154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[18:16]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029. Meiri hlutinn í fjárlaganefnd tekur undir margt af því sem fram kemur í áliti fjármálaráðs og sérstaklega það sem fram kemur um góða stöðu opinberra fjármála hérlendis í samanburði við önnur Evrópuríki. Það er mikilvæg staða sem við þurfum að viðhalda og byggja enn frekar á. Fjármálaráð hefur bent á að útgjaldaregla sem myndi kveða á um að útgjöld vaxi ekki hraðar en verðmætasköpun til langs tíma stuðli bæði að sjálfbærni og stöðugleika. Þessum málflutningi höfum við Sjálfstæðismenn haldið lengi á lofti. Núverandi afkomuregla hefur þann ókost að hún veitir ekki leiðsögn í uppsveiflu og getur því leitt til of mikillar útgjaldaaukningar þegar hagkerfið er í vexti. Ég tel að það sé full ástæða til að taka upp útgjaldareglu til viðbótar við núverandi fjármálareglur. Við teljum að slíka reglu þurfi ekki að lögbinda til að byrja með heldur sé eðlilegt að fá reynslu af því að stýra rammasettum útgjöldum áður en lögum um opinber fjármál er breytt. Við höfum áður bent á kosti útgjaldareglu og teljum að hún geti bæði verið gagnlegt tæki til að auka stöðugleika og sjálfbærni opinberra fjármála til lengri tíma litið.

Aðeins um endurmat útgjalda og eftirlitshlutverk fjárlaganefndar. Í ljósi þróunar útgjalda undanfarinna ára sammælist meiri hlutinn einnig um áherslu á verkefni um endurmat útgjalda. Á undanförnum árum hefur verið vaxandi áhersla á að ná fram skilvirkni og auka framleiðni innan ríkiskerfisins. Einn veikleiki rammafjárlagagerðarinnar er sú mikla áhersla á þær fjárhæðir sem eru breytilegar milli ára án þess að grunnfjárveitingar sem þegar eru innan ramma séu endurskoðaðar. Verkefninu um endurmat útgjalda er ætlað að vega á móti þessum veikleika með því að greina kerfisbundið útgjöld til tiltekinna verkefna eða málaflokka. Reynsla annarra ríkja hefur sýnt að ef vel tekst til þá skilar endurmatið hagræðingu, bættri forgangsröðun í samræmi við pólitískar áherslur og gleggri yfirsýn yfir verkefni hins opinbera. Það er mikilvægt að þetta starf verði eflt á öllum sviðum ríkisfjármálanna. Til að ná fram framangreindum markmiðum sem þessu tengjast er nauðsynlegt að fjárlaganefnd fylgi fast eftir eftirlitshlutverki sínu með skipulögðum hætti og kalli eftir árangursmati einstakra verkefna ríkisins í heild sinni. Eitt fjölmargra verkefna sem nauðsynlegt er að leggja mat á er árangur húsnæðisstuðnings, þar á meðal hlutdeildarlána og almenna íbúðakerfisins, því mikilvægt er að kortleggja hvaða stuðningskerfi skila bestum árangri og ráðstafa þeim fjármunum sem fara í hvers konar stuðning á skilvirkan hátt.

Aðeins um verkefnið sem snýr að betri vinnutíma. Í áliti meiri hlutans um fjárlagafrumvarp fyrir 2024 beindi meiri hlutinn því til ríkisstjórnar að koma af stað markvissum mælingum á skilvirkni innan sinna ráðuneyta og undirstofnana og er það ítrekað í nefndaráliti meiri hlutans um fjármálaáætlun áranna 2025–2029. Markmið vinnutímabreytinga var að bæta vinnustaðamenningu og nýtingu vinnutíma, auka skilvirkni, bæta gæði þjónustu, tryggja betur gagnkvæman sveigjanleika og stuðla þannig að bættum lífskjörum og samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Í skýrslu KPMG kemur fram að innleiðingin hafi ekki gengið sem best. 77% stofnana fóru í hámarksvinnutímastyttingu þrátt fyrir að stjórnendum hefði verið ráðlagt að fara hægt í sakirnar og innleiða styttinguna í skrefum samhliða umbótum á rekstri og þjónustu. KPMG taldi áhrif stéttarfélaga hafa gert þetta að verkum þar sem þau töldu kjarasamningsbundinn rétt félagsmanna sinna að fá hámarksstyttingu, en skyldur um gagnkvæman ávinning fylgdu ekki nægilega sterkt með. Í fæstum tilfellum skilgreindu stofnanir upphafsstöðu og þar af leiðandi eru ekki til staðar mælanlegir mælikvarðar til að meta áhrif breytinganna og árangur með tilliti til markmiða. Áhöld eru um að hve miklu leyti stofnanir hafi yfirsýn á árangur. Ekki eru vísbendingar um að stytting vinnuvikunnar hafi hækkað launakostnað en sterkar vísbendingar eru um að þjónustustig ríkisstofnana hafi lækkað og meðaltal fyrir starfsánægju lækkaði örlítið þrátt fyrir almenna ánægju með verkefnið meðal starfsfólks. Lækkun þjónustustigs er forsendubrestur í verkefninu sem ráðist var í og innleitt var hjá flestum stofnunum of geyst og framkvæmdin var ekki í samræmi við skýrar forsendur og markmið.

Það er gríðarlega mikilvægt að innan ráðuneyta og stofnana sé komið á markvissum mælingum á skilvirkni til að hægt sé að meta áhrif breytinga með réttum hætti og fara sem best með almannafé.

Á árunum 2017–2023 hækkuðu framlög til Ríkisútvarpsins um 1,6 milljarða kr. þegar tekið er tillit til fólksfjölgunar. Kostnaður við þjónustu Ríkisútvarpsins eykst almennt ekki í jöfnu hlutfalli við fjölgun þeirra sem nýta sér þjónustuna. Þess í stað hefur rekstrarkostnaður Ríkisútvarpsins hækkað gríðarlega á undanförnum árum og áratugum og það vekur athygli að launakostnaður Ríkisútvarpsins er hærri en heildarkostnaður allra dómstóla á Íslandi samanlagt. Þetta bendir til þess að nauðsynlegt sé að endurmeta rekstur Ríkisútvarpsins. Heildartekjur þess nema yfir 7 milljörðum kr. á ári hverju. Það er að mínu mati til staðar tækifæri fyrir Ríkisútvarpið til að sinna lögbundnum skyldum sínum fyrir talsvert lægri fjárhæð, t.d. mætti nýta núverandi fjármuni betur og hætta að fjármagna verkefni sem Ríkisútvarpið ætti ekki að sinna eins og hlaðvarpsgerð.

Átta þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu fram frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á rekstrarumhverfi fjölmiðla fyrr á þessu þingi þar sem m.a. var stefnt að því að Ríkisútvarpið yrði ekki lengur opinbert hlutafélag heldur ríkisstofnun. Nú hefur meiri hluti fjárlaganefndar sammælst um að það væri gott að skoða kosti og galla þess að gera Ríkisútvarpið að ríkisstofnun á ný og ákveða framlög þess í fjárlögum hvers árs. Ég tel að þannig gæti nefndin sinnt eftirlitshlutverki sínu betur og tryggt að framlög til Ríkisútvarpsins miði fyrst og fremst að því að sinna lögbundnu hlutverki sínu sem þarf að endurskoða reglulega með tilliti til samkeppni á frjálsum markaði.

Aðeins um samgöngumál. Áætluð stofnkostnaðarframlög til samgöngu- og fjarskiptamála nema samtals 195 milljörðum kr. á tímabili áætlunarinnar, eða tæplega 40 milljörðum kr. á ári. Í fjárlögum ársins í ár nema þau 32,7 milljörðum kr. og hækka um 6 milljarða kr. milli ára, aðallega vegna aukinna framlaga til samgöngusáttmálans á höfuðborgarsvæðinu og aukinna fjárveitinga til framkvæmda í vegakerfinu. Í síðustu viku var samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 frestað til afgreiðslu í haust. Það er mikilvægt að aðgerðaáætlun til næstu fimm ára stemmi við fjármálaáætlun. Samspil framkvæmda og fjármögnunar þeirra þarf að skýra betur, sérstaklega varðandi PPP-samvinnuverkefnin sem fyrirhugað var að fjármagna að hluta til eða að öllu leyti með veggjöldum. Í gildandi samgönguáætlun hefur skapast misræmi við fjárveitingar og meiri hlutinn bendir á í nefndaráliti sínu að það sé óviðunandi staða.

Óvissa er um hvort fjármögnun einnar framkvæmdar muni hafa áhrif á framkvæmd annarra samþykktra verkefna samgönguáætlunar. Ýmis verkefni ættu að vera hafin eða þeim lokið samkvæmt gildandi samgönguáætlun. Skort hefur upp á að nefndir Alþingis hafi fengið ítarleg og fullnægjandi gögn um stöðu stórra fjárfestingarverkefna sem varpa ljósi á framkvæmdir og fjármögnun. Það á ekki síst við um framkvæmdir við Hornafjarðarfljót þar sem samþykktar fjárlagaheimildir voru tæpir 2,5 milljarðar en verkefnið var komið í tæpa 3 milljarða í lok síðasta árs og áætlað að framkvæmt verði fyrir tæpa 4 milljarða á þessu ári. Heildarkostnaður verkefnisins er að verða tæpir 9 milljarðar og ekki er búið að útfæra gjaldtökuna.

Það er Alþingi sem markar stefnuna um hvaða verkefni á að ráðast í og Alþingi ákveður hversu miklar fjárheimildir eru fyrir hvert og eitt verkefni. Það er brýnt að framkvæmdarvaldið fylgi stefnumörkun Alþingis og fjárheimildum. Það er ekki ásættanlegt að fara fram úr fjárheimildum og óska svo eftir því að þingið leiðrétti það eftir á. Við verðum að taka fyrir slíkt verklag framkvæmdarvaldsins.

Við Sjálfstæðismenn höfum í langan tíma talað fyrir því að koma á fót undirnefnd fjárlaganefndar sem hefði það verkefni að fylgjast með og fá skilamat fyrir verkefni sem Alþingi veiti fjárheimildir fyrir. Ég bíð til að mynda enn eftir svari við fyrirspurn minni frá því í febrúar um fjárfestingarátakið sem við veittum heimildir fyrir með fjáraukalögum árið 2020. Þar spyr ég út í það hversu mikil fjárfesting var í hverju verkefni og hverju verkefnin skiluðu. Það er von mín að þessi undirnefnd verði loksins að veruleika í haust.

Ferðaþjónustan hefur á undanförnum árum þróast frá því að vera árstíðabundin starfsemi yfir í að vera heilsársstarfsemi og er nú ein stærsta útflutningsgrein landsins. Hún gegnir lykilhlutverki í að afla gjaldeyristekna fyrir þjóðarbúið. Ferðaþjónustan mun áfram vera stór þáttur í íslensku atvinnu- og efnahagslífi og mikilvægt er að hún fái tækifæri til uppbyggingar eftir áföllin sem heimsfaraldurinn olli. Ferðaþjónustan er ekki aðeins lykilþáttur í að skapa gjaldeyristekjur sem styðja við efnahagslegan stöðugleika landsins heldur hefur hún einnig grundvallarhlutverki að gegna í uppbyggingu landsbyggðarinnar. Með fjölbreyttri starfsemi og fjárfestingum í dreifbýli stuðlar hún að atvinnusköpun og hefur jákvæð áhrif á byggðaþróun sem styrkir samfélög um allt land og gerir þeim kleift að dafna og blómstra.

Í nýsamþykktri ferðamálastefnu eru margar aðgerðir sem ég fagna og hef lengi talað fyrir. Þar má t.d. nefna innleiðingu álagsstýringar með gjaldtöku á áfangastöðum ferðamanna til að vernda náttúru og innviði og leitast við að koma í veg fyrir neikvæða upplifun gesta en ekki síður heimamanna. Í stefnunni eru margar metnaðarfullar aðgerðir og mikilvægt að við leggjum áherslu á að kostnaðarmeta þær og mæla ávinninginn. Þá höfum við lengi talað fyrir því að gerð verði greining á því hverjar tekjur ríkisins eru af mismunandi tegundum ferðamanna, eftir ferðamáta til og frá landinu, ferðamáta innan lands og vali á gistingu. Ég hef einnig oft sagt það hér í þessum ræðustól að nauðsynlegt er að tryggja að í ferðaþjónustu keppi samkeppnisaðilar á jöfnum grundvelli hvað varðar regluverk og skattlagningu. Það er því fagnaðarefni að sjá að í stefnunni verða samkeppnis- og skattamálin tekin til skoðunar.

Nokkur orð hér í lokin um samkeppnishæfni og verðmætasköpun. Nú í vikunni var ný samkeppnisúttekt IMD-viðskiptaháskólans í Sviss kynnt. Úttektin fyrir Ísland er unnin í samvinnu við Viðskiptaráð. Þar kemur fram að fyrir áratug sat Ísland í 25. sæti. Á listanum í fyrra sátum við í 16. sæti en förum núna niður um eitt sæti og höfnum í 17. sæti á þessu ári. Miðað við þennan lista þá höfum við Íslendingar náð ágætum árangri síðastliðinn áratug. Ef litið er til einstakra þátta þá skorum við hátt í atvinnustigi þar sem við erum í 8. sæti, í samfélagsumgjörð þar sem við erum í 2. sæti og einstökum undirþáttum eins og skilvirkni atvinnulífs og stjórnarháttum skorum við hátt. Við erum í 14. sæti í framleiðni og skilvirkni sem kemur kannski á óvart miðað við umræðuna hérna heima en auðvitað höldum við áfram að reyna að bæta okkur á þessu sviði eftir öllum leiðum. Við stöndum okkur verst í alþjóðaviðskiptum, erum þar í 59. sæti af 67, í alþjóðlegum fjárfestingum og verðlagi erum við í 60. sæti. Í þessum þáttum sitjum við með neðstu ríkjunum en eins og ég gat um áðan tóku 67 ríki þátt í samkeppnisúttekt IMD-viðskiptaháskólans. Það sem úttektin segir okkur er að við höfum náð góðum árangri síðastliðinn áratug en auðvitað eigum við að gera betur og aldrei sætta okkur við neitt annað en að skipa eitt af toppsætunum í samkeppnisúttektinni. Til þess að ná þangað er nauðsynlegt að straumlínulaga regluverk samfélagsins og bæta skilvirkni. Ísland á allt undir því að auðvelt sé að stunda alþjóðaviðskipti og alþjóðlegar fjárfestingar og að hér á landi búum við við umhverfi sem er ekki til trafala. Okkar verkefni hér í þinginu er því að reka ábyrga skattstefnu auk þess sem agi og skilvirkni einkenni opinber fjármál, einmitt það sem við ræðum hér í dag. Góð lífskjör á Íslandi eiga jú allt undir samkeppnishæfni og verðmætasköpun þjóðarbúsins. — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.