154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[21:20]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta efh.- og viðskn. (Guðbrandur Einarsson) (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir áliti 3. minni hluta um frumvarp til laga um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka, sem er svohljóðandi:

„Með frumvarpi þessu er ráðherra heimilað að ráðstafa eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka hf., að hluta eða öllu leyti, með almennu útboði. 3. minni hluti er fylgjandi því að ríkið selji hluti sína í Íslandsbanka en leggur áherslu á að það sé gert á grundvelli gagnsæis, trausts og með almannahagsmuni í fyrirrúmi. 3. minni hluti leggur einnig áherslu á að andvirði sölunnar verði ráðstafað að fullu til niðurgreiðslu skulda eða arðbærra fjárfestinga en verði ekki varið í áframhaldandi hallarekstur ríkissjóðs. Þannig gefur fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem kveður á um að hallarekstur ríkisins verði viðvarandi til ársins 2028, ekki þá mynd að tekjur ríkissjóðs standi undir útgjöldum á þessu kjörtímabili.

Þriðji minni hluti greiddi atkvæði með því að frumvarpið yrði ekki tekið úr nefnd í núverandi mynd enda telur hann verulega ágalla vera á því sem þarf að leysa úr, þá fyrst og fremst verði frumvarpið að tryggja það að trúverðugleiki og traust ríki um sölu hluta ríkisins í bankanum. Eftir síðustu sölumeðferð eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka er ríkisstjórnin rúin trausti þegar kemur að sölu ríkiseigna. Viðbrögð hennar voru að tilkynna að Bankasýsla ríkisins, sem sá um fyrri sölu, yrði lögð niður. Annars konar söluferli, sem tryggir traust, trúverðugleika, hlutlægni og gagnsæi, hefur þó ekki verið komið á fót. Telur 3. minni hluti að áform um að færa sölumeðferð í staðinn alfarið undir fjármála- og efnahagsráðherra vinni ekki að því að koma á slíku trausti á ný.

Meðal þess sem 3. minni hluti telur einnig ábótavant er að nefndin bregðist ekki við ítarlegum athugasemdum úr umsögn Seðlabanka Íslands. Má þar nefna að Seðlabankinn benti á að með frumvarpinu féllu úr gildi lög nr. 155/2012, um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, og þar af leiðandi ákvæði um skyldur og hlutverk Bankasýslu ríkisins í tengslum við sölumeðferð fjármálafyrirtækja. Seðlabankinn telur að fyrir vikið þurfi að skýra betur hlutverk og ábyrgð ráðherra við framkvæmd útboðs, sem og hlutverk og ábyrgð aðila sem ætlað er að annast utanumhald um tilboðsbækur og skipulagningu og yfirumsjón útboðs. Í nefndaráliti meiri hluta er ekki talin ástæða til að bregðast sérstaklega við þessum athugasemdum. Í umsögn Seðlabankans segir einnig að kanna þurfi hvort ákvæði 4. mgr. 4. gr. frumvarpsins um tilkynningu Fjármálaeftirlits Seðlabankans á skortstöðu samrýmist ákvæðum reglugerðar ESB nr. 236/2012, sbr. lög nr. 55/2017, um skortsölu og skuldatryggingar. Meiri hlutinn fullyrðir að ekkert gefi til kynna að upplýsingaskylda Seðlabankans sé í ósamræmi við reglugerðina og lögin en rökstyður ekki þá niðurstöðu. 3. minni hluti telur athugasemdir Seðlabankans réttmætar og að nákvæmari könnun þurfi að fara fram áður en frumvarpið verður að lögum.

Líkt og að framan greinir verða lög um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum felld úr gildi með samþykkt frumvarpsins, þ.m.t. ákvæði 3. gr. laganna, sem kveður á um meginreglur við sölumeðferð. Í ákvæðinu segir að þegar ákvörðun er tekin um undirbúning og framkvæmd sölumeðferðar skuli „áhersla lögð á opið söluferli, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni“. Í 2. málsl. ákvæðisins segir að með hagkvæmni sé átt við að leitað sé hæsta verðs eða markaðsverðs fyrir eignarhluti. Í stað þessa ákvæðis er í 3. gr. frumvarpsins ákvæði sem segir að við ráðstöfun eignarhlutar skuli „horft til gagnsæis, hagkvæmni, hlutlægni og jafnræðis í skilningi laga um opinber fjármál“. Annars vegar felst efnisleg breyting í því að orðalaginu „áhersla lögð á“ er breytt í „skal horft til“. Hins vegar er hvergi í ákvæði 45. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál, þar sem fjallað er um meginreglur við kaup, sölu og leigu eigna, vísað til þess hvað felist í hugtakinu hagkvæmni. Með samþykkt frumvarpsins er því horfið frá skyldu stjórnvalda til að leita hæsta verðs eða markaðsverðs fyrir eignarhluti. Um þetta segir í áliti meiri hluta nefndarinnar: „Loks verður sala á eignum ríkisins ætíð að grundvallast á hagkvæmni og má ganga út frá því að með útboði þar sem fylgt er fyrrgreindum meginreglum verði því markmiði náð.“ 3. minni hluti telur ótækt að hvergi í frumvarpinu, greinargerð með frumvarpinu eða nefndaráliti meiri hluta sé lögð áhersla á að hæsta verð eða markaðsverð sé fengið fyrir hluti ríkisins í Íslandsbanka.

Að þessu virtu telur 3. minni hluti rétt að frumvarpinu verði vísað aftur til nefndar þar sem bætt verði úr þeim annmörkum sem að framan greinir. Er það nauðsynlegt til að tryggja að traust og sátt ríki um frekari sölu ríkisins á eignarhlutum þess í bankanum.“

Þetta er skrifað á Alþingi 3. júní 2024 og undir þetta ritar sá sem hér stendur, Guðbrandur Einarsson.

Virðulegur forseti. Ég hef nú lokið lestri minnihlutaálits 3. minni hluta vegna sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Á sínum tíma var ákveðið, og eftir síðustu sölu, sem var algjört klúður, nánast að allra mati nema kannski Bankasýslunnar sjálfrar sem taldi að salan væri væntanlega besta sala í Evrópu og þótt víðar væri leitað, að leggja niður Bankasýsluna án þess að fyrir lægi hvað ætti að koma í staðinn.

Nú eru liðin rúm tvö ár síðan og ekkert bólar á fyrirkomulagi sem nýta á við sölu á eignum ríkisins. Að fella úr gildi lög um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, sem Seðlabankinn hefur réttilega bent á að kalli á nákvæma útlistun á því hvað eigi að koma í staðinn, er sérstakt án þess að sterkar sé kveðið að orði. Við í Viðreisn erum ekki mótfallin sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka en við höfum sett fram þau skilyrði að þeir fjármunir sem fáist við söluna verði nýttir til uppgreiðslu eða niðurgreiðslu skulda eða til uppbyggingar innviða.

Staðan er hins vegar sú að vegna stöðu ríkissjóðs nú og næstu ár munu þessir fjármunir hverfa í neikvæðan rekstur hans, sem hefur verið rekinn með halla allt frá árinu 2019 og mun vera það áfram, a.m.k. fram til ársins 2028. Því er grátlegt að sala Íslandsbanka skuli eingöngu verða nýtt til að minnka þörf ríkisins fyrir auknar lántökur.

Mig langar, virðulegi forseti, af þessu tilefni að nefna að í nefndaráliti með breytingartillögu meiri hluta segir að meiri hlutinn sé sammála umsagnaraðilum um að með sölunni verði unnt að draga úr fjárhagslegri áhættu ríkissjóðs og lækka skuldahlutfall hans. Ég spyr: Þegar verið er að selja eignir til að ráðstafa í rekstur, hvernig ertu þá að lækka skuldahlutfall? Þú getur í besta falli komið í veg fyrir að skuldahlutfall hækki en með því að taka eign og selja hana og nýta hana í rekstur, þá ertu ekki að lækka skuldahlutfall. Það þarf ekki mikla kunnáttu til að átta sig á því.

Við horfum nú til þess að fara enn eina leiðina við að selja hluti í Íslandsbanka. Frumútboðið, sem var kallað almennt útboð á sínum tíma og gekk nú ágætlega þó að margir hafi ekki endilega verið sáttir við það verð sem sett var á hlutina, tókst ágætlega, var gagnsætt og fólk skildi um hvað var að ræða. Síðan kom þessi tilboðsleið síðasta sem setti allt á annan endann, var einhvern veginn framkvæmd yfir nótt og enginn vissi og enginn skildi. En svo kom það í ljós eftir á að þarna var um að ræða verulega handvömm sem gerði það m.a. að verkum að Bankasýslunni var sparkað.

Nú á enn að prófa nýja leið. Þessi leið hefur fengið nafnið markaðssett útboð. Ég og fleiri töldum að núna ætti að fara gömlu leiðina sem farin var fyrst, sem var þetta frumútboð eða almennt útboð. En eins og Ásgeir Brynjar Torfason benti okkur á þá er þarna eiginlega verið að fara einhverja blandaða leið beggja, tilboðsleiðarinnar og almenns útboðs, og vildi hann brýna fólk til að átta sig á því hvað væri um að ræða, hvort við yfir höfuð skildum hvað væri verið að gera. Líka voru aðvaranir um það, í ljósi reynslunnar, hverjir væru að selja, hverjir fengju svo að kaupa í þessari lánabók sem á að heita B, held ég. Því voru ýmsar aðvaranir lagðar fyrir okkur sem ég held að vert sé að velta fyrir sér.

Virðulegur forseti. Mér finnst áhugavert að skoða umsögn Samkeppniseftirlitsins sem nefnir fimm atriði sem rétt er að skoða við þessa sölu. Mig langar til að lesa þau, með leyfi forseta:

„a) Að stefnt sé að sem fjölbreyttustu eignarhaldi aðila sem eru líklegir til að hafa að leiðarljósi langtímahagsmuni af traustum bankarekstri.

b) Að kaupendur að stórum hlutum Íslandsbanka eigi ekki jafnframt hlut í keppinautum bankans. Slíkt gæti skert hvata til innbyrðis samkeppni milli bankanna.

c) Að kaupendur bankans séu ekki mikilvægir keppinautar hans því slíkt gæti leitt til skerðingar á samkeppni á viðkomandi markaði/mörkuðum.

d) Að kaupendur bankans séu ekki umsvifamiklir viðskiptavinir bankans því það skapar hættu á hagsmunaárekstrum. T.d. væri hætta á að slíkir aðilar nytu betri kjara og ættu greiðari aðgang að fjármögnun hjá viðkomandi banka en keppinautar þeirra […]. Þetta myndi einnig skapa augljósa hættu út frá fjármálastöðugleikasjónarmiði eins og hrunið 2008 er til vitnis um.

e) Að sala á hlut ríkisins í bankanum leiði að öðru leyti ekki til skerðingar á samkeppni. Stofnist t.d. til nýrra yfirráða við sölu á eignarhlut kemur til kasta Samkeppniseftirlitsins að taka afstöðu til yfirráðanna í samrunamáli. Við undirbúning slíkrar sölu þyrftu stjórnvöld því að huga að því hvort í henni felist skerðing á samkeppni sem leitt geti til íhlutunar Samkeppniseftirlitsins, ógildingu samrunans eða setningu skilyrða.“

Þetta segir í umsögn Samkeppniseftirlitsins sem mér finnst segja mér að það geti bara verið mjög erfitt að selja banka á Íslandi. Það besta sem gæti komið fyrir væri að erlend fjármálafyrirtæki kæmu og keyptu banka en þau hafa bara engan áhuga á því. Eftir hrunið 2008 og svo í framhaldinu, þegar eigendur bankanna flúðu land og þurftu að skilja eftir eignir, eða voru neyddir til að skilja þær eftir, hafa þau engan áhuga á að koma hingað og alls ekki inn í þetta hagkerfi sem við búum við, þetta krónuhagkerfi. Hverjir geta þá keypt banka? Það eru stórir aðilar, og hverjir eru þeir? Það eru m.a. lífeyrissjóðir. Þá segir Samkeppniseftirlitið: Nei, það gengur eiginlega ekki að lífeyrissjóðir séu að kaupa í Íslandsbanka af því að þeir eru í samkeppni við hann. Þeir eru lánveitendur á markaði og keppa við Íslandsbanka um viðskiptavini. Þannig er með ábendingu Samkeppniseftirlitsins verið að útiloka lífeyrissjóði frá kaupum. Okkur fannst þegar tilboðsleiðin var kynnt á sínum tíma ágætt að lífeyrissjóðirnir kæmu inn og myndu þá eignast stóran hlut í Íslandsbanka. Af því varð ekki.

En þessar ábendingar segja okkur að það geti verið snúið að selja þennan banka. Þá veltir maður fyrir sér: Hverjir aðrir eiga að kaupa banka? Ekki mega samkeppnisaðilarnir kaupa bankann, eins og Kvika eða Arion banki. Þá myndi það koma til kasta Samkeppniseftirlitsins því að þarna væri um samruna fjármálafyrirtækja að ræða sem þyrfti að skoða verulega í framhaldinu, sem gæti haft áhrif á þjónustugjöld sem bankarnir leggja á fólk. Þetta er því snúið. Síðan er auðvitað hætta á því að ákveðnir aðilar, eins og gerðist á sínum tíma, sogi upp hlutafé í fjármálafyrirtækjum. Eins og Samkeppniseftirlitið bendir á þá getur verið slæmt að þeir eigi banka sem eru í miklum viðskiptum við banka. Það gerðist bara í aðdraganda hrunsins. Menn eignuðust banka og voru svo í stórum viðskiptum við bankana og settu þá svo á hausinn til mikils skaða fyrir íslenskan almenning. Þarna eru varnaðarorð sem mér finnst vert að við horfum til.

Virðulegur forseti. Mig langar líka aðeins að fara betur yfir það sem Seðlabankinn er að benda á þar sem hann segir að með frumvarpinu falli úr gildi lög nr. 155/2012, um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, og þar af leiðandi ákvæði um skyldur og hlutverk Bankasýslu ríkisins í tengslum við sölumeðferð fjármálafyrirtækja. Seðlabankinn telur að fyrir vikið þurfi að skýra betur hlutverk og ábyrgð ráðherra við framkvæmd útboðs sem og hlutverk og ábyrgð aðila sem ætlað er að annast utanumhald um tilboðsbækur, skipulagningu og yfirumsjón útboðs.

Í nefndaráliti meiri hluta er ekki talin ástæða til að bregðast sérstaklega við þessum athugasemdum og ég fæ ekki séð að það hafi verið komið til móts við ábendingar bankans. Þurfum við ekki að taka alvarlega allar svona ábendingar eða eigum við bara að treysta hæstv. fjármálaráðherra af því að hann er svo góður karl? Þarf ekki eitthvað meira til? Mér finnst að umgjörðin, þegar við erum að vinna með almannafé, þurfi að liggja algerlega fyrir og hver beri ábyrgð. En það er einhvern veginn þannig í þessu frumvarpi að ráðherra þarf bara ekkert að hugsa um ábyrgðina í þessu máli og því verður enginn ábyrgur fyrir því ef þetta klikkar eða eitthvert klúður verður — þá ber bara enginn ábyrgð.

Mig langaði, virðulegi forseti, að lokum að velta því upp að mér finnst að eðlilegra hefði verið að bíða með samþykkt þessa frumvarps vegna stöðunnar á fjármálamarkaði. Háir vextir þýða alltaf að eftirspurn eftir hlutabréfum verður minni. Það liggur bara fyrir. Þá velja fjárfestar aðra fjárfestingarkosti, örugg skuldabréf, verðtryggða reikninga eða eitthvað. Mig langar vegna þessa, virðulegi forseti, að lesa upp úr grein sem birtist í Heimildinni fyrir ekkert löngu síðan sem mér finnst vera áhugaverð og finnst að eigi erindi hingað. Þar segir, með leyfi forseta:

„Gengi bréfa í þeim þremur viðskiptabönkum sem eru skráðir á íslenskan hlutabréfamarkað: Arion banka, Íslandsbanka og Kviku banka, hefur fallið skarpt það sem af er þessu ári og markaðsvirði þeirra samhliða lækkað um tugi milljarða króna.

Ef horft er á eigið fé, virði eigna bankanna umfram skuldir, þá ætti Íslandsbanki að vera verðmætastur bankanna þriggja. Eigið fé hans var 215,7 milljarðar króna í lok mars en markaðsvirðið í lok dags á miðvikudag“ — sem var væntanlega miðvikudagurinn um síðustu mánaðamót — „var komið niður 183,7 milljarða króna.

Það þýðir að ef allar eignir Íslandsbanka yrðu seldar á því virði sem bankinn metur þær á, og allar skuldir greiddar upp, myndu fást 32 fleiri milljarðar króna fyrir þær en markaðsvirði Íslandsbanka segir til um.“

Íslenska ríkið er stærsti eigandi Íslandsbanka með 42,5% hlut og fyrir Alþingi liggur frumvarp um ráðstöfun þess eignarhlutar. Samkvæmt gildandi fjárlögum á að selja helminginn af eftirstandandi eignarhlut á þessu ári. En, virðulegur forseti, þegar upplausnarvirði er orðið hærra en markaðsvirði þá held ég að sé rétt að staldra við. Í frumvarpinu sjálfu sem liggur núna fyrir Alþingi eru vangaveltur um mögulegt söluandvirði og sölu til almennra fjárfesta eins og það heitir. Þar er verið að stilla upp einhverri lítilli krúttlegri töflu um hvað væri hægt að fá fyrir hlutinn ef gengið verður þetta. Þar er talað um að ef gengið væri 106 myndi virði bankans vera 90 milljarðar. Svo fer þetta stighækkandi; ef gengið væri 118 myndum við fá 100 milljarða fyrir bankann. En staðreyndin er hins vegar sú að gengi bankans í dag er 96. Það þýðir að við værum að fá 81,6 milljarða fyrir bankann en ekki 100 milljarða eins og bestu óskir ríkisins eru í þessu. Munurinn er á bilinu 9–10 milljarðar. Það á sem sagt að fara að selja eign almennings langt fyrir neðan það gengi sem var við síðustu sölu þegar selt var á 117. Við kvörtuðum yfir því. Þá var dagsgengið 122 en það var selt á 117. Nú er það 96. Og hverjum dettur í hug að fara að selja eign núna við þessar aðstæður og tapa á því 9 milljörðum? Er það ekki bara fullkomlega galið, herra forseti, að ætla sér að fara að selja almannaeigur á markaði sem hefur fallið verulega á þessu ári og jafnvel á því síðasta, m.a. vegna þess að vextir á Íslandi eru svo háir? Það hefur haft áhrif á íslenskan hlutabréfamarkað.

Að lokum, virðulegur forseti, þá er eins og ég hef dregið fram ekki hagstætt að selja eignarhlut ríkisins í bankanum við þessar aðstæður. Sérfræðingar hafa talað um að það skapist ekki hagfelldar aðstæður til sölu á fjármálafyrirtækjum fyrr en í fyrsta lagi árið 2026. Þess vegna teldi ég, virðulegur forseti, að réttast væri að beðið yrði með að gera þetta frumvarp að lögum því að við hljótum öll að vilja fá sem hæst verð fyrir bankann, eða hvað?