ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt andsvar. Við hv. þingmaður deilum þá um það. Það er útskýring og það góð útskýring vegna þess að það er algerlega mín staðfasta trú að það sem kemur fram í nefndarálitinu sé mjög skýrt og taki svolítið vel á þessum atriðum.
Af því að ég fann svo sem ekki aðra spurningu í máli hv. þingmanns þá ætla ég bara að leyfa mér að nýta tímann og ítreka það sem ég sagði hér áðan í framsögu minni. Hér er um að ræða nýtt fyrirkomulag við að fara með eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Mér finnst mjög mikilvægt að leggja áherslu á það þar sem lögð er áhersla á ríkari aðkomu þingsins, það er algerlega óumdeilt þar sem það er einmitt sérstök áhersla á það sem kallað hefur verið á í íslensku samfélagi, þ.e. aukið gagnsæi, jafnræði og aukna upplýsingagjöf til almennings. Þetta eru þættir sem ég hef lagt ríka áherslu á við vinnslu málsins og ég held að við séum að ná hér nokkuð vel utan um þá í þessum nefndarálitum sem skilar sér svo inn í frumvarpið. Ég held og ég vona að þetta svari að einhverju leyti áhyggjum hv. þingmanns og þetta vekur kannski fleiri spurningar.