154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[18:49]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Við höfum hér í dag rætt fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029. Við í fjárlaganefnd höfum unnið að málinu á undanförnum misserum og meiri hluti nefndarinnar hefur komið sér saman um ákveðnar breytingar. Ég vil nota tækifærið og þakka nefndinni fyrir gott samstarf í vetur.

Mig langar að nýta þennan stutta tíma minn hér í þessari umræðu í að ræða sérstaklega stöðu lögreglunnar. Meiri hluti fjárlaganefndar hefur mótað þá stefnu að löggæsla skuli vera undanþegin almennri aðhaldskröfu á tímabili áætlunarinnar. Eins og fram kom í ræðu formanns nefndarinnar hér fyrr í dag, hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar, er sérstaða lögreglunnar með þeim hætti að aðhald kallar alltaf á fækkun starfsfólks. Lögreglan er nú þegar undirmönnuð. Ég hef áður bæði í ræðu og riti fjallað um stöðu löggæslu á landsbyggðinni, hve illa hefur gengið að manna einmenningsstöður lögreglunnar. Allt of oft eru einstaklingar einir á vakt yfir mjög víðfeðm landsvæði. Aukið álag og ofbeldi gegn lögreglunni veldur því að erfiðara getur verið að fá fólk til starfa, bæði skammtíma- og langtímaveikindi aukast og einstaklingum er hættara við að lenda í kulnun í starfi. Af þessu leiðir hið augljósa: Við verðum að standa betur með lögreglunni og styðja betur fjárhagslega við bakið á þessari mikilvægu stétt. Þess vegna erum við hér í þessari fjármálaáætlun að taka aðhaldskröfuna af lögreglu. Einnig vil ég nefna að í fjárlögum ársins 2023 kom fram tímabundin fjárveiting upp á 1,5 milljarða kr. Þá eru húsnæðismál embættisins ekki síður áhyggjuefni en sem dæmi má nefna að myglu- og rakaskemmdir hafa komið upp í húsnæði lögregluembættisins á Suðurnesjum.

Virðulegi forseti. Í krefjandi starfi er góð vinnuaðstaða lykilatriði og mikilvægt að húsnæðismál embættisins verði sett í forgang af hálfu ráðuneytis og Framkvæmdasýslu ríkisins og vinnu við þarfagreiningu hraðað eftir fremsta megni.

Ég held að við séum að leggja hér fram ábyrga og góða fjármálaáætlun. Ég er á þessu nefndaráliti meiri hlutans. Við erum að leggja til ákveðnar breytingar varðandi hluti sem eru mikilvægir. Ég hef nú nefnt lögregluna en það má líka nefna Landhelgisgæsluna og háskólasamfélagið. Það er mjög mikilvægt þegar verið er að sameina háskóla að það sé gert vel og það sé hugað að öllum þáttum og þá ekki síst uppbyggingu í minni einingunum. Það er alltaf sú hætta fyrir hendi í öllum sameiningum stofnana, hvort sem það eru skólar eða aðrar stofnanir, að höfuðborgin sjúgi til sín alla starfsemi og starfsfólk, það er auðvitað mjög alvarlegt mál og mikilvægt að Háskólinn á Hólum fái að halda sinni kjarnastarfsemi. Þess vegna fagna ég sérstaklega þeirri breytingu að styðja þar við uppbyggingu á húsnæði.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég þakka fyrir góða og mikilvæga umræðu í dag. Við erum að skila góðu verki og ég hef lokið máli mínu.