fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mér fannst þetta svolítið heimilisleg innkoma að mæta með Moggann hér í púltið. En já, ég gat nánast getið mér til hver spurningin yrði því að við höfum rætt mikið þetta með hagvöxtinn og framleiðni í nefndinni og höfum nú verið skoðanasystkini í því efni. Ég las þessa sömu frétt og mér fannst hún áhugaverð varðandi þennan punkt um samkeppnishæfnina sem þingmaðurinn nefnir og ég var að tala um í minni ræðu. Þingmaðurinn hlýtur að hafa tekið eftir því hvaða þýðingu erlend fjárfesting hefur í þessu samhengi. Það er líka vísbending sem við ættum að taka mjög alvarlega, hvað það er sem gerir það að verkum að erlend fjárfesting er með þeim hætti sem hún er og hvort stjórnvöld séu í því samhengi þá að sinna því hlutverki sínu að umhverfið á Íslandi sé nægilega aðlaðandi fyrir erlenda aðila til að leita hingað. En mér hefur fundist mjög áhugavert að hlusta á hv. þingmann í nefndinni af því að ég veit að hann hefur verið á svipuðum slóðum varðandi áhuga sinn á því að stjórnvöld hafa auðvitað mjög mikið um það að segja hvernig framleiðnin þróast, að stjórnvöld eigi ekki bara að sitja á bekknum og fylgjast með atvinnulífinu. Þau hafa aktíft hlutverk þarna. Með atvinnustefnu og með því að styðja við greinar þar sem framleiðni er mikil þá er tiltölulega auðvelt að hafa áhrif til góðs í þessu efni.