fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Forseti. Rétt í lokin ætla ég aðeins að renna yfir hvað þarf að gera. Eins og ég sagði í fyrstu ræðunni þá er þetta fjármálaáætlun sem þarf einfaldlega henda í tætarann og byrja upp á nýtt. Hvernig ætlum við að byrja upp á nýtt? Eins og ég fer hérna yfir í nefndarálitinu þá tel ég að við ættum að byrja á því að klára það sem vantar upp á varðandi nýja stjórnarskrá sem setur valdhöfum skýr mörk og fjarlægist þetta geðþóttavald konungs, forseta, í raun og veru sem ríkisstjórnin fer með þegar allt kemur til alls. Þjóðin þarf nefnilega að hafa skýrar heimildir til að grípa inn í störf löggjafarvaldsins með frumkvæðisrétti og málskotsrétti. Það þarf að breyta kosningakerfinu til að jafna atkvæði atkvæðavægi svo að stærri framboðum sé ekki hyglað á kostnað þeirra minni, eða minni kjördæmum jafnvel á kostnað þeirra stærri. Tryggja þarf að val kjósenda sé það sem gildir en ekki val flokka á röðun á lista. Það þarf að efla sveitarfélög og nærþjónustu þeirra til að löggjafarvaldið geti sinnt störfum sínum fyrir allt landið og koma ekki nálægt kjördæmapotsverkefnum. Því næst þarf, eins og var talað um í andsvörum aðeins áðan, að leggja niður fjármála- og efnahagsráðuneytið, alla vega í núverandi mynd, þannig að ábyrgð fjárheimilda fylgi ábyrgð ráðuneyta á einstökum lögbundnum verkefnum. Það þarf að sameina ráðuneyti og stoðþjónustu stofnana í fáar og skilvirkar greiningar til að tryggja innra gæðaeftirlit stjórnsýslunnar, að það sé sjálfstætt ásamt því að efla ytra eftirlit löggjafarvaldsins hjá Alþingi og eftirlitsstofnunum þess.
Við erum dálítið púsluspil. Samfélagið er eins og púsluspil og eins og staðan er núna einhvern veginn þá er búið að taka svona tíu púsluspil saman, grauta þeim öllum í einn haug og róta síðan til. Svo er búið að vera að reyna að púsla saman einhvers konar mynd úr því öllu en við vitum að það gengur ekki. Að lokum þarf einhvern veginn að taka það allt í sundur og byrja að raða upp á nýtt. Maður gerir þetta mjög mikið í ákveðinni verkefnavinnu þegar kerfin eru orðin of stór og flókin, kannski eins og með almannatryggingakerfið núna, það er verið að setja það upp á nýtt. Við þurfum að gera það í stærra samhengi.
Við erum að glíma við svo margt og mikið meira heldur en áður. Við erum með þetta blessaða hægri og vinstri sem skilgreiningin á er sífellt að breytast, íhald og frjálslyndi, það er Evrópusambandið, það er einkarekstur og ríkisrekstur, það er hinseginleikinn og trúin og landsbyggðin og höfuðborgarsvæðið, flugvöllurinn og stjórnarskráin, framtíðin og fortíðin, hrunið og Covid og spilling og samgöngur og heilbrigði og lýðræði og menntun og velferð og allt þetta sem við erum alltaf að glíma við að reyna að púsla saman einhvers konar heild út frá en gengur satt best að segja ekkert rosalega vel. Almennt séð höktir þetta áfram. Þetta er svona eins og þrjú hjól undir bílnum og áfram höktir hann þó. Við erum ríkt land þannig að það má vera ýmislegt sem er bilað og samt er það bara ágætt. En við verðum að vera dálítið heiðarleg gagnvart göllunum. Þegar einhver er að benda á augljósa galla þá megum við ekki bara svara beint: En allt er svo æðislegt, sjáið þið ekki öll meðaltölin, allan hagvöxtinn, sjáið þið ekki hvað veislan er æðisleg? Það eru ekki allir sem hafa æðislega veislu. Það er enn þá fólk að bíða eftir réttlæti o.s.frv.
Uppskriftina að betra samfélagi er að finna í tillögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá og í þeirri rýni sem hefur farið fram á þeim tillögum. Það vantar bara þessi innihaldsefni í réttum skammtastærðum til að klára verkefnið því að hingað til hefur engin ríkisstjórn getað lokið málinu sem þjóðin setti í hendurnar á stjórnvöldum eftir þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2012. Það geta ekki kallast góð vinnubrögð í lýðræðisríki. Það verður að gera betur. Ef fólk og sérstaklega kjörnir fulltrúar geta ekki viðurkennt það, þótt þeir séu ósammála því meira að segja, að það er skrýtið að geta ekki farið eftir niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu, sama hver persónuleg skoðun kjörinna fulltrúa er, þá eigum við í alvörunni í mjög miklum vanda. Þetta er mál sem við verðum að klára og gera það vel. En það er ákveðin afneitun í gangi sem kallast pólitískur ómöguleiki. En pólitíski möguleikinn er lýðræði sem við verðum að hlusta á og lýðræðið er æðra en skoðanir einstakra flokka.