154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[18:32]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Það er ánægjulegt að vera hér að skoða fjármálaáætlun fyrir næstu fimm ár. Það er náttúrlega dálítið þannig að við vitum að eftir fyrsta árið af þessari áætlun þá er mjög erfitt að segja hvort einhver stefnubreyting verði vegna þess að væntanlega verður komin ný ríkisstjórn. Það er margt í svona áætlun sem er athyglisvert vegna þess að í henni er hægt að sjá hvar forgangurinn liggur og við getum verið sammála eða ósammála um margt. Oft er það þannig að það eru einstaka liðir í áætlununum sem við verðum ekki sammála um, þó að kannski séu áætlanirnar í stórum dráttum mjög svipaðar óháð því hvaðan flokkar koma.

Mig langar að fjalla um örfá atriði í tengslum við þessa fjármálaáætlun. Við fyrri umræðu lagði ég fram breytingartillögu sem fékk því miður ekki hljómgrunn meðal nefndarinnar en hún var sú að það yrði hafin vinna við að byggja nýja samhæfingarmiðstöð viðbragðsaðila strax á næsta ári. Við sem höfum unnið í þeirri samhæfingarstöð sem er í notkun í dag, og höfum jafnvel þurft að sitja inni í þeim herbergjum sem nú er búið að loka vegna myglu, vitum að þessi samhæfingarstöð er fyrir löngu sprungin. Þegar hún var búin til fyrir um 20 árum síðan þá var það líka þannig að það var kannski aðeins minna að gera hjá okkur í almannavarnaástandi, enda ekki Reykjaneseldar og jafn mikið af ferðamönnum og nú. En mig langar að vekja athygli hv. þingmanna á að þeir geta enn þá snúið við því að ekki sé farið að byrja á samhæfingarmiðstöðinni með því einfaldlega að greiða atkvæði, væntanlega á morgun, með þessari breytingartillögu.

Það er líka athyglisvert að í vinnu fjárlaganefndar koma inn breytingar, bæði frá minni hluta og meiri hluta, en mér þótti sérstaklega ánægjulegt að sjá tvær breytingar sem meiri hlutinn stendur á bak við. Mig langar að hrósa meiri hlutanum fyrir að hafa horft á þessa tvo hluti og bætt þeim inn og skilið að þarna þurfti að forgangsraða í réttar áttir. Í fyrsta lagi er það að við fengum öll mikið ákall frá lögregluembættum landsins og lögreglumönnum öllum um að það mætti ekki skera niður eða vera með aðhaldskröfu, eins og það er kallað, á þessa grunnþjónustu sem við þurfum öll að treysta á en það er einmitt löggæslan. Í tillögu meiri hlutans er lagt til að afnema þessa aðhaldskröfu á lögregluna, Landhelgisgæsluna og dómstólana. Það er ánægjulegt að sjá að þarna hlustaði meiri hlutinn og ég óska honum til hamingju með það að hafa hlustað vel og hafa gert þessa breytingu. Ég held að við þurfum að ganga enn lengra í viðræðum okkar við lögreglumenn og yfirlögregluþjóna víða um land. Það kom sérstök áhersla á að það þyrfti að fara aftur að setja pening í það sem kallað er samfélagslöggæsla og við höfum einmitt lagt fram tillögu þess efnis.

Í öðru lagi gerir meiri hlutinn tillögu um að fjármagn verði sett í að opna sendiráð á Spáni. Þetta er nokkuð sem Íslendingar búsettir á Spáni og Kanaríeyjum hafa verið að þrýsta mikið á, enda mjög margir Íslendingar sem búa á þessu svæði og þeim mun fleiri sem koma þarna á ferðalögum og þurfa einmitt að geta nýtt sér þjónustu sendiráðs og sendiherra. Þetta eru ekki miklar upphæðir þegar kemur að heildaráætlunum fyrir næstu ár og því mikilvægt að þarna náðist góð samstaða. Mig langar bara að þakka nefndarmönnum í fjárlaganefnd og þá sérstaklega langar mig að þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni, formanni nefndarinnar, fyrir að keyra þetta og löggæsluna í gegn. Það er mikilvægt að við hlustum og forgangsröðum rétt og þarna ætla ég ekki að deila við meiri hlutann heldur þvert á móti að hrósa honum fyrir að hafa hlustað vel og þakka kærlega fyrir það fyrir hönd þeirra sem hafa verið að ýta á okkur, vegna þess að við fáum öll þrýsting um alls konar hluti. Þarna eru góð forgangsmál sett inn og svo vonum við að við bætum alla þessa hluti og bætum við samfélagslöggæsluna og ýmislegt annað þegar næsta ríkisstjórn er komin. Hver veit hverjir verða í henni? En ég vona að þeir hlusti á það að við þurfum að halda áfram og vinna þetta áfram.

Ég ætla ekki að eyða meira af tíma þingsins í þessu máli og þakka bara kærlega fyrir.