fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Umræðan hér í dag um fjármálaáætlun snýst í reynd um eina en mjög mikilvæga spurningu í mínum huga sem er einfaldlega: Hvernig samfélagi viljum við búa í? Fjármálaáætlun á hverjum tíma sýnir og á að sýna hugmyndafræði stjórnvalda og svara þeirri spurningu hvernig samfélag við viljum sjá. Fjármálaáætlun til næstu fimm ára á að vera leiðin að pólitískum markmiðum stjórnvalda um það.
Viðreisn hefði ekki skilað af sér fjármálaáætlun eins og þessari. Fjármálaáætlunin er í mínum huga óábyrg að því leyti að reikningsdæmið gengur einfaldlega ekki upp. Áfram er haldið með þá hugmyndafræði að skilja næstu kynslóð eftir með reikninginn fyrir þetta ábyrgðarleysi og með skuldirnar. Viðreisn gerir sömuleiðis ágreining um þá forgangsröðun verkefna sem hér birtist. Enn finnst mér við sjá skilningsleysi á mikilvægi grunnþjónustu. Ég nefni þar sérstaklega heilbrigðisþjónustuna, ég nefni samgöngur og ég nefni löggæslu.
Einna alvarlegast finnst mér hversu vanmáttug ríkisstjórnin hefur reynst í viðureigninni við verðbólgu og háa vexti sem leika mörg heimili grátt en fyrirtæki vitaskuld líka, sem skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja á Íslandi gagnvart erlendri samkeppni. Gott samspil fjármála- og peningastefnu skiptir sérstaklega miklu máli á tímum þenslu í hagkerfinu. Reikningsdæmið gengur ekki upp og raunar hefur hallarekstur fylgt ríkisstjórninni allt þeirra samstarf, algerlega óháð því hvernig efnahagsaðstæður hafa verið. Það er ekki hægt að styðja ábyrgðarleysi eins og það að neita að viðurkenna tölur eða horfast í augu við staðreyndir máls.
Ég vil hér sem oftar minna á þingsályktunartillögu sem Viðreisn lagði fram og var samþykkt hér á Alþingi árið 2018. Þessi þingsályktun fjallar um að tryggja gæði, að tryggja hagkvæmni, að tryggja skilvirkni opinberra fjárfestinga, verkfæri sem sannarlega væri gagnlegt núna við mat á því hvaða skref á að stíga í fjármálunum. Í samhengi við hallarekstur þarf auðvitað að viðurkenna að vitaskuld koma upp þær aðstæður hjá heimilum, hjá fyrirtækjum, hjá sveitarfélögum og hjá ríkissjóði að fara þarf í lántökur. Það koma gjarnan upp og geta eðlilega komið upp aðstæður þar sem lántökur reynast ekki bara nauðsynlegar heldur geta beinlínis verið skynsamlegar. En lántökur mega ekki vera reglan. Það á ekki fara í lántökur bara af því bara. Lántökur eru reglan hjá þessari ríkisstjórn og mér hefur fundist hún vera ábyrgðarlaus annars vegar í útgjöldum og svo núna í því hvernig hún fer í aðhald þegar hún beitir því.
Mig langar aðeins til að tala um hversu dýr lán eru fyrir íslenska ríkið og íslenskan almenning. Heimilin á Íslandi þekkja mjög vel að það er dýrt að skulda. Það er sérstaklega dýrt að skulda á Íslandi. Hvað ríkissjóð sjálfan varðar þá hefur það verið reglan að þriðji til fjórði stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs er vaxtakostnaður. Ef við setjum þetta í samhengi við smærri dæmi, ef við setjum þetta í samhengi við fyrirtækjarekstur eða heimilisrekstur, þá vitum við auðvitað ósköp vel að þegar þriðji eða fjórði stærsti útgjaldaliðurinn er vaxtakostnaður þá hefur það áhrif á aðra getu til fjárfestinga. Flokkar sem vilja verja lífskjör, flokkar sem vilja verja samkeppnishæfni Íslands ættu að deila áhyggjum okkar Viðreisnarfólks af þessum rándýru lántökum íslenska ríkisins. Það er vont að við stöndum hér í umræðum um útgjöld ríkissjóðs og kostnað ríkisins og ræðum jafn lítið og raun ber vitni um þann mikla útgjaldaleka sem vaxtakostnaðurinn er fyrir ríkissjóð. En í þessari umræðu forðast margir þennan þátt málsins.
Ég ætla í þessu samhengi að ræða um pólitískt hagsmunamat við val á gjaldmiðli. Allir á Íslandi finna í dag fyrir háu vaxtastigi og hárri verðbólgu en háir vextir eru og verða sem lím á íslenskum lánum á meðan við búum við þann gjaldmiðil sem stjórnvöld hafa valið. Heimilin á Íslandi í dag sem eru með óverðtryggð lán borga í kringum 11% vexti af lánum sínum. Ef við horfum á frændur okkar í Færeyjum þá eru hliðstæð lán með vexti upp á 3–4%. Ástæðan er sú að Færeyingar tengjast evru í gegnum danska krónu. Maður verður að geta sagt upphátt hvað það kostar almenning, hvað það kostar heimilin að vera með örgjaldmiðil sem sveiflast með þeim hætti sem íslenska krónan gerir. Þessi kostnaður blasir mjög rækilega við heimilunum í dag og þeim fyrirtækjum sem eru enn föst í krónuhagkerfinu. Að líta fram hjá augljósum þáttum eins og hvað það kostar íslenskan almenning að búa við lítinn og sveiflukenndan gjaldmiðil er óábyrgt. Gjaldmiðillinn okkar er eins og við séum stödd í stöðugri óvissuferð. Við sem tölum um stöðuna eins og hún er, við sem viljum tala um raunsamhengi hlutanna en ekki fyrir töfralausnum, við vitum að þetta þarf að ræða. Svona er staðan í dag á Íslandi en svona þarf hún auðvitað ekki að vera.
Mig langar aðeins til að taka upp þráð sem hefur töluvert verið til umræðu í fjárlaganefndinni, sem er annars vegar hagvöxtur og hins vegar framleiðni. Það eru teikn á lofti vegna þess hvernig framleiðnin er að þróast hér á landi. Í því samhengi þarf markvissa stefnu stjórnvalda til að ýta undir atvinnugreinar sem einkennast af framleiðni því að atvinnugreinar eru jú misjafnar hvað þetta varðar. Hagkerfið okkar stendur ekki undir lífskjaraaukningu miðað við hvernig hagvöxtur er hér að þróast. Hér hringja viðvörunarbjöllur og hér er framtíðarmúsíkin okkar ekki sérlega góð. Hérna, og það er nú það jákvæða í stöðunni, geta stjórnvöld haft mikil og jákvæð áhrif til góðs með stefnumótun. Til þess þarf auðvitað ríkisstjórn sem er mynduð utan um tiltekna stefnu en svo er auðvitað ekki í dag.
Ég held að við séum öll sammála um að verðbólgan er stóra verkefnið sem stendur og þar vitum við að húsnæðismarkaðurinn er lykilbreyta. Mikil fólksfjölgun á Íslandi liðin ár er ein helsta ástæða þess að raunverð húsnæðis á Íslandi hefur tvöfaldast síðastliðin tíu ár. Mig langar til að vitna til orða Más Guðmundssonar, fyrrverandi seðlabankastjóra, sem sagði í viðtali fyrir ekki svo löngu, með leyfi forseta:
„Við verðum að hætta að tala um að þetta sé fasteignamarkaðnum að kenna.“
Hann er hér að benda á sögulega fólksfjölgun sem er nátengd atvinnustefnu á Íslandi. Ef við berum okkur saman við aðrar þjóðir í kringum okkur þá sjáum við að á liðnum árum hefur fólksfjölgun á Íslandi verið í kringum 8% en 1–3% á hinum Norðurlöndunum. Auðvitað hefur svona vöxtur margvísleg jákvæð áhrif en hann hefur á sér dekkri hliðar um leið. Þessi fólksfjölgun er að langmestu leyti til komin vegna atvinnugreina — og það er auðvitað jákvætt að það sé vöxtur í atvinnulífinu — sem hafa kallað á vinnuafl. Þegar atvinnulífið vex með þessum hætti þá hefur það auðvitað áhrif á eftirspurn eftir húsnæði, vörum og þjónustu. Ég nefni þetta af því að við erum alltaf að tala um húsnæðismarkaðinn í samhengi við verðbólguna. Markaðurinn ræður ekki við það að mæta þörfinni um húsnæði og það gengur ekki að tala bara um að það þurfi að byggja meira en hafa enga skoðun á því hvernig atvinnulífið er að þróast. Jafnvægið í dag er einfaldlega ekki til staðar. Það er þensla, það er vöxtur og þessi vöxtur hefur áhrif. Á meðan það er ekki skýr atvinnustefna þá verður erfitt að koma húsnæðismarkaðnum í jafnvægi. Hann er lykilbreyta í því að ná niður verðbólgu og sem stendur byggjast aðgerðir stjórnvalda einfaldlega ekki á staðreyndum máls.
Við erum sem þjóð mjög meðvituð um mikilvægi ferðaþjónustunnar og ég held að við séum sem þjóð þakklát ferðaþjónustunni fyrir þann þátt sem hún átti um það að reisa við íslenskt efnahagslíf eftir hrunið. Ferðaþjónustan hefur reynst okkur mikilvæg nýsköpun í byggðum landsins og hefur gert mikið fyrir menningu og veitingahúsalíf. En hér eru teikn á lofti og kannski hefur verið farið of geyst. Ferðaþjónustan er sem stendur ein stærsta útflutningsgrein landsins. Við eigum skýrslur og gögn frá OECD sem sýna að fjöldi ferðamanna á hvern íbúa hér á landi hefur verið sá langhæsti innan OECD. Þetta hefur auðvitað áhrif. Við eigum líka tölur og gögn frá OECD sem segja okkur að hlutfallslegur fjöldi starfandi í ferðaþjónustu er sá mesti hér á landi innan OECD. Þetta hefur auðvitað líka áhrif. Það er gleðilegt að í dag hafi verið samþykkt stefna um ferðaþjónustuna. Það er mjög jákvætt að það skyldi hafa verið gert en ég tek undir áhyggjur þeirra sem hafa nefnt hér í þingsal að það hafi auðvitað líka áhrif að setja stefnu sem ekki er studd með fjármögnun.
Ég nefni atvinnustefnu og framtíðarmúsík líka í því samhengi að á Íslandi í dag er fremur lítil arðsemi af háskólanámi. Við eigum tölur og gögn frá BHM sem sýna okkur glögglega hver sú þróun er. Um þetta finnst mér vera allt of lítið rætt. Kostnaður við nám á móti ábata er hvað minnstur á Íslandi. Þetta finnst mér vera mikið áhyggjuefni og þess vegna verður stefna stjórnvalda að ýta undir greinar sem byggja á menntun. Og aftur vil ég nefna hagvöxtinn í því samhengi. Það er auðvitað pólitík í því hvernig hagvexti stjórnvöld stefna að því að ná. Hagvöxtur á mann er breyta sem við höfum töluvert rætt hér í þingsal. Það er vænlegri niðurstaða heldur en hraðvaxta hagvöxtur sem er fyrst og fremst keyrður áfram af fólksfjölgun. Og allt tengist þetta. Mér finnst svo áhugavert við vinnuna í fjárlaganefnd að finna hvernig allar aðgerðirnar tengjast innbyrðis og hafa áhrif hver á aðra. Þegar við erum að ræða um atvinnustefnu og þegar við erum að ræða um menntun þá hljótum við að vera meðvituð um að fyrsta skrefið til að sækja fram er auðvitað að horfa á grunnskólana og framhaldsskólastigið. Við erum oft í þessum sal að ræða um nýsköpun, þróun, samkeppnishæfni. Við erum með nýsköpun og þróun sem sjálfstæða einingu í ráðuneyti en það verður auðvitað að vera einhver tenging við grunninn, tenging við grunnskólana, tenging við hugmyndir okkar um framhaldsskólana. Við verðum aldrei sterkari en grunnurinn. Kröftugt atvinnulíf og sterk nýsköpun þarf á því að halda og byggir á því að grunnskólarnir okkar og framhaldsskólarnir okkar séu sterkir.
Forseti. Aðeins um aðhaldið sem birtist í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þetta er auðvitað þáttur sem við ræðum líka mikið í fjárlaganefnd sem svar eða viðbragð við verðbólgu. Áfram beitir ríkisstjórnin flötu aðhaldi á alla þá sem á annað borð sæta aðhaldi. Mér hefur alltaf fundist þetta sérstök nálgun. Hún getur kannski átt við svo langt sem hún nær en þarna finnst mér alltaf vanta upp á þá hugsun að verkefnin séu ekki öll innbyrðis jafn mikilvæg og að við ættum að geta gert meira heldur en að undanskilja bara nokkra þætti og fara svo í sömu aðhaldsaðgerðir á öll önnur verkefni sem á annað borð sæta aðhaldi. Er þetta virkilega eina mögulega nálgunin? Við vitum það bara varðandi heimilisrekstur okkar að þegar við erum að bregðast við erfiðleikum eða þegar við ætlum að neita okkur um eitthvað þá er það auðvitað ekki þannig að öll útgjöld séu innbyrðis jafn mikilvæg. Þetta veit fólk sem þarf að reka heimili og þetta veit fólk sem er að reka fyrirtæki. Mér finnst þetta líka haldast í hendur við þann galla hvað við eigum oft erfitt með að nálgast gögn inn í fjárlaganefndinni. Ákvarðanir okkar eru ekki nægilega mikið byggðar á gögnum. Síðan er það auðvitað þannig varðandi aðhaldið — gagnrýni sem ég er ekki fyrst til að nefna — að það eru mjög háar upphæðir sem eru sagðar vera vegna aðhaldsaðgerða, 27 milljarðar, en eru algjörlega óútfærðar. Þetta hefur fjármálaráð gagnrýnt nokkuð skýrt og þetta er auðvitað ekki trúverðugt. Við vitum það sjálf að einhver markmið sem ekki eru útlistuð, ekki er rætt um hvernig eigi að ná, hafa líkurnar einfaldlega ekki með sér.
Mig langar líka til að tala um kjarasamningana en það hefur mikið verið rætt um þá af hálfu ríkisstjórnarflokkanna. Auðvitað var mjög mikilvægt að það skyldi nást að gera kjarasamninga til fjögurra ára en á sama tíma er það mikið áhyggjuefni hvernig ríkisstjórnarflokkarnir stóðu að því að fjármagna sinn þátt í þessum kjarasamningum. Þeirra þáttur, þáttur stjórnvalda, var auðvitað mjög mikill. Við þekkjum öll þessar tölur. Ríkisstjórnin setur 80 milljarða til að styðja við þessa kjarasamninga til næstu fjögurra ára. Fjármálaáætlun er auðvitað mjög lituð af þessum kostnaði. Hérna verður einfaldlega ekki litið fram hjá því hvaða augum fjármálaráð, sem veitir óháða umsögn sérfræðinga, lítur þessi vinnubrögð. Fjármálaráð bendir á að aðgerðirnar fyrir yfirstandandi ár, árið 2024 — mig minnir að það séu einhverjir 13, 14 milljarðar — rúmist hvorki innan ákvæða laganna um ráðstöfun varasjóðs né fjáraukalaga. Það þýðir auðvitað bara á íslensku að aðgerðirnar standast ekki áskilnað laganna um hvernig svona er gert. Mér finnst vont til þess að hugsa. Í tengslum við fjármálin erum við eðlilega mjög mikið að ræða um það hvernig við náum verðbólgunni niður, hvers konar aðgerðir þurfi til þess, við rýnum tölur og gögn en það er allt of lítið rætt um lög um meðferð opinberra fjármála og þau búa til leikreglurnar. Það er mikið skeytingarleysi í því að ætla sér að fara fram hjá þeim lögum eins og hér er gert.
Mig langar til að tala um heilbrigðismálin, heilbrigðisþjónustuna, því að þetta er sá málaflokkur sem ríkið fjárfestir hvað mest í, einn stærsti kostnaðarliðurinn, og þetta er sá málaflokkur sem samkvæmt ítrekuðum mælingum skiptir fólkið í landinu mestu máli. Mig langar til að ræða fólkið í heilbrigðiskerfinu og hinn svokallaða mönnunarvanda. Heilbrigðiskerfið er auðvitað ekkert án fólksins sem þar starfar. Sérfræðilæknar skila sér ekki heim eftir sérfræðinám erlendis. Við vitum að hjúkrunarfræðingar eru í stórum stíl að hverfa til annarra starfa. Við vitum líka að heilbrigðiskerfið er á alþjóðlegum markaði, ef svo má segja, því að heilbrigðisstarfsmenn eru í dag eftirsóttustu starfskraftar heimsins. Við þurfum einfaldlega að standast samkeppni að utan. Ég hef áður nefnt í þessum sal í þessu samhengi tillögu Viðreisnar á sínum tíma um bætt kjör kvennastétta, þar með talið hjúkrunarfræðinga. Það er auðvitað liður í því að styrkja heilbrigðiskerfið til lengri tíma litið að við löðum fólk hingað til starfa og höldum því hér að störfum. Gagnrýni Landspítala á fjármálaáætlun var margþætt en af því að ég er sérstaklega að ræða um mönnun þá nefna þau skort á fjárfestingu eða skort á fjármagni til sérnáms fyrir lækna á Íslandi. Þetta er veikleiki og fer í sjálfu sér gegn stefnu stjórnvalda um að styðja við mönnun í heilbrigðisþjónustu.
Við ræðum mikið um útgjöld og ekki síst þegar við ræðum um heilbrigðisþjónustu. Það er staðreynd og það er rétt þegar stjórnarmeirihlutinn segir að hér hefur fjárfesting aukist. Útgjöld eru meiri en þau voru og tölurnar tala sínu máli hvað það varðar. Hins vegar er ekki alveg augljóst í hvað peningarnir eru að fara. Það kallar á samtal, sem ég átti við formann fjárlaganefndar fyrr í dag af því að mér finnst vanta að við séum að ræða hver upplifun fólks er af þjónustunni. Hver er upplifun fólks af því hvort það komist til heimilislæknis? Eru biðlistar eftir tíma hjá heimilislækni að styttast á Íslandi? Nei. Komast aldraðir fyrr inn á hjúkrunarheimili en áður var? Nei. Hversu langan tíma tekur að fá greiningar fyrir börn? Er staðan þar að batna? Nei. Þannig að jú, við erum að setja aukið fjármagn í heilbrigðiskerfið en er verið að fara vel með þessa peninga? Þetta kemur aftur inn á tillögu okkar í Viðreisn um að við rýnum fjárfestingar út frá gæðum, út frá skilvirkni o.s.frv. Hér vantar okkur alltaf dálítið af gögnum því að stóra spurningin er ekki hversu mikið fjármagn heldur hvernig þjónustan er sem við veitum fólkinu í landinu. Og þegar við ræðum um þjónustu þá þurfum við líka að hafa í huga að fólk er að greiða fyrir þessa þjónustu í gegnum skattana sína.
Ég nefndi menntun áðan. Þar má líka halda því til haga að stóra myndin á Íslandi er að jöfnuður tekna er meiri hér en á öðrum Norðurlöndum. Þetta er líka spegill á það hvernig við metum menntun til launa. Mig langar í þessu samhengi að fara nokkrum orðum um stöðu millistéttarinnar á Íslandi því að þetta er hópur sem finnur nú þegar mjög rækilega fyrir verðbólgunni, tekur á sig vaxtahækkanir á húsnæðislánin sín en greiðir líka háa skatta. Það eru ekki margir hér í þessum sal sem tala um skattbyrði almennings og mig langar aðeins að nefna það, skattbyrði venjulegs fólks á Íslandi. Á sama tíma og verðbólgan er há hér og hærri en annars staðar, á sama tíma og vextir eru háir hér og hærri en annars staðar eru skattar á venjulegt fólk á Íslandi líka mjög háir. Um það bil önnur hver króna sem hagkerfið skapar er greidd í skatta, í lífeyrissjóði og þetta er með því hæsta sem þekkist í alþjóðlegum samanburði. Þá þurfum við að spyrja: Hvaða þjónustu fær fólkið fyrir þessa skatta? Um 70% álagðra skatta og gjalda eru síðan borin af þriðjungi þjóðarinnar. Þriðjungur þjóðarinnar greiðir um 70% álagða skatta og gjalda á Íslandi. Þegar við erum að ræða um lífskjör og lífsgæði venjulegs fólks verðum við líka að geta verið heiðarleg um það hver skattheimtan á almenningi er. Hún er mikil á Íslandi. Viðreisn mun halda áfram að tala gegn aukinni skattheimtu á almenning, einfaldlega vegna þess að almenningur greiðir háa skatta. Við greiddum atkvæði gegn nýjustu skattheimtu ríkisstjórnarinnar, skattheimtu á almenning, þegar átti að fara að fjármagna varnargarðana á Reykjanesi með skattheimtu á almenning. Það þurfti ekki að hækka skatta í þeim tilgangi. Við erum auðvitað ekki bara að ræða skatta í þessum sal í samhengi við skattheimtu á heimilin. Myndin er stærri en svo. Við höfum líka mótmælt 1% skattahækkun sem verður lögð á öll fyrirtæki landsins árið 2025. Sjálf er ég á því og við í Viðreisn höfum talað fyrir því að það þurfi að fara að rýna hvort verið sé að greiða sanngjarnt gjald fyrir nýtingu auðlinda í sameign þjóðarinnar. Við getum ekki endalaust sótt í vasa almennings.
Að lokum eru tveir flokkar sem ég vil nefna sérstaklega af því að auðvitað erum við í svona yfirferð rétt að hlaupa yfir helstu atriði. Mig langar til að nefna aftur löggæsluna. Ég held að þeir nefndarmenn sem eru í salnum núna viti og hafi fundið að mér er mjög annt um að hagræðingar- og aðhaldskrafan fari af löggæslunni. Við fengum harðorðar umsagnir um fjármögnun lögreglu á tímabili fjármálaáætlunar. Það er staðreynd að fjöldi starfandi lögreglumanna á Íslandi er svipaður og fyrir árið 1990 þrátt fyrir að fólksfjölgun hafi verið um 60% síðan þá. Það eru allt of fáir lögreglumenn starfandi og aðeins um helmingur þeirra er menntaður. Hér finnst mér alltaf dálítið gleymast að þegar við erum að tala um grunnþjónustu, þegar við erum að tala um framlínustarfsmenn, þá er löggæsla auðvitað alger grunnþjónusta við fólkið í landinu og mikilvæg framlínustarfsemi. Hér vantar heildarstefnumótun. Ég fagna því og ég var mjög ánægð að sjá að meiri hlutinn skyldi mæta þessari gagnrýni og taka út aðhaldskröfuna. Við vitum að nánast allur kostnaður löggæslunnar er launakostnaður. Þetta hefði aldrei haft annað í för með sér en uppsagnir og ekki var nú staðan beysin fyrir. Ég held að samtalið fyrir fjárlög næstu ára hljóti að vera meira en það að bakka með fráleita aðhaldskröfu, heldur förum við að ræða hvernig sé eðlilegt að fjármagna löggæslu á Íslandi. Þar þurfum við líka að horfa á breytt umhverfi á alþjóðavísu, að löggæsla á Íslandi er líka sérstaklega mikilvægur þáttur í öryggismálum þjóðarinnar.
Hitt atriðið sem mig langaði til að nefna er dapurleiki minn yfir því að samgönguáætlun skuli ekki vera afgreidd núna í sumar. En af því að ég hef talað töluvert um þetta þá hefur mér samhliða fundist sláandi að sjá hvernig fjárfestingar í samgöngum hafa verið á liðnum árum. Samgöngur eru líka alger grunnþjónusta og þetta er mikilvægt byggðamál sömuleiðis. Ég ætla nú samt sem þingmaður Reykvíkinga líka að fá að halda því til haga að stundum er talað um samgöngur eins og þær tíðkist bara ekki á höfuðborgarsvæðinu. Auðvitað er þetta líka mikið lífsgæðamál fyrir okkur hér á höfuðborgarsvæðinu. Það er hættulegt að vanrækja þennan málaflokk. Þarna getum við aftur farið inn í líkinguna við heimilin. Þegar þú sinnir ekki viðhaldi þá eykst kostnaður til lengri tíma litið og Ísland er undir meðaltali í fjárfestingu. Hérna verðum við að finna leiðir til að gera það sem samgönguáætlun var og er ætlað að gera, að geta teiknað upp plan sem er meira bara en að brúa eitthvert bil heldur að skapa framtíðarmúsík.
Ég hef farið yfir helstu sjónarmið okkar Viðreisnar um fjármálaáætlun. Við erum auðvitað með stóru myndina hér undir og það er mikilvægt með svona fjármálaáætlun sem vissulega er til fimm ára. En auðvitað ættum við að vera að hugsa málin til enn lengri tíma og þora að horfa fram á veginn, ræða framtíðarmúsíkina í samhengi við menntun t.d. og hvernig atvinnulíf við viljum sjá þróast, hvernig við viljum tryggja samkeppnishæfni Íslands í samkeppni þjóðanna og í samhengi við þjónustu við fólkið í landinu, hvort sem við erum tala um heilbrigði, menntun, löggæslu, samgöngur eða hvað það nú er annað, að við séum að nálgast verkefnið þannig að við ræðum um þjónustuna eins og hún birtist fólkinu í landinu. Svo get ég ekki stillt mig um að nefna hér í blálokin, þegar maður sér hvernig þetta þing er að enda hjá ríkisstjórnarflokkunum með mjög hliðstæðum hætti og í fyrra, að við sýnum verkefnunum okkar þá virðingu að geta klárað þau.