fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Ég vil koma upp í lok þessarar umræðu og þakka fyrir hana. Hún er búin að vera afskaplega góð og þörf þótt sjónarmiðin séu að sjálfsögðu ólík og nálgun okkar á þetta verkefni, fjármálaáætlun, mismunandi. Hv. þingmenn voru farnir að nota gervigreind við að skoða fjármálaáætlunina og vitnuðu sömuleiðis í Morgunblaðið úr ræðustóli Alþingis. Hv. þingmenn töluðu um að setja áætlunina í tætarann og því voru ýmis sjónarmið sem komu upp við þessa umræðu, en góðar og gildar ábendingar sömuleiðis sem við hv. þingmenn og nefndarmenn fjárlaganefndar þurfum að taka með okkur í áframhaldandi vinnu við fjárlög og næstu fjármálaáætlun.
Eins og ég segi þá greinir okkur hv. þingmenn á um forgangsröðun fjármagns í þessari áætlun og það er ekkert nýtt undir sólinni í því. Við komum úr ólíkum áttum og höfum ólíka sýn á hlutina, þess vegna erum við jú hér inni í þessum flokkum. Það sem ég held að við séum nú flest sammála um er t.d. mikilvægi endurmats útgjalda, að við reynum að átta okkur betur á því í hvað fjármagnið er að fara sem við erum að úthluta á hverju ári, þá ekki bara nýja fjármagnið heldur einmitt líka það sem er, eins og við höfum talað um, innan ramma, sem einhvern veginn flæðir óheft á milli áætlana ár frá ári. Forgangsröðun okkar, þó að ég hafi talað um að okkur greindi á um hana, held ég að sé í stóra samhenginu heilbrigðismál og velferðarmál, sem við setjum á oddinn og viljum setja á oddinn. Ég tel að það sé gert í þessari áætlun og tel að við höfum verið að gera það í okkar fjárlögum og okkar fjármálaáætlun. Við þurfum, og um það erum við öll sammála, að ná niður vaxtastigi í landinu og ná niður verðbólgu. Okkur greinir á um aðferðir í því en engu að síður er það sameiginlegt markmið okkar allra sem erum hér inni að ná þessu niður og ná tökum á efnahagsástandinu. Ég tel sömuleiðis að það sé gert og að sú leið sem við förum í þeirri fjármálaáætlun sem hér er lögð fram styðji við það markmið okkar.
Að því sögðu ætla ég ekki að lengja umræðuna umfram það sem komið er og þakka enn og aftur kærlega fyrir góðar og fínar umræður um þessa fjármálaáætlun. Ég þakka enn og aftur fyrir störf nefndarinnar í vetur og samstarfsmönnum mínum í hæstv. fjárlaganefnd fyrir góða samveru og góð kynni. Ég lýk máli mínu hér um fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029. Takk fyrir.