154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[18:44]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég fór yfir helstu atriðin í nefndarálitinu mínu í fyrri ræðu minni en mig langaði að eyða þessum síðustu fimm mínútum hér í að ræða hvað gæti tekið við ef hlutirnir væru gerðir með aðeins öðruvísi hætti. Það þarf ekki alltaf umpólun eða byltingu á einni nóttu til heldur vilja til að færa áherslur í aðeins aðra átt sem geta síðan til lengri tíma skilað miklum árangri. Ég er alveg meðvituð um það, og við erum það í Samfylkingunni, að það er mjög mikilvægt að nýta fjármagn með skynsamlegum hætti. Það er engin pólitísk afstaða að fara vel með opinbert fjármagn og auðvitað er skilvirkni í rekstri hins opinbera stöðug krafa af hendi jafnaðarfólks og ætti auðvitað að vera meðal allra stjórnmálaflokka. Staðreyndin er hins vegar sú að áframhaldandi flöt aðhaldskrafa og kropp á útgjaldalið ríkissjóðs, eins og hefur til að mynda birst okkur í þessari fjármálaáætlun þegar kemur að kjarasamningsfjármögnun, hefur á síðustu árum aukið álag á starfsfólk víða í almannaþjónustu og þetta hefur líka bitnað á fjárfestingarstigi hins opinbera. Innviðaskuldin eykst og var mikil fyrir. Þetta eykur rekstrarkostnað ríkisins og dregur úr getu samfélagsins til þess að standa undir þessari verðmætasköpun sem allir hér eru svo uppteknir af og segja að það þurfi í rauninni ekki að gera neitt vegna þess að það sé bara verið að bíða eftir verðmætasköpuninni.

Það skiptir alveg ofboðslega miklu máli að halda því til haga að Samfylkingin talar ekki fyrir töfralausnum heldur fyrir gerlegum breytingum sem er hægt að koma í framkvæmd í öruggum skrefum. Við höfum talað um tvö kjörtímabil því tengd. Hér er ígildi rúmlega eins kjörtímabils undir en það er líka staðreynd að fólk þarna úti er með heilbrigða skynsemi. Það áttar sig á að það mun taka sinn tíma að lyfta innviðum landsins upp um flokk. Það skilur alveg að arðbærar fjárfestingar kalla á aukin útlát í fyrstu sem borga sig upp á löngum tíma og það verður að gera hlutina í réttri röð. Við erum óhrædd við að tala um fjármögnun ríkissjóðs. Við sjáum þetta til að mynda bitna á samgöngum í landinu þar sem við erum langt undir því meðaltali sem við bárum okkur áður saman við. Að halda því fram að það sé hægt að ráðast í átak í samgöngum án þess að til þurfi fjármögnun er að tala fyrir töfralausn. Við erum tilbúin til að tala fyrir fjármögnun sem snýr að því að fara beint í slíkar framkvæmdir.

Við höfum líka talað fyrir tveggja kjörtímabila vegferð um að koma á almennum auðlindagjöldum, t.d. í sjávarútvegi, fiskeldi, orkuvinnslu og ferðaþjónustu og erum til að mynda með bein áhrif af slíkum gjöldum á tekjulið ríkissjóðs í okkar útspilum. En við tölum líka um óbein áhrif sem felast í því að geta nýtt fjármagn sem úr þessu kemur í fjárfestingu vegna þess að fyrirtæki sem starfa í tengslum við slíkar auðlindir greina þurfa vegi, þau þurfa húsnæði fyrir sitt fólk og þetta gengur ekki upp nema samneyslan standi undir samfélaginu sem fyrirtæki starfa í.

Það er sannarlega hægt að finna tekjur með þessum hætti. Það verður alltaf stór pólitísk spurning um hvernig skattlagningunni er dreift. Það er bara umræða sem fólk verður að horfast í augu við hér inni ef það vill á annað borð fara í umbreytingu á almannaþjónustu. Ég vil bara láta það koma fram hér að skattalækkun, forseti, sem skilar nokkur þúsund krónum á mánuði til fólks en tekur mögulega 40–50 milljarða út úr ríkissjóði á ársgrundvelli eykur ekki lífsgæði fólks ef afleiðingar hennar eru verri almannaþjónusta, hærra húsnæðisverð og auknar launakröfur sem leka síðan út í verðlag og skapa verðbólgu. Í raun má segja, forseti, að skattalækkanir undangenginna ára hafi fuðrað upp vegna verri almannaþjónustu og hækkandi verðlags. Þess vegna vil ég bara ítreka það hér að það er nauðsynlegt að ræða hvernig við fjármögnum samtrygginguna okkar og samspil þjónustu, verðlags og lífskjara í miklu breiðara samhengi í staðinn fyrir að einblína bara á skattprósentuna hverju sinni. Það væri óskandi að við kæmumst á þann stað í umræðunni að við áttuðum okkur á því að það þarf að fjárfesta í verðmætasköpun.

Hér í lokin vil ég bara þakka fyrir þessa umræðu, ítreka þakkir mínar til nefndarinnar og vonandi förum við að sjá breytingar þegar framtíðarfjármálaáætlanir verða lagðar fram.