ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Forseti. Hugtök eru mikilvæg, þau hafa ákveðna tæknilega þýðingu. Í þessu máli er verið að nota ákveðna þýðingu á tæknilega hugtakinu „fullmarkaðssett útboð“ sem umsagnaraðilar, sem komu fyrir nefndina, sögðu einfaldlega að væri útfært á mismunandi hátt eins og því væri lýst í frumvarpinu og hvað það þýddi í ensku tæknilegu skýringunni. Þar er sem sagt þýðing á fullmarkaðssettu útboði á ensku. Útskýringin á því hvað fullmarkaðssett útboð er, miðað við frumvarpið, er þó ekki sú sama og tæknilega útskýringin á enska hugtakinu, eins og umsagnaraðilar bentu á á fundunum. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi ekki áhyggjur af þessu af því að það skiptir máli að fólk viti hvað það er að gera þegar það nálgast svona útboð. Og ef það kemur hér erlendur aðili sem heldur að hann sé að nálgast fullmarkaðssett útboð á þeim forsendum sem hugtakið þýðir á ensku tæknilega séð þá gengur hann ekki inn í sama ferli miðað við lýsingarnar í frumvarpinu miðað við íslensku þýðinguna á hugtakinu. Ég velti fyrir mér af hverju ekki er góð umfjöllun um þetta í nefndaráliti meiri hlutans.