ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ágætu framsögu hér á máli sem mér er nánast ómögulegt að skilja með tilliti til þess að árið 2023 hagnaðist þessi banki, sem ríkið er að fara að selja núna, um 24,6 milljarða. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs varð ansi mikill slaki, bankinn hagnaðist ekki nema um 5,4 milljarða. Ef fram heldur sem horfir verður hagnaður þessa banka eigi minni en 21,6 milljarðar á árinu 2024, samtals á þessum tveimur árum er það 46,2 milljarða kr. hagnaður sem er u.þ.b. á pari við það sem ríkisstjórnin, hæstv. fjármálaráðherra, hefur áætlað að fá fyrir sölu á Íslandsbanka.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Finnst honum þetta eðlilegir viðskiptahættir þegar við tökum þetta hrunveldi sem Glitnir – banki var á þeim tíma, eftir efnahagshrunið 2008, og svo réttum við úr kútnum, íslenskur almenningur. Á tíu árum hefur þessi banki hagnast um 170 milljarða kr. Eru það eðlilegir viðskiptahættir að einkavæða núna þann hagnað sem íslenskur almenningur á skilið að fá að njóta? Finnst hv. þingmanni þetta sem sagt fyrirmyndarrekstrarfyrirkomulag? Og er það ekki rétt, hv. þingmaður, að þegar er búið að ráðstafa þessum 48 milljörðum sem áætlað er að fáist fyrir restina af þessari gullgæs okkar, Íslandsbanka? Það er gert ráð fyrir að við fáum 48 milljarða fyrir það, ekki satt?