154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[20:25]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég var ekki að spyrja um fjármálakerfið í heild sinni, ég er að spyrja um gullgæs. Þegar verið er að tala um að það sé áhætturekstur fyrir íslenskt samfélag að reka banka, er það þá svo að það sé ákveðinn klafi fyrir íslenskt samfélag að fá meira en 20 milljarða á ári í hagnað fyrir eignir sínar? Skil ég það rétt? Ég næ engu um það, engu. Fyrir utan það var ég ekki heldur að tala um hvalrekaskattinn. Ég var ekki að mæla fyrir frumvarpinu þar sem ég óskaði eftir því að þessir bankar greiddu meira til samfélagsins af öllum sínum gróða. Ef ég skil hv. þingmann rétt er hann einn af þeim sem vill ekki að þjóðin beri þann mikla kross að hagnast of mikið af eigum sínum.

Í öðru lagi langar mig að spyrja hv. þingmann: Hvað varð um hæfisreglurnar, hv. þingmaður? Hvað varð um hæfisreglurnar sem áður voru til staðar? Og svo að ég leiðrétti hv. þingmann hafa báðar undangengnar sölur á Íslandsbanka verið algjört hneyksli. Sú fyrri var nú eiginlega þeim stjörnum prýdd að eignarhlutir ríkisins í Íslandsbanka voru seldir langt undir markaðsvirði. Það kom bara í ljós einhverjum tveim til þrem dögum seinna, þegar þeir sem keyptu innleystu hagnaðinn. En ég ítreka þessa spurningu: Hvað varð um hæfisreglurnar sem greinilega er verið að firra alla ábyrgð á? Og hv. þingmanni þykir sem sagt eðlilegt að taka þann kross af íslenskum almenningi, sem hefur endurreist þetta kerfi, og reyna eftir fremsta megni að hlífa honum við því að fá 24–30 milljarða kr. hagnað af eigum sínum á hverju einasta ári. Það er betra að selja í einni einskiptisaðgerð og fá 48 milljarða sem þegar hefur verið sólundað frekar en að halda áfram að hagnast. Ég spyr hv. þingmann: Eru einhverjar blikur á lofti um (Forseti hringir.) að við séum að fá lækkandi vexti? Eru einhverjar blikur á lofti um að það sé að draga úr verðbólgu? (Forseti hringir.) Eru einhverjar blikur á lofti um að við munum tapa á því að halda áfram að eiga okkar banka?