154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[20:54]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með tillögu til rökstuddrar dagskrár, geri það fyrir hönd varaþingmanns Flokks fólksins sem sat áður í efnahags- og viðskiptanefnd, Georgs Eiðs Arnarsonar. Hérna er verið að ræða um frumvarp til laga um ráðstöfun eignarhluta í Íslandsbanka.

Í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008, þegar stóru bankarnir þrír, Glitnir, Kaupþing og Landsbankinn, urðu gjaldþrota og í kjölfar ýmissa neyðarráðstafana og loks með gerð samninga við kröfuhafa föllnu bankanna, þá eignaðist ríkið bæði Íslandsbanka og Landsbankann og einnig hlut í Arion banka. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstrihreyfingarinnar — græns framboðs hefur stefnt að því æ síðan að reyna að selja og losa okkur við þessar eignir og hefur hún þegar selt allan hlut okkar í Arion banka og 57,5% hlutafjár Íslandsbanka. Eftir stendur að ríkið á ríflega 99% hlutafjár í Landsbankanum og 42,5% hlutafjár í Íslandsbanka. Með frumvarpi þessu er lagt til að eftirstandandi hlutur ríkisins í Íslandsbanka verði seldur í markaðssettu útboði.

Ég ætla hér aðeins að fara í ríkisstjórnina og Íslandsbanka og hrakfallasögu þeirra því að í ríkisstjórnarsáttmálanum 2017 var fjallað um eignarhald ríkisins á viðskiptabönkum og lagt til að ríkið myndi leita leiða til að draga úr því. Þó var fullyrt að Alþingi fengi til umfjöllunar hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið áður en stefnumarkandi ákvarðanir yrðu teknar um fjármálakerfið. Eigi að síður seldi ríkisstjórnin 13% hlut ríkisins í Arion banka á 23,4 milljarða kr. aðeins nokkrum mánuðum eftir kosningar, löngu áður en umrædd hvítbók leit dagsins ljós.

Ég ætla í framhjáhlaupi að nefna að á þessum tíma, þegar þessi 13% eignarhlutur í Arion banka er seldur á 23,4 milljarða að tilstuðlan Bankasýslunnar, sem allir vita náttúrlega hver stýrði, þá voru bara engin lög í landinu sem voru gild um Bankasýslu ríkisins. Á þessum tíma, alveg eins og þegar Borgun var seld á sínum tíma, var Bankasýslan í lagalegu tómarúmi.

Svo að ég snúi mér aftur að því sem ég ræði hér þá fékk Alþingi í raun aldrei tækifæri til að fjalla efnislega um hvítbókina því að hún hafði ekki litið dagsins ljós þegar við drífum okkur í að selja — ekki við, ég kom náttúrlega ekki nálægt því — 13% eignarhlut í Arion banka. Hún var gefin út af Stjórnarráðinu í lok árs 2018 og í kjölfarið var gefin munnleg skýrsla um hana á Alþingi snemma árs 2019. Efnahags- og viðskiptanefnd fékk kynningu á efni hvítbókarinnar en fjallaði ekki frekar um hana. Umfjöllun um hvítbókina af hálfu Alþingis var því verulega takmörkuð. Í hvítbókinni var fjallað um eignarhald ríkisins á bönkunum og sú niðurstaða fengin að rétt væri að hefja sem fyrst undirbúning og sölumeðferð bæði Íslandsbanka og Landsbankans. Sala á eignarhlutum ríkisins væri til þess fallin að draga úr áhættu, fórnarkostnaði og neikvæðum samkeppnisáhrifum. Það skal þó tekið fram að frá þeim tíma er ríkið eignaðist bankana og fram að gerð hvítbókar þá höfðu bankarnir ávallt — ég endurtek, ávallt — skilað myndarlegum hagnaði.

Næst dró til tíðinda þegar ríkisstjórnin tilkynnti í janúar 2021 að 35% hlutafjár Íslandsbanka yrðu seld með útboði. Þá er vert að tilkynna og segja frá því — ég man það eins og gerst hefði í gær og þótti mér svolítið furðulegt að þetta gerðist einum eða tveimur dögum áður en þingið fer í jólafrí — að þá erum við kölluð saman til að tilkynna okkur það að þetta ferli yrði í gangi á meðan við værum í jólafríi og það var nánast búið að afgreiða umsagnir og allt þetta ferli þegar við mættum á þingið aftur 23. janúar, að mig minnir. Útboðið fór sem sagt fram í júní 2021 og var útboðsgengið 79 kr. Fyrir söluna fékk ríkið 55,3 milljarða kr. í sinn hlut. Í kjölfarið myndaðist markaðsverð á hlutabréfunum og kom þá í ljós að virði þeirra var töluvert hærra en útboðsgengið. Strax í fyrstu viðskiptum var gengi bréfanna orðið 94 kr. og aðeins mánuði seinna var gengið komið upp í 120 kr. Þvílíkir viðskiptasnillingar. Því má segja að ríkisstjórnarflokkarnir hafi selt ríkiseign á undirverði örfáum mánuðum fyrir kosningar. Snemma árs 2022 tilkynnti ríkisstjórnin að selja ætti 22,5% hlut í Íslandsbanka með svokallaðri tilboðsaðferð. Salan fór fram þann 22. mars og var söluverðið 117 kr. á hlut. Fyrir söluna fékk ríkissjóður 52,7 milljarða kr. Markaðsverð hlutabréfa Íslandsbanka daginn eftir var strax 5 kr. hærra eða 122 kr.

Strax eftir að tilkynnt hafði verið um söluna hófst mikil umræða í þjóðfélaginu um hvernig staðið hefði verið að henni. Margir voru óánægðir með að eign ríkisins hefði verið seld undir markaðsverði og jafnframt var mikið rætt um það hvort val á kaupendum hefði farið fram með málefnalegum hætti. Svo fór að fjármála- og efnahagsráðherra birti lista yfir kaupendur í útboðinu þann 6. apríl og það vakti strax athygli að margir í hópi kaupenda störfuðu ekki við fjárfestingar þrátt fyrir að lögð hafi verið sérstök áhersla á að leita til fjárfesta eftir tilboðum. Jafnframt vakti það athygli að faðir þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra var einn af kaupendum hlutabréfanna.

Í kjölfarið hófu bæði Ríkisendurskoðun og umboðsmaður Alþingis rannsókn á sölunni. Jafnframt hóf Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands rannsókn á sölufyrirkomulaginu. Ríkisendurskoðun skilaði skýrslu um söluna þann 13. nóvember 2022. Í skýrslunni mátti finna margar ábendingar og ítarlega gagnrýni um hina ýmsu þætti söluferlisins. Að mati Ríkisendurskoðunar hafði upplýsingagjöf til Alþingis í aðdraganda sölunnar ekki verið til þess fallin að draga upp skýra mynd af tilhögun söluferlisins. Þá hafi ekki verið tekið nægilegt tillit til mögulegrar orðsporsáhættu né gætt eins vel og mögulegt var meginreglna um gagnsæi og hlutlægni við söluna. Jafnframt hafi Bankasýslan ekki búið yfir reynslu af sölu með tilboðsfyrirkomulagi og því hafi stofnunin verið afar háð utanaðkomandi ráðgjöfum. Ekki voru að mati Ríkisendurskoðunar gerðar tilhlýðilegar kröfu til umsjónaraðila, söluráðgjafa og söluaðila um umgjörð og framkvæmd sölunnar. Þá taldi Ríkisendurskoðun að eftirspurn eftir hlutabréfum hefði verið vanmetin þegar ákvörðun var tekin um leiðbeinandi lokaverð og ákvörðun um lokaverð hefði fyrst og fremst ráðist af eftirspurn erlendra fjárfesta. Kynningargögn hefðu ekki gefið til kynna að erlend eftirspurn ætti að hafa slíkt vægi við ákvörðun á endanlegu söluferli. Ríkisendurskoðun komst að þeirri niðurstöðu að fjölþættir annmarkar hefðu verið á söluferlinu, bæði hvað varðaði undirbúning og framkvæmd sölunnar.

Fjármálaeftirlit Seðlabankans hóf athugun á tilboðsferli Íslandsbanka þann 12. apríl 2022. Nánar tiltekið laut athugun Seðlabankans að fjárfestingarþjónustu sem Íslandsbanki veitti en Íslandsbanki hafði á grundvelli samnings við Bankasýslu ríkisins tekið að sér að sjá um tilboðssöluferlið að miklu leyti. Þann 30. desember 2022 sendi Fjármálaeftirlitið Íslandsbanka frummat á rannsókn málsins og í kjölfarið lýsti Íslandsbanki yfir vilja til að ljúka málinu með sátt. Þann 7. júní 2023, fyrir rúmu ári síðan, var gengið frá samkomulagi um að ljúka málinu með sátt og samþykkti Íslandsbanki að greiða sekt að fjárhæð 1,16 milljarða kr. Brot Íslandsbanka sem leiddu til sektargreiðslunnar voru margvísleg og lutu að fjölmörgum ákvæðum laga og furðar mig enn að málið skyldi ekki vera kært eðlilega leið til ríkissaksóknara. Það voru brot Íslandsbanka sem leiddu til sektargreiðslunnar. Þau voru margvísleg og lutu að fjölmörgum ákvæðum laga um markaði fyrir fjármálagerninga og er brotunum lýst á eftirfarandi hátt í tilkynningu Fjármálaeftirlitsins dagsettu 26. júní 2023, með leyfi forseta:

„Íslandsbanki hljóðritaði ekki símtöl, veitti viðskiptavinum rangar upplýsingar um skilmála útboðsins og fylgdi ekki skilyrðum laga við mat á umsóknum viðskiptavina um að teljast fagfjárfestar. Þá greip bankinn ekki til fullnægjandi ráðstafana til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, í tengslum við þátttöku stjórnenda og starfsmanna bankans í útboðinu og með fullnægjandi aðskilnaði starfssviða, og bankinn gerði ekki áhættumat í tengslum við aðkomu sína að söluferlinu. Þá veitti Íslandsbanki Bankasýslu ríkisins villandi upplýsingar um flokkun fjárfesta sem tóku þátt í útboðinu. Með þeirri háttsemi að bjóða almennum fjárfestum að taka þátt í útboði sem eingöngu var ætlað hæfum fjárfestum virti Íslandsbanki ekki útboðsskilmála Bankasýslunnar.“

Sáttagjörðin vakti mikla athygli og mörgum blöskraði verklag bankans sem þótti minna á frásagnir úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008. Í kjölfarið þurftu ýmsir háttsettir starfsmenn Íslandsbanka að stíga til hliðar, þar á meðal bankastjórinn sjálfur.

Umboðsmaður Alþingis ákvað að hefja frumkvæðisathugun á málinu eftir að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis lauk umfjöllun um skýrslu Ríkisendurskoðunar um málið og ljóst var að ekki hefði verið tekin rökstudd afstaða til álitaefna um hæfi ráðherra í tengslum við söluna. Umboðsmaður Alþingis skilaði áliti sínu í október 2023, ekki er nú lengra síðan en í október á síðasta ári, á þessum þingvetri. Í áliti umboðsmanns kemur fram að hann teldi ekki þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra hafa samþykkt tilboð einstakra kaupenda þegar hann féllst á tillögu Bankasýslunnar um söluna en hins vegar fólst í ákvörðuninni undanfari ráðstöfunar hlutanna. Ákvörðunin hefði þar af leiðandi verið þáttur í einkaréttarlegum lögskiptum gagnvart kaupendum og yrði því að leggja til grundvallar að reglur stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi hefðu gilt um hana. Skyldi það vera ástæðan fyrir því að allt í einu hafa reglur um þetta sérstaka hæfi poppað út úr frumvarpinu sem er á ferðinni hér og nú til þess að raunverulega verði erfitt og nánast ómögulegt að draga nokkurn til ábyrgðar? Umboðsmaður tók fram að hlutlæg hæfisregla stjórnsýslulaga, sbr. 3. tölulið 1. mgr. 3. gr., hefði átt við þar sem faðir fjármála- og efnahagsráðherra hefði verið stjórnarmaður einkahlutafélagsins sem í hlut átti og þar af leiðandi fyrirsvarsmaður þess. Sem sagt: Fjármálaráðherra bar ábyrgð á því að pabbi hans keypti hlut í bankanum þegar hann var fjármála- og efnahagsráðherra.

Næst tók umboðsmaður til skoðunar hvort undantekningarregla stjórnsýslulaga um vanhæfisástæður hefði átt við. Þótt hann teldi ekkert gefa tilefni til að draga í efa staðhæfingu ráðherra um grandaleysi hans um þátttöku einkahlutafélags föður hans í útboðinu hafði hvorki umboðsmaður né almenningur forsendur til að staðreyna fullyrðinguna. Auk þess, vegna þeirra sérstöku og verulegu hagsmuna sem einkahlutafélagið hafði að gæta af ákvörðun ráðherra og með tilliti til þess að ráðherra hefði notið verulegs svigrúms til mats með tilliti til þess hvort hann samþykkti tillögu Bankasýslunnar eða ekki, gat umboðsmaður ekki fallist á að aðstæðum hefði mátt jafna til ákvörðunar um mál. Þessi skilyrði yrðu að öllu leyti lögbundin og ekkert eða afar lítið mat eftirlátið starfsmanni.

Umboðsmaður tók fram að eitt meginmarkmið sérstakra hæfisreglna væri að fyrirbyggja að upp kæmi sú staða að starfsmaður fjallaði um mál þar sem með réttu mætti efast um óhlutdrægni hans og að vegna aðstæðna málsins og þeirra hagsmuna sem voru í húfi gæti undantekningarregla hæfisreglnanna ekki átt við. Ráðherra hefði því brotið hæfi við ákvörðun sína 22. mars 2022. Fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, tilkynnti í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis að hann myndi stíga til hliðar. Svo fór þó að ráðherrann fluttist einungis á milli ráðuneyta og hóf í kjölfarið störf sem utanríkisráðherra og er í dag orðinn hvorki meira né minna en hæstv. forsætisráðherra.

Þjóðin treystir ekki ríkisstjórninni til að ráðstafa ríkiseignum. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Vinstrihreyfingarinnar — græns framboðs og Framsóknarflokks hefur tvívegis ráðist í söluferli á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Í bæði skiptin var hlutur ríkisins seldur undir markaðsverði og lög voru brotin í síðara söluferlinu, bæði af hálfu söluaðila og af hálfu þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra. Almenningur hefur fyrir löngu fengið nóg af braski ríkisstjórnarflokkanna með Íslandsbanka og hneykslismálin í tíð þessa ríkisstjórnarsamstarfs eru orðin svo mörg að erfitt er að telja þau öll upp. Það er með öllu óásættanlegt að ríkisstjórnin ætli að ganga gegn vilja almennings eftir að hafa tvívegis fallið á prófinu þegar kemur að sölu hlutabréfa í Íslandsbanka. Alveg óháð því hvort landsmenn séu fylgjandi eða andvígir sölu Íslandsbanka er ljóst að þeir treysta ekki sitjandi ríkisstjórn til verksins.

Eftir nýjasta ráðherrastólaleikinn er hæstv. ráðherra Bjarni Benediktsson, sá ráðherra sem sá um fyrri sölu hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, nú orðinn forsætisráðherra og hefur því axlað ábyrgð á eigin misgjörðum með því að hækka sjálfan sig í tign. Til að reyna að slá á gagnrýnisraddir leggur ríkisstjórnin nú til að hlutur ríkisins í Íslandsbanka verði seldur á grundvelli þess frumvarps sem hér er til umfjöllunar. Aðferðin verði hlutafjárútboð opið almenningi. Það er athyglisvert að ríkisstjórnin vilji ráðast í hlutafjárútboð þegar stýrivextir eru í hæstu hæðum, eftirspurn eftir hlutabréfum er lítil og meira að segja hlutabréfaverðið í Íslandsbanka hefur farið lækkandi. Fyrr í þessum mánuði féllu Íslandshótel frá fyrirhuguðu útboði einmitt vegna þess að ekki var mikill áhugi á hlutabréfunum. Verð á hlutabréfum í Íslandsbanka hefur lækkað úr rúmum 120 kr. í ársbyrjun í tæpar 95 kr., a.m.k. þegar þetta nefndarálit er skrifað. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig staðan er akkúrat í dag en þarna hafði hluturinn lækkað um 25 kr. Jafnvel þótt breið samstaða ríkti um að selja eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka eru markaðsaðstæður slíkar að það fer gegn góðri skynsemi að ráðast í slíka sölu nú.

Því hefur verið haldið fram að það sé skynsamlegt fyrir ríkissjóð og sömuleiðis til þess fallið að draga úr áhættu skattgreiðenda og almennings að losa um eignarhald ríkisins á bönkunum. Það er vert að draga fram að á síðasta ári högnuðust viðskiptabankarnir þrír alls um 83,5 milljarða kr. sem er um fjórðungshækkun frá árinu 2022. Samanlagður hagnaður þeirra hefur aðeins einu sinni verið meiri frá fjármálakreppunni árið 2008 en það var árið 2015. Frá árinu 2009 hafa stóru viðskiptabankarnir þrír, haldið ykkur nú, alls skilað rúmlega 902 milljarða kr. hagnaði. Landsbankinn hefur skilað mestum samanlögðum hagnaði á þessu tímabili eða um 342,5 milljörðum kr., Arion banki 282,5 milljörðum kr. og Íslandsbanki rúmlega 277 milljörðum kr. Þar af hefur Íslandsbanki skilað 170 milljörðum kr. í hagnað á síðustu tíu árum.

Í ríkisstjórnarsáttmálanum kemur fram að ríkissjóður muni halda áfram að draga úr eignarhaldi í fjármálakerfinu og nýta ábatann til uppbyggingar innviða. Það er áhugavert að ríkisstjórnin er staðráðin í því að selja eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka þegar um arðbæra starfsemi er að ræða og að réttlætingin sé eingreiðsla til uppbyggingar innviða þegar hagnaður Íslandsbanka síðustu tíu árin er langt yfir þeirri fjárhæð sem ætlað er að ríkisstjórnin muni fá fyrir söluna nú.

Því er ítrekað haldið fram af ríkisstjórninni að bankastarfsemi sé áhættusöm og að ríkið eigi ekki að taka þátt í slíkum áhætturekstri. Það skal ekkert dregið í efa að bankastarfsemi geti vissulega verið á einhverjum tímapunkti áhættusöm, það fengum við að reyna í efnahagshruninu 2008 þegar bankarnir voru hreinlega rændir innan frá eftir einkavæðinguna af eigendum sínum, en þegar litið er til undangenginna ára þá liggur það ljóst fyrir að eignarhald ríkisins á bönkunum einkennist af verulegum hagnaði og hefur skilað ríkissjóði milljörðum á milljarða króna ofan í arðgreiðslur. Nú á að hætta viðtöku reglulegra arðgreiðslna Íslandsbanka og færa einkafjárfestum þessa gullgæs. Aðeins þeir, að mati ríkisstjórnarinnar, geta axlað þá ábyrgð sem þessi mjög svo arðbæra eign er. Það eru sem sagt aðeins þeir sem eiga peninga í dag og hafa efni á því að kaupa gullgæsina okkar sem eru bærir til þess að fá að græða á henni.

Það er ekki útlit fyrir að ágóði sölunnar muni renna til uppbyggingar á einu eða neinu. Það er þegar búið að ráðstafa þessum peningum. Öllu heldur er útlit fyrir að söluandvirðið verði nýtt til að mæta útgjaldavexti og draga úr hallarekstri ríkissjóðs en að mati 2. minni hluta er ekki skynsamlegt að nýta fjármagn sem kemur til ríkisins vegna eignasölu á þann hátt. Virði eftirstandandi eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka er metið á í kringum 100 milljarða kr. en einhverra hluta vegna er búið að gera ráð fyrir 48 milljörðum og bæði í fjárlögunum núna sem samþykkt voru í desember — þeir verða sem sagt að selja eignarhlutinn, skiptir engu máli hvað fæst fyrir hann, þeir eru búnir að gera ráð fyrir því í fjárlögunum og þeir eru að gera ráð fyrir því líka núna í fjármálaáætlun.

Ef rekstur Íslandsbanka verður með svipuðu móti á næstu árum og hann hefur verið undangengin ár, arðsemi eigin fjár bankans verður áfram jákvæð, þá mun ríkissjóður fá samanlagðar arðgreiðslur, ef hann myndi ekki selja bankann, langt, langt umfram það sem hann fær af því að selja hann. Það hlýtur að vekja furðu þegar ítrekað er talað um áhætturekstur af fjármálafyrirtækjum þegar það liggur á borðinu að við erum að mokgræða á því að reka þessa banka. En íslenskur almenningur, íslenskir skattgreiðendur, við erum nógu góð til að reisa gjaldþrota banka upp úr duftinu, til að taka á okkur bankahrunið 2008. Það var allt í lagi að skerða okkur sundur og saman, jafnvel fátækustu öryrkjar urðu að taka á sig 10% launaskerðingu vegna þess að við áttum að hjálpast að við að reisa úr duftinu þau ógeðslegheit sem raunverulega áttu sér stað í efnahagshruninu 2008. En þegar allt er loksins að blómstra þá á að losa sig við eignina til vina sinna og vandamanna vegna þess að það skal tekið fram að þrátt fyrir að hér sé verið að tala um eitthvert markaðsútboð þá er vaxtastigið í landinu það hátt og erfiðleikar almennings það rosalega stórir að það munu fáir ef nokkrir eiga eftir 100.000 kr. eða hvað þá 1 milljón, hvað þá meira, til að taka þátt í partíinu þegar verður opnað fyrir það í fyllingu tímans.

Ég get ekki með nokkru lifandi lífsins móti skilið þessa viðskiptahætti. Hvernig stendur á því að við, íslenskur almenningur, íslenskir skattgreiðendur, skulum vera látin axla ábyrgð á öllu sem heitir tap en þegar það er orðið hagnaður þá skal einkavæða það? Við eigum að reisa allt úr duftinu, við erum skattpínd, við erum vaxtapínd, við erum okurpínd daginn út og inn. Við eigum að hjálpa öllu og öllum en þegar kemur að því að við eigum að fá að uppskera ávextina sem eru farnir að blómstra út af okkar fórnum þá á að tína þá af trénu og koma þeim í annarra hendur.

Ég er hér með frávísunartillögu um þetta frumvarp. 2. minni hluti leggur til að frumvarpinu verði vísað frá með svofelldri rökstuddri dagskrá:

„Með vísan til þess sem að framan er ritað þá samþykkir Alþingi að vísa málinu frá og taka fyrir næsta mál á dagskrá.

Alþingi, 31. maí 2024.

Georg Eiður Arnarson.“

Ég ítreka það að eins og þetta blasir við, og sjá allir sem sjá vilja, er enn einu sinni verið að arðræna íslenskt samfélag, enn einu sinni verið að taka það sem við höfum komið löppunum undir með tárum og svita og blóði til að koma því í fangið á þeim sem eru með fullt R A af peningum. Þannig er nú staðan. Maður er orðinn þreyttur á þessu ofríki og hvernig við erum alltaf fótumtroðin og fáum ekki að njóta gæðanna þrátt fyrir að hafa í rauninni ræktað það upp og það sé alfarið íslenskum skattgreiðendum, íslenskum almenningi, að þakka og þeirra fórnum að Íslandsbanki, náði að blómstra eins og hann gerir í dag. Það erum við sem eigum að fá að njóta ávaxtanna en ekki einhverjir moldríkir einkavinir úti í bæ.