154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[20:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Ágúst Bjarni Garðarsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Þetta er vissulega eitthvað sem kom inn á borð nefndarinnar og er sérstaklega tekið til í nefndarálitinu þegar kemur að hugtakanotkun þar sem hugtakið „fullmarkaðssett útboð“ er mjög vel reifað. Það kemur fram að í umsögn Seðlabanka Íslands sé gerð athugasemd við það hugtak. En jafnframt kemur þar fram, og meiri hlutinn bendir á það, að í greinargerð með frumvarpinu kom fram að fullmarkaðssett útboð, þ.e. opið útboð til allra fjárfesta, sé nefnt almennt útboð verðbréfa í lögum. Það kemur jafnframt fram í 4. gr. að Seðlabankinn muni þurfa að staðfesta lýsingu sem í frumvarpinu er nefnd útboðslýsing. Þannig að það er alveg skýrt hér að meiri hlutinn tekur undir þá afstöðu ráðuneytisins, sem kom fram í minnisblaði frá þeim, að hugtakanotkunin muni ekki valda vandræðum. Ég held að þetta svari þá áhyggjum hv. þingmanns.