154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[20:27]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Ágúst Bjarni Garðarsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla bara að byrja þar sem hv. þingmaður lauk sínu máli, hvort einhverjar blikur séu á lofti um að verðbólgan sé að lækka. Verðbólgan er að lækka. Við sjáum það, þrátt fyrir að hafa fengið örlítið skot í síðasta mánuði, að verðbólgan hefur lækkað um tæp 4%, að ég held, á ekki svo mörgum mánuðum. Ég held að við getum alveg horft bjartsýn fram veginn og að verðbólga muni, ef haldið er skynsamlega á málum, halda áfram að lækka í íslensku samfélagi. Þar með, ef við sjáum verðbólguna lækka enn frekar, treysti ég því að vextir í landinu muni einnig lækka.

Ég held að það deili enginn um það, þrátt fyrir orð hv. þingmanns, að það sé ekkert mjög skynsamlegt að ríkið reki banka. Ég held að bankarekstur sé áhætturekstur, ég held að allir séu sammála um það. Hvort ríkið eigi bankana (Gripið fram í.) eða einkaaðilar — nei, hv. þingmaður er ekki sammála en ég er algjörlega þar og ég hef ekki heyrt nokkurn mann tala á öðrum nótum en að bankastarfsemi og í raun fjármálastarfsemi sé áhætturekstur. (Gripið fram í.) En hvað sem því líður ætla ég að tilgreina það, vegna þess að hv. þingmaður spurði hér um hæfi, og ég fór yfir það í ræðu minni, að það er sérstakur kafli sem tekur á sérstöku hæfi ráðherra. Það er alveg ljóst að ráðherrann ber auðvitað höfuðábyrgð. En varðandi sérstaka hæfið þá erum við að tala hér um 5. gr., ef ég næ að lesa þetta rétt, já, þar sem reglan samkvæmt orðanna hljóðan, eins og ég fór yfir í mínu máli, á aðeins við þegar um er að ræða ráðstöfun hlutanna, að ekki ráði (Forseti hringir.) ómálefnaleg sjónarmið för þegar kemur að því að úthluta þeim hlutum sem boðið hefur verið í.