154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[18:53]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Bara rétt í blálokin, ég var nú í sjálfu sér búin að reifa helstu sjónarmið Viðreisnar í samhengi við þessa fjármálaáætlun sem liggur fyrir okkur á Alþingi núna. Okkar leiðarstef hefur í sjálfu sér bara verið það sama, að kalla eftir því að fjármálaáætlun og síðan einstök frumvörp sem hér er verið að afgreiða geti haldist með sæmilegum hætti í hendur. Því miður hefur töluvert skort upp á það. Það er auðvitað enginn sérstakur bragur að því að vera að afgreiða hér mál sem eiga sér síðan — það er hægt að segja að fjármálaáætlun styðji ekki með nægilegum hætti við frumvörpin en þá erum við kannski komin líka út í það í samhengi frumvarpa að þau eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum. Aðgerðir sem ekki eru fjármagnaðar eru bara fögur markmið. Mig langaði að árétta þetta því að mér finnst vera stígandi í þessum vinnubrögðum af hálfu meiri hlutans núna eftir því sem sígur á og líður á þetta kjörtímabil.

Annars vil ég bara þakka hv. formanni, af því að ég sé að hann situr hér í salnum og er þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að hlusta á allar þessar fínu ræður í kvöld, þakka Stefáni Vagni Stefánssyni kærlega fyrir gott samstarf og fyrir að hafa leitt þessa nefnd, finnst mér, með farsælum hætti og þakka öðrum nefndarmönnum sem hér sitja í salnum sömuleiðis fyrir gott samstarf. Einhverra hluta vegna er ekki alveg uppselt hér í kvöld en ég geri bara ráð fyrir því að hinir nefndarmennirnir sem ekki gátu komist hlýði á við annað og betra tækifæri.

En að öllu gamni slepptu þá finnst mér þetta, við sjáum þetta með dramatískum hætti varðandi samgönguáætlunina núna, við sjáum þetta varðandi heilbrigðisþjónustuna, við sjáum þetta varðandi löggæslu, við sjáum þetta varðandi alla þessa grunnþætti, að það skortir töluvert á um það — og það er kannski ekki eingöngu við pólitískar ákvarðanir að sakast heldur einfaldlega er þetta brýning mín til ráðherranna um að ganga eftir þeim gögnum þannig að frumvörpin þeirra eigi raunverulega möguleika á því að geta orðið að veruleika.