fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Nú höfum við rætt þetta í heilt ár með hagvöxt og framleiðni og framlögin á vinnustund sem við komum inn á. Allar forsendur á bak við þetta hafa breyst töluvert. Við erum t.d. að sjá hvað hagvöxturinn var raunverulega miklu meiri en við höfum séð í gögnum eins og fyrir árið 2022. Í nóvember 2021 var spáð 5,3% hagvexti. Svo var raunhagvöxturinn 3,6% hærri en það kom í ljós núna í mars. Síðan kemur að við erum færri en við héldum þannig að framleiðni á klukkustund er töluvert meiri en við héldum fyrst. Það er kannski áhugavert líka að benda á það sem kom þeim sem hér stendur töluvert á óvart í þessari umræðu í Morgunblaðinu í gær þegar var verið að kynna hér samkeppnishæfnisúttekt IMD viðskiptaháskólans í Sviss um það sem snýr að því sem við hv. þingmaður höfum verið að ræða mikið síðastliðið ár í fjármálaáætlun og fjárlögum síðast, þ.e. framleiðni og skilvirkni. Þá kemur í ljós að við erum í 14. sæti þar af 67 mestu velmegunarríkjum heims. Þetta kom mér á óvart. Ég spyr hvort hv. þingmaður sé sammála mér um að þetta komi á óvart vegna þess að við erum mjög upptekin af því að tala fyrir samkeppnishæfni, verðmætasköpuninni og að auka hana. Það er það sem þetta gengur allt út á til að tryggja góð lífskjör í landinu. Þannig að þetta kom svolítið á óvart þegar ég las þetta í gær.
Síðan vil ég rétt koma inn á fjárfestingar í samgöngum. Það er erfitt að fara í gegnum hálftímalanga ræðu í stuttu máli en fjárfestingar í samgöngum eru í þessari fjármálaáætlun, þ.e. að auka hlutfall fjárfestinga í samgöngum landsins úr 1,3% í 1,7% á tíma fjármálaáætlunarinnar og nálgast þá fyrri hlutföll betur.