ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf. frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar, sem er sú sem hér stendur, fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni.
Fyrsti minni hluti telur mikla ágalla vera á frumvarpinu og ekkert sé þar að finna sem vinnur gegn því vantrausti sem stjórnarmeirihlutinn og þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra, nú forsætisráðherra, skapaði sér með síðustu sölu á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka. Skemmst er að minnast að þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra gætti ekki að hæfi sínu við söluna líkt og umboðsmaður Alþingis benti á og hætti í kjölfarið sem fjármála- og efnahagsráðherra. Í frumvarpinu, sem marka á umgjörð fyrir sölu á þeim hlutum sem eftir eru í eigu ríkisins í bankanum, er ákvæði um að sá ráðherra sem heldur um söluna þurfi ekki að gæta að hæfi sínu. Slíkt ákvæði er ekki líklegt til að byggja undir traust heldur þvert á móti líklegt til að ýta undir tortryggni við sölu á þessum eigum almennings.
Í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem kom út árið 2018 er talað um traust á fjármálakerfinu. Þar er fjallað sérstaklega um að ekki hafi tekist að endurheimta traust hérlendis með sama hætti og á fjármálamörkuðum annarra þróaðra ríkja. Stefnumörkun og næstu skref stjórnvalda þurfi því að haldast í hendur við uppbyggingu trausts og virkt samtal við almenning.
Í hvítbókinni er einnig talað um að ein af þremur stoðum undir fjármálakerfið sé traust eignarhald fjármálafyrirtækja sem stuðlar að heilbrigðum og traustum rekstri með langtímasjónarmið að leiðarljósi. Breytingar á eignarhaldi ríkisins í fjármálafyrirtækjum muni hafa töluverð áhrif á framtíð fjármálakerfisins.
Frú forseti. Könnun Gallups frá því í október 2018 sýndi að þá, áratug eftir fjármálaáfallið, báru einungis 16% mikið traust til fjármálakerfisins og 57% lítið traust til þess.
Hlutverk ríkisins er að tryggja umgjörð sem stuðlar að verðskulduðu trausti og heilbrigðu eignarhaldi. 1. minni hluti telur einsýnt að sú umgjörð fáist ekki með því frumvarpi sem við ræðum hér. Með því er ekki heldur tryggt líkt og mælt er með í hvítbókinni að eigendur banka séu traustir, hafi umfangsmikla reynslu og þekkingu á starfsemi banka, hafi fjárhagslega burði til að standa á bak við bankann þegar á móti blæs og langtímasjónarmið að leiðarljósi við rekstur bankans.
Virkt samtal við almenning um fjármálakerfi eftir hrun hefur ekki farið fram. 1. minni hluti telur mikilvægt að almenningur komi að stefnumörkun um framtíðarbankakerfi sem þjónar sem best fólki og fyrirtækjum í landinu líkt og lögð er áhersla á í umræddri hvítbók.
Fyrir síðustu sölu voru aðeins 23,5% hlynnt sölunni á hlutum ríkisins í bankanum samkvæmt Gallup-könnun frá því í janúar 2021 og 56% alfarið á móti sölunni. Engum ætti að dyljast að langt er í land að traust ávinnist á ný og olli síðasta sala á hlutum í bankanum greinilegu bakslagi í þeim efnum, en samkvæmt Gallup-könnun sem framkvæmd var í apríl 2022 töldu ríflega 87% að illa hefði verið staðið að sölunni. Aðeins 6% töldu að vel hefði verið staðið að henni.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að lög um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum falli úr gildi en þar er fjallað um skyldur og hlutverk Bankasýslu ríkisins og ábyrgð ráðherra. Það er ekki að finna sambærileg ákvæði í frumvarpinu sem við ræðum hér um fyrirhugaða sölu og gerir Seðlabanki Íslands athugasemdir við það í sinni umsögn. Það er nauðsynlegt til þess að koma í veg fyrir vantraust og tortryggni að skilgreina hlutverk og ábyrgð ráðherra og annarra þeirra aðila sem hugmyndin er að komi að útboðinu. Enginn vafi má vera þar um en frumvarpið skilgreinir þetta ekki vel eða með skýrum hætti og það er óásættanlegt.
Forseti. Í greinargerð með frumvarpinu má sjá að ein ástæða þess að lagt er til að hæfisreglur II. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gildi ekki um útboð skv. 4. gr. frumvarpsins er til þess að girða fyrir ágreining um túlkun hæfisreglna og er vísað til álits umboðsmanns Alþingis í máli nr. F132/2023. 1. minni hluti telur hagsmuni þá sem undir eru vega þyngra en sjónarmið um að girða fyrir mögulegan ágreining. Frekar ætti að mati 1. minni hluta að girða fyrir slíkan ágreining með því að slá því föstu að reglur um sérstakt hæfi gildi sannarlega um útboð skv. 4. gr. Þá bendir 1. minni hluti á að jafnframt segir í áliti því sem vísað er til að það sé Alþingis að meta hvort tilteknar aðstæður réttlæti að allir þættir málsmeðferðar séu undanskildir reglunum. Telur 1. minni hluti ekki hafa verið sýnt fram á það með óyggjandi hætti að aðstæður séu til staðar sem réttlæti að undanskilja reglur um sérstakt hæfi við sölu á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtæki þessu.
Þá kemur fram í skýringum við 5. gr. frumvarpsins að almenn útboð á borð við það sem kveðið er á um í frumvarpinu séu þess eðlis að ekki verður talin hætta á að ómálefnaleg sjónarmið ráði för við ákvarðanatöku og er í því sambandi vísað til sjónarmiða 2. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga. Þá er ekki að finna frekari skýringu á þeirri staðhæfingu. Við umfjöllun málsins í nefndinni var í því samhengi á það bent að ferlið yrði að mestu vélrænt. 1. minni hluti veltir því jafnframt upp hvort það komi þá nokkuð að sök að hæfisreglur séu ótvírætt látnar gilda um útboðið og að um það leiki enginn vafi.
Fyrsti minni hluti getur ekki tekið undir þá túlkun 2. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga sem virðist vera lögð til grundvallar ákvörðun um að undanskilja hæfisreglurnar. Í greinargerð með frumvarpi því er varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að rétt sé að hafa í huga að „aðeins er heimilt að bera fyrir sig 2. mgr. 3. gr. að það sé almennt augljóst að aðstæður séu þær að ekki sé hætta á því að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á ákvörðun málsins“. Þá segir jafnframt að við mat á því hvort skilyrði ákvæðisins séu uppfyllt sé „rétt að fara strangt í sakirnar þar sem miklir hagsmunir eru í húfi“. 1. minni hluti telur að við sölu á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtæki þessu séu gríðarlega miklir hagsmunir í húfi og því rétt að fara strangt í sakirnar og því þurfi óyggjandi rök að vera að baki því mati að „eðli máls“ sé með þeim hætti að ekki sé hætta á að ómálefnaleg sjónarmið ráði för. 1. minni hluti telur ekki hafa verið sýnt fram á að augljóst sé að aðstæður séu með þeim hætti að ekki sé hætta á að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á ákvörðun málsins. Í ferli sem þessu er mikilvægt að reglur sem þessar séu til staðar til að taka á atvikum, jafnvel ófyrirsjáanlegum tilvikum, þar sem reynt getur á sérstakt hæfi.
Að baki reglum um sérstakt hæfi liggja einkum tvenns konar sjónarmið, annars vegar um öryggi og hins vegar um traust. Sjónarmið um öryggi felur í sér að efnislegri réttri niðurstöðu sé náð og að hæfisreglunum sé ætlað að vera eins konar öryggisnet og þannig koma í veg fyrir rangar ákvarðanir. Í áliti umboðsmanns Alþingis í máli nr. 8122/2014 kom fram, með leyfi forseta:
„Markmiðið að baki þessum reglum er að minnka hættuna á að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á ákvarðanir og gerðir þeirra sem fara með stjórnsýsluvald. Segja má að hinar sérstöku hæfisreglur séu brjóstvörn málefnalegrar stjórnsýslu.“
Þá er reglum um sérstakt hæfi ætlað að auka og tryggja traust almennings á stjórnsýslunni. Þá skiptir ekki aðeins máli hvort ákvörðunaraðili láti ómálefnaleg sjónarmið hafa áhrif á sig í reynd eða að hætta sé á því, heldur vegur það einnig þungt hvernig málið horfir við almenningi. Í áliti umboðsmanns Alþingis í sama máli sagði, með leyfi forseta:
„… hinar sérstöku hæfisreglur hafa ekki eingöngu að markmiði að minnka hættuna á að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á efni stjórnvaldsákvarðana, heldur er þeim einnig ætlað að stuðla að því að almenningur og þeir sem hlut eiga að máli geti treyst því að stjórnvöld leysi úr málum á hlutlægan hátt.“
1. minni hluti telur að þessi sjónarmið ættu að vera leiðarstef hér og eru þau í raun algjört grundvallaratriði í ljósi eðlis málsins. Sú ákvörðun að taka reglur um sérstakt hæfi úr sambandi er til þess fallin að minnka traust almennings við sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka.
Að framangreindu virtu telur 1. minni hluti ekki rétt að undanskilja reglur um sérstakt hæfi eins og lagt er til í 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins. Það eru að mati 1. minni hluta ekki fyrir hendi aðstæður eða skýringar sem réttlæta að vikið sé frá reglunum. Þá snýst þetta um trúverðugleika og traust almennings á ferlinu í heild sinni og ekki síst um málefnalega og vandaða stjórnsýslu. Það er brýnt að auka traust almennings eftir fyrra útboð og telur 1. minni hluti þetta ekki til þess fallið að gera það, heldur þvert á móti.
Ljóst má vera, forseti, af ræðu minni að 1. minni hluti, sú sem hér stendur, styður ekki málið en verði það samþykkt tel ég nauðsynlegt að það verði gert með þeirri breytingu að það að ráðherra þurfi ekki að gæta að hæfi sínu falli brott úr 5. gr., þannig að 1. mgr. 5. gr. falli brott og fyrirsögnin breytist að sama skapi í „Upplýsingagjöf og úttekt“.
Frú forseti. Við munum öll hvernig fór með síðustu sölu á hlutum í Íslandsbanka. Það fór ekki vel. Allar umræður í samfélaginu, allar kannanir sem gerðar hafa verið hafa sýnt nákvæmlega það að almenningur var ekki par hrifinn af því sem þar gerðist og er því ekki sérstaklega áfjáður í að selja meira, a.m.k. að sinni. Í þessu frumvarpi fær ráðherra í hendurnar ákvörðun um það hversu stór hluti verður seldur í einu. Hann getur ákveðið að selja allan hlutann sem eftir er eða taka minni búta. Það er ekkert sem afmarkar það með neinum hætti. Hlutverk og ábyrgð ráðherrans eru ekki skilgreind eða skýr í þessu frumvarpi og auk þess þarf hann ekki að gæta að hæfi sínu.
Samfylkingin greiddi atkvæði gegn því þegar fjárlögin voru afgreidd hér fyrir síðustu áramót að veita leyfi til að selja hlutina í Íslandsbanka, einfaldlega vegna þess að við treystum ekki þessari ríkisstjórn til að gera þetta. Hún hefur sýnt að hún er ekki traustsins verð þegar kemur að því að selja eigur almennings. Það er bara bláköld staðreynd. Þetta frumvarp styður við það, nákvæmlega það að ekki er hægt að treysta þessari ríkisstjórn til að halda áfram að selja hlutina sem eftir eru í eigu ríkisins í Íslandsbanka. Mér finnst það augljóst mál, forseti, og ég vona að þegar frumvarpið kemur til atkvæða á morgun verði meiri hluti fyrir því að greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi, í það minnsta, í allra minnsta lagi að láta hæfisreglur gilda um söluna. Það er bókstaflega hlægilegt, forseti, og sorglegt í senn að þegar kom í ljós að fyrri fjármála- og efnahagsráðherra gætti ekki að hæfi sínu og gerð var athugasemd við það þegar eignarhlutirnir voru seldir í síðasta söluferli, að ríkisstjórnin grípi þá til þess ráðs að segja bara: Allt í lagi, þegar við seljum næst þá tökum við það af með lögum. Ráðherra þarf ekkert að gæta að hæfi sínu. Þá er ekki hægt að gagnrýna það við næstu sölu. Þetta er ekki bjóðandi, frú forseti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)