tiltekna eignasala er forsenda fyrir viðunandi skuldaþróun og á að skapa fjárhagslegt rými fyrir fjárfestingaráform á tímabilinu. Fjármálaráð telur ekki heppilegt að útgjöld séu fjármögnuð með ótilgreindri eignasölu langt fram í tímann, enda er óvissan meiri því lengra sem horft er fram í tímann. Þetta vita allir. Því lengra sem þú ætlar að spá fram í tímann, því meiri er óvissan. Ábyrgð er varpað á stjórnvöld framtíðar að fjármagna útgjöld sem núverandi stjórnvöld ætla að ráðast í. Það er næsta ríkisstjórn sem á að taka boltann og sjá til þess að kjarasamningarnir séu fjármagnaðir rétt, þessi varanlegu útgjöld sem þar eru, og það er næsta ríkisstjórn sem á að taka á þeirri útgjaldaaukningu sem ríkisstjórnin er að leggja hér í. Hafa ber í huga að einungis rúmlega eitt ár er eftir af núverandi kjörtímabili og núverandi ríkisstjórn, hjari hún það lengi, á eftir að leggja fram fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár, árið 2025.

Framangreind gagnrýni fjármálaráðs sýnir að það eru margvísleg atriði sem mætti útfæra betur í framlagðri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Skuldasöfnun ríkissjóðs og aukinn vaxtakostnaður — það er sorglegt að ekki skuli stefnt að því að lækka skuldir ríkissjóðs á tímabili fjármálaáætlunarinnar. Þvert á móti boða ríkisstjórnarflokkarnir umtalsverða skuldasöfnun á komandi árum. Þegar ríkisstjórnin tók við völdum haustið 2017 voru skuldir ríkisins 943 milljarðar kr. Nú eru skuldir ríkissjóðs 1.790 milljarðar kr. Ef stefnu ríkisstjórnarinnar væri fylgt á tíma fjármálaáætlunarinnar 2025–2029, þessari sem hér er til umræðu, verða skuldir ríkisins orðnar 2.150 milljarðar kr. í lok tímabilsins sem þessi fjármálaáætlun fjallar um. Vaxtagreiðslur ríkissjóðs vegna ársins 2025 verða samkvæmt fjármálaáætlun 121,1 milljarður kr. sem er aukning frá árinu í ár sem gerir ráð fyrir 117 milljarða kr. í vaxtagreiðslur hjá ríkissjóði. Árið 2029 verður árlegur vaxtakostnaður ríkissjóðs kominn upp í 139,2 milljarða kr. — 140 milljarðar kr. í vaxtagreiðslur. Skuldir ríkisins eru nú 38% af vergri landsframleiðslu ef miðað er við skuldareglu laga um opinber fjármál. Hér, líkt og á mörgum sviðum, fær ríkisstjórnin algjöra falleinkunn.

Mikilvægt er að stöðva þessa skuldasöfnun sem fyrst og hefja niðurgreiðslu skulda. Stefna á að því markmiði að koma skuldum ríkissjóðs undir 30% af vergri landsframleiðslu sem fyrst og helst ættu þær ekki að vera meiri en um 20% af vergri landsframleiðslu. Það er mikilvægt fyrir jafn lítið og opið hagkerfi og það íslenska er. Því miður virðist ríkisstjórnin sýna þessu mikilvæga verkefni nær engan áhuga. Það er enginn áhugi á þessu. Í þessari fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að skuldir ríkissjóðs lækki aðeins. Um hvað mikið? Hvað haldið þið að þær eigi að lækka mikið? Jú, þær lækka um 1% af vergri landsframleiðslu á næstu fimm árum. Þær fara úr 38% af vergri landsframleiðslu niður í 37% af vergri landsframleiðslu.

Fjármögnun örorku- og almannatrygginga er frestað en á bls. 54 í fjármálaáætlun má finna umfjöllun um afkomubætandi ráðstafanir ríkisstjórnarinnar og fjármögnun á afkomu ríkisins við gerð kjarasamninga. Þar segir, með leyfi forseta:

„Um helming batans má rekja til 9 ma.kr. óútfærðra afkomubætandi ráðstafana sem gert er ráð fyrir að verði útfærðar í fjárlagafrumvarpi ársins 2025 en jafnframt hefur verið gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða. Það er gert til þess að skapa svigrúm fyrir aukin útgjöld í tengslum við aðkomu ríkissjóðs að gerð kjarasamninga á almennum markaði sem munu koma fram af miklum þunga á næsta ári, m.a. með frestun á gildistöku nýs örorkubótakerfis til 1. september 2025 og lækkun á almennum varasjóði …“

Hér er verið að fresta gildistöku nýs örorkukerfis til 1. september næsta árs til þess að eiga fyrir kjarasamningunum á næsta ári. Þarna segir að gripið hafi verið til ýmissa hagræðingaraðgerða til að skapa svigrúm fyrir aukin útgjöld vegna aðkomu ríkissjóðs að gerð kjarasamninga. Taldar eru tvær aðgerðir; frestun á gildistöku nýs örorkukerfis og lækkun á almennum varasjóði. Þessi útskýring vakti eðlilega mikla athygli við 1. umræðu fjármálaáætlunar enda virðist ríkisstjórnin hafa ákveðið að láta öryrkja fjármagna aðkomu ríkisins að kjarasamningum. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar segja að það sé rangt og að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku nýs örorkukerfis vegna þess að innleiðingin sé tæknilega flókin og gefa þurfi opinberum stofnunum tíma til að vinna að þeirri innleiðingu.

Ég vil benda á að allt þetta kjörtímabil þegar við í Flokki Fólksins erum að tala um mikilvægi þess að auka fjármagn til öryrkja og aldraðra, afnema tekjuskerðingarnar, hækka frítekjumarkið hjá báðum þessum hópum og fleiri fleiri frumvörp sem við erum með til að bæta afkomu og lífsafkomu öryrkja og aldraðra og fátækasta hóps samfélagsins, þá hefur alltaf verið sagt við okkur: Jú, það á að bíða gildistöku nýs örorkukerfis á kjörtímabilinu. Þetta er alveg að fara að koma. Við ætlum ekki að gera þetta núna. Það á að bíða. En núna á nýtt örorkukerfi að taka gildi þremur vikum fyrir mögulegan kjördag. Ef ríkisstjórnin ætlar að sitja algerlega út kjörtímabilið þá verða kosningar að vera fyrir 25. september á næsta ári en gildistakan á að vera 20 dögum áður.

Nánar er fjallað um þetta atriði á bls. 65 í fjármálaáætlun þar sem segir eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Önnur veigamikil breyting frá gildandi fjármálaáætlun sem fellur undir félags- og tryggingamál er seinkun gildistöku nýs örorkulífeyriskerfis frá ársbyrjun 2025 til 1. september sama ár. Með breytingunni lækkar framlag sem gert hafði verið ráð fyrir í gildandi fjármálaáætlun til nýs örorkulífeyriskerfis um 10,1 ma.kr. vegna ársins 2025.“

Þarna stendur skýrum stöfum hvernig á að fjármagna kjarasamningana á næsta ári. Hér er um að ræða stefnubreytingu frá því sem gert hefur verið ráð fyrir í fjármálaáætlunum síðustu tveggja löggjafarþinga. Í stað þess að nýtt örorkulífeyriskerfi komi til framkvæmda áramótin 2024/2025 þá tekur það ekki gildi fyrr en 1. september á næsta ári, eða rétt rúmum þremur vikum fyrir lok kjörtímabils eins og áður sagði. Þetta er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar og sýnir ótrúlegt sleifarlag í vinnubrögðum. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa allt kjörtímabilið talað um að aðgerðir til að bæta lífskjör öryrkja yrðu að bíða heildarendurskoðunar örorkulífeyriskerfisins sem yrði farið í á kjörtímabilinu, ekki í lokin heldur á kjörtímabilinu. Það er ótrúverðugt miðað við málflutning ráðherra á kjörtímabilinu að það sé óraunhæft að láta nýtt örorkulífeyriskerfi taka gildi um næstu áramót. En það er ekki rétt að vegna þess þurfi jafnframt að fresta fjármagni sem búið er að ráðstafa til málaflokksins í fjármálaáætlun fyrir ári. Ríkisstjórnin getur hæglega nýtt það fjármagn sem átti að fara í að endurskoða örorkulífeyriskerfið á fyrstu átta mánuðum næsta árs til að hækka grunnframfærslu í gamla kerfinu, frá ársbyrjun 2025, þar til nýtt kerfi tekur gildi 1. september. Það er minnsta mál í heimi að setja meira fjármagn til öryrkja strax 1. janúar 2025. En nei, það á að fresta því til 1. september. Það er fyrirsláttur að segja að þar sem gildistöku hafi verið frestað verði ríkisstjórnin jafnframt að fresta fjármagni. Það er algjör fyrirsláttur. Það er verið að taka fjármagn frá öryrkjum til að greiða fyrir kjarasamninga og það er með öllu óásættanlegt.

Við þekkjum dæmi frá síðasta kjörtímabili þar sem ákveðið var að fresta endurskoðun lífeyriskerfisins án þess að fresta fjármagni. Í stað þess að fresta því fjármagni sem átti að falla til var ákveðið að draga úr skerðingum í gamla kerfinu, þ.e. að minnka hina svokölluðu krónu á móti krónu-skerðingu í 65 aura á móti hverri krónu. Það var hætt við krónu á móti krónu og það var fært niður í 65 aura á móti hverri krónu. Hver króna sem öryrkinn aflaði sér, hana átti bara að skerða um 65 aura í staðinn fyrir krónu á móti krónu. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að ríkisstjórnin bregðist við með sambærilegum hætti nú fjórum árum síðar en ríkisstjórnin virðist ekki vilja leysa það mikilvæga verkefni sem er að fjármagna örorkulífeyriskerfið og hún frestar því verkefni fram að kosningum. Það verður því fyrsta verkefni næstu ríkisstjórnar að fjármagna örorkulífeyriskerfi almannatrygginga þar sem sitjandi ríkisstjórn treystir sér ekki til að taka veigamiklar ákvarðanir á því sviði frekar en á flestum öðrum sviðum. Þeir eru með útgjaldahugmyndir, kjarasamninga, nýtt örorkulífeyriskerfi en það eru engar hugmyndir um hvernig á að fjármagna það, ekki nokkrar. Jú, Landsvirkjun á að redda þeim í ár, öryrkjar eiga að redda þeim á næsta ári. Svona er þetta í málaflokki á eftir málaflokki.

Breytingartillögur 3. minni hluta:

„Þriðji minni hluti telur að fjárframlög í fjármálaáætlun endurspegli ekki átak í baráttunni gegn verðbólgu, auk þess sem fresta á fjármagni sem áður var búið að lofa að rynni til örorku almannatrygginga frá 1. janúar 2025. Því eru lagðar til nokkrar breytingar sem miða að því að efla þátttöku ríkisins í baráttunni við verðbólguna.

Á tekjuhlið er lagt til að bankaskattur verði hækkaður í fyrra horf og að veiðigjald verði hækkað svo að þjóðin fái sanngjarnt endurgjald fyrir afnot af sjávarauðlindinni. Á gjaldahlið er lagt til að fjármögnun vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfisins verði aukin frá og með 1. janúar 2025,“ — Þetta er réttmæt krafa. — „að framlög til heilbrigðismála og endurhæfingarúrræða vegna fíknisjúkdóma verði aukin og lagt er til að stofnframlög til uppbyggingar á hagkvæmum íbúðum verði aukin um 2 milljarða kr. á ári út gildistíma fjármálaáætlunar. Heildarumfang útgjaldatillagna er 45,1 milljarður kr. á gildistíma fjármálaáætlunar en breytingartillögur á tekjuhlið skila ríkissjóði auknum tekjum um sem nemur 80 milljörðum kr. á gildistíma fjármálaáætlunar.“ — Við erum að leggja til útgjaldaaukningu upp á 45 milljarða en tekjuaukningu upp á 80 milljarða. Það eru ábyrg ríkisfjármál. — „Nettóáhrif á ríkissjóð eru jákvæð um sem nemur 34,9 milljörðum kr.

Þriðji minni hluti leggur til að tillagan verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.“

Ég tel að þessi umræða um fjármálaáætlun — og ég vísa til þess og mér þykir mikilvægt að undirstrika að það er næsta ríkisstjórn sem mun taka boltann í síðasta lagi í lok september á næsta ári.

Að lokum vil ég nota tækifærið og þakka hæstv. formanni fjárlaganefndar fyrir gott samstarf og skemmtilega vinnu í fjárlaganefnd og öðrum nefndarmönnum fyrir skemmtilega vinnu og góðar umræður í nefndinni.