154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[20:33]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Nei, þetta er einmitt það sem veldur mér áhyggjum, ég vil orða það þannig. Seðlabankinn er þarna með athugasemdir og fleiri umsagnaraðilar eru með athugasemdir sem ráðuneytið segir bara að séu ekki réttar. Síðan koma aðrir sérfræðingar — sérfræðingar sem kunna þetta mjög vel og hafa gert mjög lengi og eru með nákvæmar lýsingar á því hvernig fyrirkomulag svona útboða virkar — og segja að miðað við tæknilegar útskýringar á þessu orði á mörkuðum passi þetta tvennt ekki saman. Sá hugtakaruglingur sem þarna er býr til ákveðna óvissu og við vorum einfaldlega vöruð við því í nefndinni að það gæti orðið ágætiskatastrófa, álitshnekkir, var orðið sem var notað, minnir mig, að sneiða fram hjá því hver tæknilega útskýringin á hugtakinu í ensku þýðingunni væri miðað við hvernig framkvæmdin á síðan að vera samkvæmt íslenskri þýðingu orðsins. Þegar verið er að nota sama hugtak í íslenskri og enskri þýðingu þá á framkvæmdin að vera eins. En miðað við lýsingarnar í frumvarpinu, miðað við lýsingar umsagnaraðila, Seðlabankans og ráðuneytisins, og þá sérstaklega þess, þá passar það ekki við ensku tæknilegu lýsinguna. Það er vandamálið. Þannig að nei, þetta er ekki — ég bað um góða útskýringu í nefndaráliti meiri hlutans en ekki bara útskýringu sem svarar þessu ekki.