154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[18:14]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Við höfum auðvitað rætt áður um þá sérstöðu á Íslandi að hér vantar á mörgum sviðum verulega upp á samkeppni; á bankamarkaði, hver staða neytenda er varðandi bensínkaup, á matvörumarkaði o.s.frv. Við heyrum það auðvitað líka og það eru til skoðanakannanir sem sýna hvað íslensk nýsköpunarfyrirtæki segja að sé þeirra stærsta hindrun. Eru það stjórnvöld? Nei. Er það gjaldmiðillinn? Já. Ég held að það séu 70% fyrirtækjanna sem nefna það. Þannig að þetta er nú aðeins meira en bara hitamælir, þetta er raunveruleg hindrun. Jú, jú, það er hægt að leggja það þannig upp að hér sé bara verið að mæla einhvern hita en það eru til sterkir og öflugir og voldugir gjaldmiðlar og svo eru til litlir. Hliðstæðan við Færeyjar, hvernig markaðurinn og aðstæður eru þar, hvernig atvinnulíf er uppbyggt þar — einhverra hluta vegna lifa þau það af að vera ekki með íslenska krónu. Þeim vegnar raunar bara mjög vel.

Hv. þingmaður nefnir líka launakostnað, hvers vegna hann er svona hár á Íslandi. Það er kannski í einhverju samhengi líka ákveðinn hitamælir. Hvernig ætlarðu að bæta fólki það upp að hér er lítil samkeppni, að hér er hár grunnkostnaður í matvöru, á húsnæðismarkaði o.s.frv.? Hvernig ætlarðu að bæta launþeganum það upp að hér eru vextir alltaf hærri? Hér er verðbólga alltaf hærri, hér er grunnkostnaður alltaf hærri. Við getum ekki tekið gjaldmiðilinn út fyrir sviga.

Ég lék mér að því að nota orðið töfralausnir af því að þetta er alltaf sagt við okkur sem erum að tala um gjaldmiðilinn. Þá erum við í hópi þeirra sem eru að boða einhverja framtíð, boða eitthvað sem getur ekki gerst yfir nótt. Það geta vaxtabætur gert. Það getur einhver innspýting ríkisins gert. Samtalið snýst í raun og veru ekki um annað en bara að við viðurkennum það að þetta er séríslensk breyta og hún hefur áhrif. Þetta er ekki eina breytan (Forseti hringir.) en það er fráleitt að láta sem svo að það hafi engin áhrif að vera með þennan (Forseti hringir.) örgjaldmiðil okkar.