154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[20:23]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Ágúst Bjarni Garðarsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ef við tökum fjármálakerfið í heild fyrir þá held ég að ég hafi alveg verið skýr á því, bæði í ræðum hér, í greinaskrifum og fjölmiðlaumfjöllun, að ég hefði alveg kosið að fjármálafyrirtæki yrðu skattlögð sérstaklega með einhvers konar hvalrekaskatti. En við erum að ræða allt annað mál hérna. Ég held að það sé ekki skynsamlegt til lengri tíma að ríkið sé stór eigandi í fjármálakerfinu hér á landi. En hvað sem því líður erum við þó eigendur að einum stórum banka og við erum enn sem komið er stór hluti í Íslandsbanka. Við verðum að sjá hvað þetta frumvarp leiðir af sér. Ég held að það sé ekki mjög skynsamlegt, svo að ég ítreki það bara, að ríkið sé mjög stór hluthafi í fjármálakerfinu. Ég held að það sé skynsamlegt að reyna að minnka þá ábyrgð og hlut ríkisins þar. Ég held að sú leið sem verið er að boða hér í þessu frumvarpi sé einmitt til að koma til móts við þau sjónarmið sem hafa verið uppi í íslensku samfélagi eftir síðustu sölu. Þrátt fyrir að ég geti alveg staðið hér og sagt að ríkið hafi fengið gott verð, mikla fjármuni, fyrir þann hluta sem var seldur á sínum tíma, í síðustu tveimur sölum, þá erum við alla vega að koma til móts við það og segja að almenningur í landinu geti tekið þátt í þessu útboði. Mér finnst það gríðarlega mikilvægt og þetta er algjörlega í samræmi við fjárlögin og þetta er í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um að losa um eignarhald ríkisins í fjármálafyrirtækjum.