154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[21:46]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta efh.- og viðskn. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Það er áhugavert að hér tali framsögumaður meiri hluta um að það sé hans staðfasta trú að allt í þessu sé mjög skýrt og muni örugglega skila sínu þegar ábendingar umsagnaraðila eru ja, góðar ábendingar sem er svarað illa af ráðuneytinu. Það er t.d. mjög skýr ábending um ákveðinn hugtakamisskilning, þ.e. þegar íslenska hugtakið sem er notað hérna er þýtt yfir á ensku þá þýðir það í rauninni mjög skýra og tæknilega framkvæmd sem er vel reynd á erlendum mörkuðum og þegar sú tæknilega framkvæmd er skoðuð miðað við lýsingarnar í frumvarpinu og svo í greinargerð og þess háttar þá bara passa þær tvær ekki saman. Þegar verið er að spyrja um þetta segir ráðuneytið bara: Nei, nei, þetta er alger misskilningur, við vitum nákvæmlega hvað er við erum að gera. En erlendur aðili sem á kannski að koma inn og fjárfesta hérna, eins og er oft verið að biðja um, skilur ekki íslenskuna, sér tæknilega enska hugtakið og býst við ákveðinni framkvæmd í uppboði sem er síðan ekki sú sama og hann býst við út af tæknilegu hugtakanotkuninni heldur þarf að fara og vaða í gegnum einhvers konar útboðslýsingu sem síðan þýðir eitthvað allt annað heldur en tæknilega lýsingin samkvæmt enska hugtakinu. En þetta er víst bara staðföst trú að hérna sé bara allt vel gert, líklega af því þetta var svo rosalega vel gert síðast þá sé bara góð ástæða til að trúa því að þetta verði bara frábært núna. Nei, það er dálítið vandinn að meðhöndlun þessa máls án þeirrar virðingar gagnvart því sem gerst hefur í þessu máli er ekki traustsins verð. Það er ekki að segja okkur að það sé verið að taka þetta nægilega alvarlega þegar svona ábendingar eru hunsaðar á svona lélegan hátt: Nei, bara misskilningur, allt í lagi, ekkert að sjá hér. Nákvæmlega sömu útskýringar og við fengum síðast og þar áður: Nei, þetta er bara í fína lagi, við kunnum þetta alveg — sem reyndist síðan ekki vera.

Þegar búið er að klúðra þessu ekki bara einu sinni, eins stjarnfræðilega og það var gert síðast, heldur líka í fyrsta skipti eins og hefur verið farið yfir hérna, af því að markaðsverðið fór vissulega mikið hækkandi og umsagnaraðilar sögðu okkur að það væri kannski eðlilegt að verð hækkaði eftir slíkt útboð, fyrsta útboðið, almenna útboðið eins og var þá, um kannski 5%, í mesta lagi 10%, 5% væri ásættanlegt, 10%, þá ætti sögulega að segja: Við undirverðlögðum kannski aðeins þegar við vorum að kanna markaðsverðið. Það endaði í einhverjum 60% sem verðið hækkaði um á hálfu ári. Í öllum slíkum tilfellum á seljandi að segja: Ég klúðraði, ég tapaði heilum helling. Kaupendur fagna æðislega. Þannig að við þurfum að huga að þessu þegar við komum að þessu máli aftur enn einu sinni undir því yfirskini að í rauninni er búið að ráðstafa þessu fjármagni í fjárlögum þessa árs og fjármálaáætlun fyrir næsta ár, undir þeim dómi í rauninni sem hefur verið gerður varðandi hæfi ráðherra til að sinna þessu áður, sem er núna einhvern veginn skrifað burt o.s.frv. Það er allt við þetta sem gerir það að verkum að maður er ekki beint að stimpla trauststimpilinn á þetta mál.

Hér er talað um kröfu um vandaða stjórnsýsluhætti í nefndarálitinu, einnig sérstakt hæfi. Við skulum geyma það, það hefur verið farið tiltölulega vel yfir það. Það á að vera krafa um vandaða stjórnsýsluhætti en það var kallað sérstaklega eftir því að sjálfstæð rannsóknarnefnd yrði skipuð til að fara ofan í kjölinn á fyrra söluferlinu til að velta við hverjum steini um aðdraganda, framkvæmd og ákvarðanatöku svo draga mætti lærdóm af því til framtíðar. Því ákalli var hins vegar ekki svarað. Þvert á móti er lagt til í 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins að taka ákvæði II. kafla stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi úr sambandi. Einn meginþáttur réttarríkisins hefur ætíð verið talinn sá að ríkisvaldið sé bundið af fyrirframgerðum og ákveðnum reglum. Í því felst að stjórnvöld verða að viðhafa þá málsmeðferð sem tryggir eða a.m.k. stuðlar að því að rétt og lögleg ákvörðun verði tekin í hverju máli.

Í greinargerð með frumvarpi því er varð að gildandi stjórnsýslulögum er lögð áhersla á að með frumvarpinu séu gerðar lágmarkskröfur til stjórnsýslunnar, heimilt sé að binda stjórnvaldsákvarðanir strangari skilyrðum en ekki veikari. Í greinargerð með því frumvarpi sem nú liggur fyrir þinginu segir um 5. gr. að almenn útboð á borð við það sem kveðið er á um í frumvarpinu séu þess eðlis að ekki verði talin hætta á að ómálefnaleg sjónarmið ráði för við ákvarðanatöku. Líkt og reifað er hér að framan er það ekki mergur málsins heldur hvort framkvæmdin sé hafin yfir allan vafa um vanhæfi. Fyrir utan hversu vafasamt það er að kippa öryggisreglum stjórnsýsluréttarins úr sambandi þá gefur augaleið að þetta er ekki til þess fallið að vinna aftur traust almennings. Það er einfaldlega þannig. Það er alveg ótrúlegt að meiri hlutinn og þingmenn meiri hlutans séu bara tilbúin til að kvitta upp á þetta, og bara einhvern veginn svona: sé ekkert illt, heyri ekkert illt, segi ekkert illt, miðað við hvað gerðist síðast og þar áður meira að segja líka.

Það á að tryggja aðkomu Alþingis. Það átti að gerast síðast líka. Það var algjört rugl. Málið var sent hérna mjög snemma í janúar, bara í jólafríinu. Fólk kom hérna og málinu var hent inn í nefnd, fólk fékk einhverja tæpa viku eða eitthvað svoleiðis til að renna yfir þetta og skila nefndaráliti og segja skoðun sína á þessu. Umsagnaraðilar komu bara með munnlega umsögn, höfðu ekki tækifæri eða tíma til að skrifa skriflega umsögn um málið þar sem maður hefði kannski haft betri tíma til að grandskoða hvað fælist í þessu tilboðsfyrirkomulagi sem varð síðan þegar allt kom til alls aðalklúðrið, fyrir utan náttúrlega hæfi ráðherra sem er aðalklúðrið gagnvart þinginu sem slíku, svona upp á slíka, bara til að nota rétta orðið um það, tæknilega og lagalega spillingu að ræða.

Það var farið vel yfir þetta í áliti umboðsmanns Alþingis. Hann segir að betri bragur hefði verið á því að afstaða hefði verið tekin fyrir framkvæmd sölunnar til þess hvernig reglur um sérstakt hæfi horfðu við sölunni í skriflegum gögnum við undirbúning málsins með tilliti til krafna um gagnsæi í stjórnsýslunni, vandaða stjórnsýsluhætti og aðkomu Alþingis að málinu. Ég á eftir að sjá það gerast að það verði góður tími nýttur í þinglega meðferð næsta söluferlis efast stórlega um það. Hlutverk og ábyrgð ráðherra við framkvæmd útboðs þarf að vera skýr. Það er fjármálaráðherra sem heldur á hlutabréfinu, á það, ber ábyrgð á því. Það að láta einhvern annan selja hlutabréfið afsalar ekki ráðherra á neinn hátt þeirri ábyrgð sem hann hefur með því að halda á því sem eigandi þess fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Það er bara ekki hægt að segja að einhver úti í bæ geti selt þetta án þess að ráðherra hafi nokkuð um það að segja. Það er ekki séns. Ráðherra verður, og það var það sem klúðraðist sérstaklega í síðustu, að fá greinargerð til sín eða eitthvað svoleiðis, um framkvæmdina til að gæðavotta að í rauninni hafi þriðji aðili meðhöndlað útboð og söluna á nákvæmlega sama hátt og ráðherra hefði gert það, nákvæmlega sama hátt. Þegar stjórnsýslan, þegar ríkið, þegar ráðherra lætur einhvern annan framkvæma vald sitt er það öllum skilyrðum háð eins og ráðherra væri að framkvæma þá sölu. Það verður að vera þannig. Það er ekki hægt að útvista þeirri ábyrgð ráðherra, ekki séns.

Þetta er þegar allt kemur til alls mjög óskynsamleg ráðstöfun. Það er búið að gera ráð fyrir þessu fjármagni í fjárlögum þessa árs og næsta árs í rauninni, eða alla vega fjármálaáætlun. Þetta er sala sem er ekki uppsett á þann hátt að það megi búast við hámörkun á andvirði þessarar eignar og það er einfaldlega óásættanlegt. Það er hægt að útskýra einhvers konar annars konar fyrirkomulag eða eitthvað sem slær á kröfurnar um hámarksarðsemi af sölunni ef einhverjir aðrir hagsmunir sem við metum að verðleikum eru uppfylltir í staðinn, t.d. hvað varðar traust eða gagnsæi. Oft gerir aukagagnsæi eða aukakröfur sem eru gerðar til kaupenda það að verkum að það hefur áhrif á verðið en ef það er kostnaðurinn við að ná að auka traustið þá er það mögulega góður fórnarkostnaður þegar allt kemur til alls. En það er engu svoleiðis fyrir að fara hérna.

Þegar allt kemur til alls þá er það mat 4. minni hluta að áform um að færa sölumeðferð alfarið undir fjármála- og efnahagsráðherra séu hvorki til þess fallin að auka traust, trúverðugleika, hlutdrægni og gagnsæi né stuðla að vandaðri stjórnsýslu. Í ljósi sögunnar, aðdraganda lagasetningarinnar og þeirra alvarlegu annmarka sem eru annars reifaðir í þessu nefndaráliti — og ég fór pínulítið frjálslega með og fór ekki í nákvæma lesningu á öllu, fólk bara les það í frítíma sínum — þá leggst 4. minni hluti alfarið gegn samþykkt frumvarpsins og skal málinu vísað til ríkisstjórnarinnar til gagngerrar endurskoðunar þar sem ákvæði stjórnarskrár eru í virt í hvívetna og tryggð verði vönduð stjórnsýsla til að traust almennings á hinu opinbera skerðist ekki enn meira en orðið er. Því leggur 4. minni hluti til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Ég vonast satt best að segja til þess að ekkert fari úrskeiðis, að þetta verði alveg fullkomlega vel gert. Það er hins vegar ýmislegt sem bendir til þess að það verði annmarkar á þessu ferli. Hverjir nákvæmlega þeir verða — þeir verða væntanlega ekki þeir sömu og síðast og ekki þeir sömu og þar áður. Það er alltaf eitthvað nýtt. Við lærum alla vega kannski af því. En ábendingar umsagnaraðila í þessu máli ættu að gefa meiri hlutanum smá, bara pínulitlar, áhyggjur af því að kannski séu þeir að sigla í enn eitt strand með söluna á Íslandsbanka.